Posts tagged: kvikmyndir

Bjarnferðarson

BjarnfreðarsonÉg fór áðan á myndina Bjarnfreðarson, ég get ekki sagt annað en að það hafi verið nokkur eftirvænting enda hef ég séð allar þrjár seríurnar. Seríurnar hafa verið algjör snilld og jafnvel þótt ég sé ekki áskrifandi af Stöð 2, hef ég gert mér far um að fara í heimsókn þegar þættirnir hafa verið sýndir.

Auðvitað má svo sem segja að maður hafi verið búinn að byggja upp eftirvæntingu um myndina. Það voru sem sagt töluverð vonbrigði og ekki þess virði að borga sig inn á bíó til þess að sjá myndina.

Auðvitað var myndin bráðfyndin á köflum og grá eins og þættirnir en það vantaði einhvern veginn allan söguþráð í myndina. Mér leið á köflum eins og ég væri frekar að horfa á þætti um “the making of” frekar en bíómynd í fullri lengd. Svo hefði verið hent inn smá aukaefni.

Fyrst það er ákveðið að þetta yrði seinustu kaflar um þá félaga hefði maður viljað sjá meira um endalokin, ekki síst Danna. Það var skilið eftir í lausu lofti og hefði verið gaman að sjá hver endalok þessa þunga einstaklings hefðu verið og hvort hann hefði endað í hamingjusamara hlutverki.

WordPress Themes