Posts tagged: jólakveðjur

Jólakort stjórnmálamanna

Jólakort
Síðan ég hóf að gegna trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn hef ég alltaf fengið mikið af jólakortum frá kjörnum fulltrúum. Sjálfum hefur mér alltaf fundist það skjóta skökku við þegar kjörnir fulltrúar nota peninga frá skattborgurum til að senda mér jólakveðjur, bara af því að ég ber ákveðna stöðu en ekki vegna þess að viðkomandi þekkir mig. Nokkrum sinnum hef ég bent mönnum á hvað þetta er rangt, en hef oftast fengið frekar lítil svör.

Ég hef þó grun um að kóngurinn í þessum sendingum hafi verið Halldór Ásgrímsson á sinni ráðherratíð. Ég fékk ekki kort fyrr en ég fór að gegna trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, mörgum árum eftir að ég gekk í flokkinn. Félagi minn sem hafði verið smalað inn í Framsóknarflokkinn í kosningum og hafði allar götur síðan reynt að losna (líklega þó helst með að nöldra ofan í brjóstmálið á sér þegar hann fékk póst frá flokknum) fékk í nokkur ár kort frá Halldóri.

Fyrst menn eru á annað borð að eyða peningum skattborgara í að senda þessar kveðjur, þá er stórundarlegt þegar menn gera það ekki almennilega og senda mjög auðgleymanleg kort. Þessi kort eru yfirleitt gjörsneidd nokkrum persónulegum kveðjum, oft hefðbundin jólakort með skannaðri undirskrift viðkomandi. Oft hefur það gerst að fólk er að senda þessi kort á Þorláksmessu og þau berast þá ekki fyrr en eftir jól.

Velgerðar jólakveðjur geta augljóslega vakið gleði og ánægju með viðkomandi stjórnmálamann en hins vegar illagerðar eingöngu fullkomin sóun á peningum, pappír og vinnu viðkomandi aðila.

Skemmtilegustu kortin eru augljóslega kort sem eru ekki alveg stöðluð af stærð og gerð, með eftirminnilegri mynd. Kort sem eru með mynd af fjölskyldum viðkomandi vekja alltaf athygli mína, þau sýna að viðkomandi á líf fyrir utan stjórnmálin. Það hefur þó gerst nokkrum sinnum að ég hef fengið kort með mynd af viðkomandi, eins og um kosningabækling væri að ræða. Auðvitað er það alltaf viðkunnanlegt þegar menn hafa fyrir að skrifa inn persónulega kveðju og nafn þess sem fær kortið. Jafnvel þótt það taki augljóslega mun lengir tíma, skila slíkar persónulegar kveðjur sér alltaf.

Í fyrra og í ár var lítið af slíkum kortum, en meira af því að stjórnmálamenn sem ég þekki persónulega hafi sent kort á eigin kostnað. Það var lítill söknuður í þessum fjölda á jólakortum stjórnmálamanna sem voru mörg ópersónuleg og fóru beint í ruslið ásamt öðrum auglýsingabæklingum. Það var þó áberandi að um leið og stjórnmálamennirnir fóru að greiða sendingarnar úr eigin vasa að kortin voru yfirleitt betur gerð og meira um persónuleg og áhugaverð jólakort.

WordPress Themes