Posts tagged: samfylkingin

Það var reynt að búa til spennu

Ég sé að í Orðinu á götunni segir að enn sé óútskýrður talnamunur sem glöggir menn komu auga á í birtingu talna úr prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Hér skal hann skýrður.
Við birtingu talna kl. 19 á lauardaginn var upplýst að talin hefðu verið 2.212 atkvæði. Þetta var ekki rétt. Hið rétta er að kl. 16 höfðu verið GREIDD alls 2.212 atkvæði, þar af voru TALIN rafræn atkvæði greidd til kl. 16 og gild atkvæði greidd á pappír til kl. 14, alls 1.984 gild atkvæði. Þarna munar 228 atkvæðum sem enn voru í kjörkössum, bæði á kjörstað í Þróttaraheimilinu og á Hallveigarstíg, eða sem biðu úrskurðar um gildi. Þessi 228 atkvæði skýra það misræmi sem var á tölum birtum kl. 19 og lokatölum.
Þetta misræmi við birtingu talna hafði engin áhrif á niðurstöðu prófkjörsins, þar sem þessi 228 atkvæði voru hluti af lokatölum.
Kveðja,
Páll Halldórsson

Ekki veit ég af hverju þessi rannsókn tók svo langan tíma en væntanlega vegna þess að menn áttu frekar von á því að þetta vandræðalega mál myndi gleymast og ekki þyrfti að útskýra þetta klúður neitt frekar.

Það sem er merkilegt við þessa tilkynningu er ekki það að enginn svindlaði heldur hitt að hvernig staðið var að talningunni.

Eins og ég nefndi í fyrri pistil þá grunaði mig að spindoktorar Samfylkingarinnar væru að búa til tölur til að auka fjölmiðlaathygli. Eins og kemur bersýnilega í þessari tilkynningu er ákveðið að birta eingöngu hluta af rafrænum atkvæðum en öll rafræn atkvæði. Setning um TALIN rafræn atkvæði er bara grín, öll rafræn atkvæði voru talin um leið og kosningu lauk.

Þetta er án efa gert til að skapa meiri spennu en sem hefði myndast ef eingöngu hefði verið eftir að telja atkvæði sem voru greidd á pappírsformi eftir klukkan 14 (eins og stendur í tilkynningunni), svo ekki sé talað um þá athygli sem fékkst út á að frambjóðendur voru að skipta á sætum.

Eldhús umræður Hrannars

Það virðast ýmsir og meðal annars Eyjan rekist á tilkynningu frá Hrannari Arnarssyni, þar sem hann segir að á facebook síðunni sinni vilji hann geta tjáð sig eins og hann geri í eldhúsinu heima hjá sér.

Tilkynningin er auðvitað ekki ný, þetta er búið að vera inni hjá aðstoðarmanninum amk. síðan í október. Ég notað mitt eigið facebook á sínum tíma til að benda á umföllun Vísis þar sem skrif Hrannars voru birt með skjámynd af facebook reikningnum hans. Á myndinni má greinilega sjá þessi skilaboð (til vinstri á myndinni):

Hrannar Arnarsson facebook

Ekki veit ég hvernig eldhúsið hjá Hrannari lítur út eða hversu stórt það er. En þegar hann er að spjalla á facebook með 1700 vini, verður seint hægt að líkja þessu saman. Það gerist amk. ekki mjög oft að ég fái 1700 gesti í mitt eldhús.

Hrannar hefur notað síðuna til að koma skilaboðum á framfæri vitandi vits um að þau myndu rata á síðum fjölmiðla. Ég veit amk. ekki um neinn íslenskan facebook notenda sem hefur oftar sagt eitthvað á facebook sem hefur ratað í fjölmiðla.

Þessi setning getur því ekki verið annað en grín, nema Hrannar sé ótrúlega tregur.

WordPress Themes