Blaðið les ég yfirleitt með stýrur í augunum á morgnanna rétt áður en ég fer út, það liggur þarna í forstofunni þegar ég er að fara út, auðlesið og yfirleitt svona fyrstu fréttir ásamt fréttablaðinu. Tékk á hvort heimurinn sé ekki en til staðar og hvort það hafi eitthvað skemmtilegt gerst síðan ég fór að sofa.
Ég get ekki gert af því að þegar ég renni í gegnum blaðið með stýrunar mínar sé bara ekki þessar stórkostlegu breytingarnar. Maður þyrfti kannski að taka þeta með sér í vinnunna og lesa það eftir hádegi þegar allt er komið í gang.
Ég veit ekki hvort aðrir upplifa það sama. Venjulegir lesendur, og hvort þetta sé hluti af markaðssetningunni á blaðinu.
Gaman af því að vísir skuli hafa fundið sömu frétt og ég, nema bara sólarhring síðar.
Töluverð umræða var í vor vegna þess að ríkið var ekki tilbúið að greiða 25 milljónir til að halda Live Earth tónleikana hérna heima, auk þess töldu aðstandendur tónleikana ekki nógu vel staðið að tæknilegum undirbúningi. Nú hefur komið á daginn að Tyrkir hafa helst úr lestinni nokkrum dögum áður en halda átti tónleikna. Ástæðan er einmitt skortur á fjármagni og skortur á tíma fyrir tæknilegan undirbúning.
Suðurland.is segir frá 11 ára unglingi sem var tekinn fyrir að keyra bíl, en forráðamaður var sektaður fyrir athæfið.
Í “gamla daga” þótt það nokkuð eðlilegt að ungmenn keyrðu bíla, svo lengi sem menn voru ekki að keyra á þjóðveginu. Mér funndust það nokkrar fréttir þegar félagi minn var tekinn og umfjöllun líkt og þessi birtist í blöðunum, en hann var 16 ára og notaði bíl til að skutla sjálfum sér 3 km leið þangað sem skólabílinn kom og sótti hann.
Á þessum tíma var þetta auðvitað þannig að sömu krakkar voru að stýra vélbúnaði daginn út og inn. Þessi tæki eru orðin allt önnur í dag og menn hugsa sig sjálfsagt tvisvar um áður en 12 ára gamalt barn er sett á dráttarvél, sem kostar nokkrar milljónir með öllum þeim flókna tæknibúnaði. Ford 47 eða Zetor 78 módelið var allt annað mál. Hugarfarið hefur einfaldlega breyst.
Maður myndi amk. sjálfur reka upp stór augu ef maður mætti 12 ára gömlu einstaklingi á 1978 módelinu af Súbarú.
JCI hefur oft í gegnum tíðina staðið fyrir skemmtilegum verkefnum, JCI Vest stendur nú fyrir áhugaverðu verkefni fyrir vestan, þar sem þeir eru í samstarfi við Heilsueflingu um að fá fólk til að hreyfa sig. Þeir fóru af stað með verkefni sem heitir fjallapassinn, þar sem fólk fær kort af 3 fjöllum, upp á topnum eru svo stimplar. Svo eru verðlaun í boði.
Umfjöllun um þetta á BB
Fyrr í dag sagði ég frá því að Karl Breta prins hefur verið að sinna umhverfismálum undanfarið, eitt af því sem hann hefur verið að gera er að rækta lífræntræktað grænmeti. Nú berast fréttir þess efnis að gulræturnar hans Kalla séu alls ekki nógu góðar, Sainsbury hafi hafnað þeim.
Talsmaður hans segir að það hafi verið vandamál vegna pökkunar og geymslu. Aðaláherslan sé á ferskleikinn og unnið verði að því að leysa öll vandamál. Sansbury menn segja að þær hafi verið geymdar í 3 – 4 mánuði.
Gulræturnar eru seldar undir vörumerkinu Duchy Carrots, þannig að ef einhverjir Íslendingar eiga leið um Sainsbury geta menn skellst sér á poka af lífrænt rækuðum kongunlegum gulrótum. Áhugamenn um kóngafólkið ætti að líka við konunglegar gulrætur.
Ég hef heyrt mikið um the Secret, hvernig það á að hjálpa manni að ná markmiðunum. Ég horði á smá hluta af myndinni og nenti svo ekki að glápa meira. Hérna er grein sem segir það algjört kjaftæði. Ég veit ekki hvort það er rétt, en ég er bara ekki nægjanlega mikið inn í þessu til að dæma um það. Þessi litli hluti sem ég sá af myndinni benti nú ekki til þess að þetta væri nein snilld. Hins vegar hefur þetta hjálpað mörgu fólki og ólíkt mörgu öðru er þetta kannski ekki stór peningamylla fyrir utan sölu bóka, námskeiða og myndbanda. Fólk þarf auðvitað að kynna sér þessa hluti áður en það eyðir peningum í svona.
Í grunninn fannst mér þetta nokkuð einföld skilaboð. Eins og með margar svona bækur. Ef þú einbeitir þér nógu mikið að hlutunum eru þeir líklegri að gerast.
Ekki flókin skilaboð en augljóslega með töluvert sannleiksgildi. Það getur svo sem verið að það sé eitthvað meira rugl sem ég hef ekki séð þessar fáu mínútur sem ég glápti á myndina.
Hérna eru leiðbeiningar fyrir Breta hvernig á að nálgast Iphone símana. Fyrir minn smekk er þetta fullmikið vesen fyrir einn síma en ætti samt að virka á Íslandi eins og Bretlandi.
Fyrirtæki sem er að koma sér af stað á netuppboðsmarkaðnum notar nú ebay til þess að selja þjónustu sína. Hægt er að skoða hérna.
Sundaymail segir frá manni sem er ákærður fyrir að hafa stundað kynlíf með hjólinu sínu. Maðurinn var tekin á gististað sem hann dvaldi, hann var vel í glasi þegar starfsmaður gistiheimilisins ætlaði að þrýfa herbergið. Maðurinn var þá nakinn og í kynlífsstellingu með hjólinu sínu.
Maðurinn sagði að þetta hefði allt verið einn stor misskilingur.
Ég veit ekki hvaða lög hann var að brjóta, fyrir utan að vera stórkostlega furðulegur. Ég get að minnstakosti ekki ímyndað mér íslensk lög sem myndu taka á þessu framferði.
Yahoo segir frá því að Nintendo sé nú meira virði en Sony á hlutabréfamarkaði. Þetta er í fyrsta skipti sem það gerist, en Vii er að seljast 3 sinnum betur en Sony Playstation í Japan og tvisvar betur en í Bandaríkjunum.
Þetta er nokkuð skemmtilegur viðsnúningur, þar sem Game Cube náði aldrei flugi hjá þeim fyrr en þeir hófu að selja vélina á 99 dollara í Bandaríkjunum.
Tónlistarhátíðin Glastonbury var að ljúka í gær, en miklar rigningar hafa verið í Evrópu sem gerði það að verkum að yfir 1000 manns slösuðust á hátíðinni. Mikil drulla var á svæðinu og gestir lentu oft í erfiðleikum sökum þessa. Algengt var að menn lentu undir í troðningi, þegar menn runnu í drullunni og féllu. Í flestum tilfellum voru þetta minnháttar meiðsl, eins og bólgnir öklar eftir fall eða skurðir á líkama.
Hins vegar þurfti að leggja 32 einstaklinga á sjúkrahús eftir að hafa lent í alvarlegum slysu.
Nú styttist í tónlistarhátíðina Hróarskeldu, en Danmörk hefur fengið sinn skamt á rigningunni. Ætli það sé ekki góð ábending til Íslendinga að taka með sér ullarpeysuna, sem er besta vörn við hvaða veðri sem er.
Byggt á frétt frá Belfasttelegraph
Vantar þig “dirty trikk” til að komast áfram á þínum vinnustað? Hérna eru nokkur ráð sem ég mæli ekki með enn finnast þarna úti.
Önnur áhugaverð grein um þróun orkumála í heiminum. Jeroen van der Veer frá Shell ræðir um framtíð orkumála í heiminum.
Gulli fjallar um fyrirbrigðið sem á sjálfsagt eftir að verða nýjasta æðið. Ég hef ekki orðið svo frægur að skrá mig inn en fengið boð um það. Ég er yfirleitt mjög seinn að skrá mig inn í svona dót, maður fær svo mikið af meldingum alltaf af alls konar dóti, en en erfitt að vita hvað er eitthvað sem er þessi virði að eyða tímanum sínum í.
Ég hef t.d. ekki enn skráð mig í afmælisdagabókina hans Munda. Hann verður bara að muna sjálfur hvenær ég á afmæli.
Ég er mjög ánægður með myndina sem Halldór teiknaði af mér. Ég efast um að nokkur muni stoppa mig út á götu vegna þess að þeir þekki mig af myndinni. Það er mjög flott að eiga svona fína mynd af sjálfum sér. Ég fékk hann til þess að senda mér hana, svo ég á hana í góðri upplausn.
Nú á að fara að breyta númerakerfinu og við eigum að sjá númer þar sem fyrsti tölustafurinn verður nú bókstafur. Það er nokkuð merkilegt hvað bílum hefur fjölgað hratt að gamla kerfið er sprungið.
Fjöldi fastanúmera á bílum uppurinn
Fastanúmer bíla, sem skráð hafa verið frá árinu 1970, eru nú uppurin og hafa verið gerðar breytingar á númerakerfinu til að stækka pottinn. Koma þær breytingar til framkvæmda í næstu viku, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu.
Hingað til hafa númerin verið þannig að fyrst koma tveir bókstafir og síðan þrír tölustafir. Með núverandi fyrirkomulagi gefst kostur á útgáfu samtals rúmlega hálfrar milljónar númera og miðað við undanfarin ár er u.þ.b. 30 þúsund nýjum fastanúmerum úthlutað á ári.
Með því að bæta bókstöfum við tölustafina í þriðja dálk númersins er hægt að stækka mögulegan númerafjölda upp í rúmar tvær milljónir númera. Hingað til hafa fastnúmer öll verið á forminu „AB 123″ en geta nú einnig verið „AB C23″. Gert er ráð fyrir því að með þessu breytta fyrirkomulagi sé hægt að gefa út fastanúmer næstu 50 árin.
Umferðarstofa segir, að þessi breyting eigi ekki að hafa í för með sér kostnaðarauka fyrir hlutaðeigandi aðila. Ekki sé verið að skipta út því kerfi sem fyrir er heldur verið að gera lítilvæga breytingu sem stuðlar að auknum fjölda fastanúmera. Hinsvegar þurfa fyrirtæki og stofnanir, sem starfs síns vegna þurfa að vinna með skráningu bílnúmera, mögulega að gera viðeigandi breytingar á sínum tölvukerfum.
Fréttablaðið vekur athygli á því í dag að 2 svisnesk skúffurfyrirtæki hafa ákveðið að hefja farsímarekstur á Íslandi, á sama tíma benda þeir á annað fyrirtæki sem hefur verið með leyfi frá árinu 2004 en seldu eingöngu örfá símakort á seinasta ári en halda enn leyfinu.
Það hlýtur að vekja athygli að svisknesk skúffufyrirtæki ákveði að gera það að sínu fyrsta verkefni að setja upp senda á hinu drefibýla Íslandi, og á sama tíma og íslensku fyrirtæki sem sóttu um leyfin og hafa sjálf og þekkja vel inn á markaðinn treysta sér ekki til þess að ná sambærilegri dreifingu.
Getur verið að þessum fyrirtækjum hafi verið veitt þessi leyfi án þess að fyrir hafi legið nákvæmar áætlanir hvernig þeir ætluðu að ná þessum markmiðum sínum? Dæmin á Íslandi sýna að ekkert af þessu er gert, menn komast upp með að lofa öllu fögru en gera ekki neitt eins og kom fram í Fréttablaðinu. Aðilar sem hafa ekki enn staðið við samninga frá árinu 2000, og ekkert farið að gera.
Það er ekkert eðlilegra en að það séu gerð útboð eins og var viðhaft núna, hins vegar er það eftirlitsþátturinn sem þarf að viðhafa. Um leið og áætlanir ganga ekki upp er eðlilegt að menn fái viðvörun , séu hlutirnir í kjölfarið ekki leiðréttir eiga menn að missa leyfið. Til hvers að halda útboð, ef það á aldrei að einnheimta það sem er lofað í útboðinu?
Hitt er að ef menn ætla að lofa dreifingu með því að keyra á dreifikerfi símans. Hver sem er getur stofnað farsíma fyrirtæki ef hann nær að gera reikisamning við símann. Sko er dæmi um fyrirtæki sem hefur gert slíka samning, en rekur sjálft enga senda. Sko hefði verið í góðum málum í þessum samningum, með enga senda en rosalega dreifingu.
Spurningin sem Póst og fjarskiptastofnun þarf að spyrja sig er hvað liggur að baki. Hangir eitthvað á spýtunni hjá þeim svinsnesku? Getur verið að þetta sé fyrst og fremst gluggi fyrir þessa aðila til að geta komist inn á aðra markaði en póst og fjarskiptastofnanir í öðrum löndum taki einfaldlega í veg fyrir svona, en með leyfi upp á hönunum á Íslandi séu þeir að opna fyrir sér aðgengi á aðra markaði.
Ég hef í raun enga trú á því að þessi fyrirtæki muni reisa fleiri senda en hugsanlega í Reykjavík og Akureyrri. Þessar hugmyndir um dreifignu sem átti að vera álíka eins og símans á örfáum árum var virkilega ótrúleg. Um leið ætla ég rétt að vona að póst og fjarskiptastofnu taki nú á þessu máli og þessir menn verði sviftir leyfinni ef þessi spá mín rætist og við fáum inn aðila sem ætla virkilega að taka þátt í samkeppninni hér á markaðnum og bjóða upp á raunverulega samkeppni við símann og þar með lægra verð til okkar neytanda.
Hin mjög skemmtilega og klássísk hallærislega hljómsveit Stuðmenn hefur nú opnað heimasíðu. Það er tímanatákn að þeir hafi nú opnað þessa heimasíðu, loksins. Slóðin er Studmenn.is.
Síðan er reyndar frekar leiðinleg, þar sem hún er uppfull af Flasssi með tilheyrandi hljóðfælum og látum.
Annar tónlistarmaður hefur nú skráð lénið PállÓskar.is. Ólíkt Stuðmönnum, fer hann þá leið að vísa síðunni beint á myspace svæðið sitt, þar sem hann kynnir eigin tónlist. Eins og hjá Stuðmönnum byrjar einhver hljóðfæll að spilas, hann er þó hægt að stoppa svona meðan maður les síðuna.
Hann segist þar vera ein skærasta poppstjarna Íslands. Er það málið? Var hann ekki ein skærasta poppstjarna Íslands og nú kominn í hóp eldri poppara? Ég hef ekki heyrt mikið af poppinu hans spilað í útvarpinu undanfarin ár.
Í gær birtist áhugaverð grein um barnaníðinga sem stunduðu það að fara í Háskólann og sækja barnaklám. Á þeim tíma voru ekki lög sem hindruðu slík. Það merkilega við þessa færslu er ekki síst áhugaleysi lögreglunnar. Ég hefði haldið að minnsta ábending um slíkt myndi vekja áhuga lögreglunnar og að eitthvað yrði gert til að stöðva þessa menn.
Greinin endar svo á að segja að þessir menn séu nú um mundir mikilsvirtir á moggablogginu, þetta auðvitað gerði það að verkum að ansi margir gætu mögulega verið grunaðir. Ég þar með, reyndar fyrir utan þá staðreynd að ég var nemendi við háskólann á þessum tíma en þessir menn fengu lánað aðgangsorð vegna þess að þeir voru ekki nemar.
Þegar þetta er skrifað hafa verið skrifuð 48 athugasemdir við þessa færslu, þar sem nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til að nafngreina þessa menn. Dómstóll götunnar hefur tekið við og nú hafa amk. tveir verið nafngreindir, þar með einn með fullu nafni. Það vekur athygli að höfundur færslunnar lætur þessar athugasemdir standa og þar með að nokkru leiti ábyrgur fyrir þessu.
Þessu máli er væntanlega ekki lokið, höfundur færslunnar þarf væntanlega annað hvort að leiðrétta þetta eða taka út þessar athugasemdir.
Miðað við boðskap færslunnar finnst mér klaufalet að gefa upp svo persónugreinalegar upplýsingar þetta, það bætti engu við þetta mál annað en að það hafi verið hugmynd höfundar að þessir menn yrðu á endanum kynntir til sögunnar án þess að hann hafi gert það sjálfur.