Posts tagged: persónuvernd

Hverju deilirðu á Facebook?

Er facebook síðan opin
Er Facebook síðan þín opin öllum?

Ég hef tekið eftir því undanfarið að fjölmargir eru með töluvert opna prófíla á Facebook meira en verið hefur. Í fyrstu hélt ég að þetta væri bara tilviljun, ég nota Facebook ekki það mikið. Síðar komst ég að því að þetta sama gilti um sjálfan mig og fleiri í kringum mig. Facebook virtist hafa breytt aðgengi að prófílnum mínum.

Ég mundi eftir því að Facebook hafði byrjun mánaðarins sett inn tilkynningu um breytingar á “privacy settings”. Á þeim tíma leiddi ég hugann ekkert að þessu en smellti á “ok”, og hélt áfram að nota síðuna. Eftir að ég áttaði mig á þessum breytingum kannaði ég þetta og í ljós kom að stjórnendur Facebook voru meðvitað að opna síður fólks með það að leiðarljósi að auka heimsóknir inn á vefinn.

Í sjálfu sér eru fá stór leyndarmál inn á Faceabook hjá mér. Almenna reglan þegar ég skrifa inn, er að ég set ekkert þar sem ég myndi ekki deila á öðrum stöðum. Helsti munur er reyndar sá að t.d. ólíkt blogginu er erfitt að leiðrétta eftir á (eins og ég geri stundum hérna þegar ég les færslunar mínar aftur). Ég skrifa oft mun hraðar og án þess að úthugsa það sem ég skrifa inn á Facebook. Því miður með þeim afleiðingum að það sem fer inn er manni ekki beint til sóma, með hálfkláruðum setningum og stafsetningarvillum. Annað hefur maður ekki að fela. Eins ágætt tól og Facebook er má ekki gleyma því að Facebook telur sig eiga allt sem þangað fer inn og fara með það á þann hátt sem þeir kæra sig um.

Samt sem áður kærir maður sig kannski ekki að opna sig meira gangvart öðru fólki en það sem nauðsynlegt er.

Alla vegana ef þú ert eins og ég, þá mæli ég með að þú kíkir á “privacy settings” og athugir hvort reikningurinn er opnari en þú kærir þig um.

Umfjöllun á Guardian
Umfjöllun á bbc

WordPress Themes