Posts tagged: rúv

Fréttasíminn

Undanfarið hef ég verið að taka til í pósthólfunum hjá mér, bæði vinnupósturinn (hi) og gmail voru fullir. Ýmislegt skemmtilegt hefur komið í ljós við þetta en flest hefur fengið að fara í ruslakörfuna, enda veit ég ekki hvað ég á að gera við 10 ára pósta. Ég verð þó líklega seint í hópi þeirra sem fylgja inbox zero.

Eitt af því sem kom upp þegar ég tók til í hi póstinum mínum var póstur frá árinu 2000, þegar RÚV kom með “bráðsniðuga” nýjung, sem var Fréttasíminn. Menn áttu að hringja inn og hlusta á seinasta fréttatíma.

Ég skrifaði um þetta á sínum tíma og fannst þetta frekar heimskulega hugmynd (og finnst enn). Markaðsstjóri RÚV hafði þá samband og hafði (augljóslega) aðrar meiningar.

Eftir nokkrar bréfaskriftir sendi ég honum eftirfarandi bréf:

Ég er þeirrar skoðunnar að þetta sé 10 árum of seint og þetta nái ekki fótfestu hér á landi. Ekkert sem þú hefur sagt mér hefur breytt þessari skoðun minni. Tæknilega hefur verið hægt að framkvæma þessa hluti í langan tíma. Tíminn mun einn leiða í ljós hvort þessi skoðun mín er rétt.

Ég veit ekki hvenær fréttasíminn hvarf, en hann er þá amk. vel geymdur ef hann er til.

WordPress Themes