Posts tagged: netlýðræði

Netþýðið og skoðanakannanir

NetlýðræðiÉg hlustaði eins og fleiri á umræðu í Silfrinu um seinustu helgi þar sem kom meðal annars umræða um þátttöku á netinu en þar var Haukur Arnþórsson að fjalla um umræðu á netinu. Það sem sat eftir þá umræðu hjá mér var að það væru miðaldra menntamenn á stór-reykjavíkursvæðinu sem tækju þátt í umræðunni á netinu. Hann nefndi auk þess sérstaklega hóp öryrkja, atvinnulausa og fólk á landsbyggðinni og skort á þeirra þáttöku.

Andrés bloggaði um þetta um daginn og fékk ansi mikil viðbrögð við þessari umfjöllun. Eitt af því var frá Röskvuliðanum Finn, sem tók saman ansi merkilega tölfræði í kjölfarið um Facebook aldursdreifingu.

Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á þessu (eins og flestu sem kemur að netinu), ég fór því að skoða þetta aðeins betur. Hagstofan hefur safnað upplýsingum varðandi netnotkun og samkvæmt þeirra niðurstöðum frá 2009 eru um 93% Íslendinga á netinu og hefur vaxið úr 86% frá árinu 2005. Skipting á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins þá eru 94% höfuðborgarbúa með aðgengi að netinu en 91% af landsbyggðinni. Nákvæmlega sama skipting er á milli karla og kvenna.

Mesti munurinn er hins vegar á milli aldurshópanna, á meðan 100% yngri kynslóðanna hafa aðgengi að netinu, þá hafa eingöngu 55% af 65 til 74 ára með aðgengi en hefur þó vaxið um 13 prósentustig frá árinu 2005.

Þessar tölur sýna því að mjög mikil þátttaka er á netinu bæði hjá körlum og konum, hvar sem fólk býr. Þótt ég hafi ekki fundið neinar tölur um notkun netsins hjá öryrkjum og atvinnulausum þá hafa hafa komið til sögunnar mikið af tólum til þess að bæta aðgengi öryrkja að netinu. Jafnvel þótt atvinnulaus maður hefði ekki aðgengi heiman frá sér þá er hægt að fara inn á bókasöfn og víðar til að komast á netið.

Um leið og 93% Íslendinga nýta sér netið, þá sýndi könnun Hagstofunnar að eingöngu 88% heimila væru með símalínu árið 2005 og stór hluti ungs fólks nýtir sér eingöngu að vera með fyrirfram greidd farsímakort (frelsi). Þessi númer eru hvergi skráð og erfitt fyrir fyrirtæki að nálgast þennan hóp fólks til að leita skoðanna viðkomandi í gegnum síma. Sá hópur sem hefur kosið að nýta sér þessa leið og jafnvel ekki talið nokkra ástæðu til að kaupa hefðbunda símalínu inn á heimilið, þegar stofnað hefur verið til heimilis hefur vaxið mjög hratt.

Það mætti því alveg eins gera svipaða fyrirvara varðandi símakannanir og þá sem Haukur gerir um netið.

WordPress Themes