Posts tagged: borgarstjórn

Ný nöfn á rótgrónum götum

Maður spyr af hverju það er sérstakt tilefni núna þegar 101 ár er liðið frá því fyrsta konan var kjörin í borgarstjórn að endurskýra nokkrar gamalgrónar götur í Reykjavík.

Af hverju ekki 99, 79 eða 81 ár? Hvað er sérstakt við 101 ár?

Það hafa verið fjölmörg tækifæri til þess að heiðra þessar konur, og þeir eiga heiðurinn svo sannarlega skilið en ekki í einhverju kosningarsjónarspili.

Þegar Grafarholtið var reist var ákveðið að kalla hverfi Þúsaldarhverfið og haldið upp á 1000 ár frá Kristni, nöfn á götum hverfisins, eins misjöfn og þau nú eru, standa þó fyrir eitthvað. Á meðan hverfið er byggt munu menn vita af hverju þessar götu bera þessi nöfn.

Hefði ekki verið nær að heiðra þær á sambærilegan hátt og með Þúsaldarhverfinu og skýra götur amk. í heilum hverfishluta eftir þeim? Mönnum hefði verið í lófa lagt að gera það með nýju hverfi eins og Úlfarsfellshverfinu, þar sem götur bera nú nöfn heiðinna gyðja, sem virðist vera svar við kristnum tenginum á hæðinni við hliðina.

WordPress Themes