Eru spilavíti slæm fyrir orðspor Íslands?
Ég las viðtal við Álfheiði Ingadóttur heilbrigðisráðherra á vísi í gær þar sem verið er að fjalla um spilavíti, þar sagði hún:
„Ég sé enga ástæðu til þess að breyta lögunum og fara að opna hér spilavíti. Það yrði ekki orðspori Íslands til framdráttar. Ísland hefur upp á margt að bjóða og aðra sérstöðu,” segir Álfheiður sem þykir hugmyndin ekki góð og áréttar að spilafíkn sé alvarlegur sjúkdómur og öllum ljóst hverjar afleiðingar spilafíknar geta orðið.“
Nú eru til dæmis bæði spilavíti í Danmörku og Svíþjóð. Ég hef ekki orðið var við að þessi spilavíti hafi skaðað orðspor þessara landa.
Ég sé ýmsar ástæður fyrir því að spilavíti eigi ekki að starfa á Íslandi en hvernig sú starfsemi eigi að skaða orðspor okkar sé ég ekki. Gat Álfheiður virkilega ekki fundið betri rök gegn spilavíti en að það skaðaði orðspor okkar Íslendinga?
Hitt er annað mál að á Íslandi hafa menn verið með ótrúlegan tvískinnungshátt varðandi spilavíti og fjárhættuspil. Íslensk góðgerðarsamtök hafa getað rekið spilakassasali, þar sem menn hafa getað tapað aleigunni. Þegar farið er inn á þessa staði má sjá að þetta eru ekkert annað en vísir af spilavítum. Það hefur þótt í góðu lagi og stjórnvöld hafa veitt þessu blessun sína. Meira að segja SÁÁ hefur hluta af tekjum sínum með þátttöku í rekstri spilakassa. Þeir setja sig nú upp á móti þessari hugmynd, en hversu trúverðugt er það þegar þeir standa sjálfir í stórtækum spilakassarekstri?
Ég er ekkert hrifinn af því að fá spilavíti til Íslands, en það er rétt hjá Álfheiði að spilafíkn sé alvarlegur sjúkdómur. Á sama tíma er samt skrýtið að góðgerðarstofnun sem starfar við það að hjálpa fólki úr þessari fíkn skuli fá drjúgan skildinginn með rekstri sem verður ekki kallaður annað en vísir að spilavítum. Ég hef ekki séð núverandi heilbrigðisráðherra leggjast gegn því eða koma með aðrar lausnir fyrir þessi félög til að afla sér fjár.
Hver er annars munurinn á sportbar með 15 spilakössum og spilavíti með spilakössum? Bara nafnið og að það verða væntanlega spilaborð með alvöru „dílerum“?