Posts tagged: indefence

Að spinna sig undan undirskriftarlista

Undirskriftarlistar indefence hafa verið gagnrýndir út af örfáum fölskum nöfnum.

DV birti grein í dag þar sem fjallað var um undirskriftarlista indefence, en þeir fundu 3-4 nöfn af 30 þúsund sem augljóslega voru ekki rétt. Ýmsir bloggarar hafa gripið þetta á lofti og fjallað um málið eins um stór hneyksli sé að ræða.

Mistökin hjá Indefence eru líklega að birta nöfn beint á vefnum hjá sér án þess að fara yfir upplýsingarnar áður en þær birtast á vefnum. Í þessu tilfelli eru ákveðin öfl sem hafa hagsmuni af því að eyðileggja þessa könnun en það er alltaf áhætta með slíka opna lista og án þess að kanna grunninn fyrst að einhverjir grínista eða aðilar sem vilja eyðileggja listana. Það er skal reyndar viðurkennast að það er alvega galið hjá þeim að vera með alls enga prófanir á kennitölum um leið og hún er skráð inn, jafn einfalt og kennitölupróf nú er eða skráning á ip tölum og fjöldtakmarkanir á slíku á hverja og eina.

Reyndar er alveg sama hvaða leið er valin til þess að afla undirskrifta, alltaf er hætta á slíkum eyðileggingum. Jafnvel þótt undirskrifta væri aflað með því að ganga hús úr húsi, þá eru þeir sem skrifa undir ekki beðnir um skilríki og því alltaf hætta.

Í einni undirskriftarsöfnun sem ég tók þátt í var notast við þá leið og fólk var beðið um að staðfesta undirskriftina með því að smella á hlekk í tölvupóst sem var sendur á fólk. Því miður þá skrifuðu hátt í 30% undir staðfestu ekki skráninguna af einni eða annarri ástæðu t.d. rangt netfang, pósthólfið fullt eða hirtu ekki um að smella á hlekkinn til að staðfesta póstinn sem þeir fengu.

Þrátt fyrir að alls konar listar hafi verið gerðir á facebook, þá er ég ekki frá því að það sé töluvert að marka þá lista. Þótt menn séu að kanna ýmislegt misgáfulegt á Facebook, þá er þó alla vegna nokkuð öruggt að hver og einn skrifar einu sinni undir og er sá sem hann segist vera. Mjög auðvelt er að staðfesta að viðkomandi er til og ekki bara reikningur sem var búinn til, til að gabba.

Sá spuni sem nú er að koma fram um indefence undirskriftarlistann er alveg örugglega frá stjórnarflokkunum kominn. Spuninn virðist vera tvennskonar, annars vegar á þetta að vera komið úr höfuðstöðvum framsóknar og hins vegar þessi nokkru nöfn sem eru augljóslega bull.

Auðvelt er að dempa inn nokkrum nöfnum og gera stórfrétt úr þessu, listinn er opinn og nöfnin birtast strax. Varðandi að þetta sé komið frá Framsókn, þá eru indefence ópólitísk og kjósendur allra flokka í samtökunum.

Þrjátíu þúsund undirskriftir segja sitt og þótt spunakellingar ríkisstjórnarinnar reyni að spinna sig frá þessu þá er megn óánægja með þessa samninga og raunverulega reiði í samfélaginu varðandi samninganna. Menn spinna sig ekkert úr því.

WordPress Themes