Ég hef tekið eftir því undanfarið að fjölmargir eru með töluvert opna prófíla á Facebook meira en verið hefur. Í fyrstu hélt ég að þetta væri bara tilviljun, ég nota Facebook ekki það mikið. Síðar komst ég að því að þetta sama gilti um sjálfan mig og fleiri í kringum mig. Facebook virtist hafa breytt aðgengi að prófílnum mínum.
Ég mundi eftir því að Facebook hafði byrjun mánaðarins sett inn tilkynningu um breytingar á “privacy settings”. Á þeim tíma leiddi ég hugann ekkert að þessu en smellti á “ok”, og hélt áfram að nota síðuna. Eftir að ég áttaði mig á þessum breytingum kannaði ég þetta og í ljós kom að stjórnendur Facebook voru meðvitað að opna síður fólks með það að leiðarljósi að auka heimsóknir inn á vefinn.
Í sjálfu sér eru fá stór leyndarmál inn á Faceabook hjá mér. Almenna reglan þegar ég skrifa inn, er að ég set ekkert þar sem ég myndi ekki deila á öðrum stöðum. Helsti munur er reyndar sá að t.d. ólíkt blogginu er erfitt að leiðrétta eftir á (eins og ég geri stundum hérna þegar ég les færslunar mínar aftur). Ég skrifa oft mun hraðar og án þess að úthugsa það sem ég skrifa inn á Facebook. Því miður með þeim afleiðingum að það sem fer inn er manni ekki beint til sóma, með hálfkláruðum setningum og stafsetningarvillum. Annað hefur maður ekki að fela. Eins ágætt tól og Facebook er má ekki gleyma því að Facebook telur sig eiga allt sem þangað fer inn og fara með það á þann hátt sem þeir kæra sig um.
Samt sem áður kærir maður sig kannski ekki að opna sig meira gangvart öðru fólki en það sem nauðsynlegt er.
Alla vegana ef þú ert eins og ég, þá mæli ég með að þú kíkir á “privacy settings” og athugir hvort reikningurinn er opnari en þú kærir þig um.
DV birti grein í dag þar sem fjallað var um undirskriftarlista indefence, en þeir fundu 3-4 nöfn af 30 þúsund sem augljóslega voru ekki rétt. Ýmsir bloggarar hafa gripið þetta á lofti og fjallað um málið eins um stór hneyksli sé að ræða.
Mistökin hjá Indefence eru líklega að birta nöfn beint á vefnum hjá sér án þess að fara yfir upplýsingarnar áður en þær birtast á vefnum. Í þessu tilfelli eru ákveðin öfl sem hafa hagsmuni af því að eyðileggja þessa könnun en það er alltaf áhætta með slíka opna lista og án þess að kanna grunninn fyrst að einhverjir grínista eða aðilar sem vilja eyðileggja listana. Það er skal reyndar viðurkennast að það er alvega galið hjá þeim að vera með alls enga prófanir á kennitölum um leið og hún er skráð inn, jafn einfalt og kennitölupróf nú er eða skráning á ip tölum og fjöldtakmarkanir á slíku á hverja og eina.
Reyndar er alveg sama hvaða leið er valin til þess að afla undirskrifta, alltaf er hætta á slíkum eyðileggingum. Jafnvel þótt undirskrifta væri aflað með því að ganga hús úr húsi, þá eru þeir sem skrifa undir ekki beðnir um skilríki og því alltaf hætta.
Í einni undirskriftarsöfnun sem ég tók þátt í var notast við þá leið og fólk var beðið um að staðfesta undirskriftina með því að smella á hlekk í tölvupóst sem var sendur á fólk. Því miður þá skrifuðu hátt í 30% undir staðfestu ekki skráninguna af einni eða annarri ástæðu t.d. rangt netfang, pósthólfið fullt eða hirtu ekki um að smella á hlekkinn til að staðfesta póstinn sem þeir fengu.
Þrátt fyrir að alls konar listar hafi verið gerðir á facebook, þá er ég ekki frá því að það sé töluvert að marka þá lista. Þótt menn séu að kanna ýmislegt misgáfulegt á Facebook, þá er þó alla vegna nokkuð öruggt að hver og einn skrifar einu sinni undir og er sá sem hann segist vera. Mjög auðvelt er að staðfesta að viðkomandi er til og ekki bara reikningur sem var búinn til, til að gabba.
Sá spuni sem nú er að koma fram um indefence undirskriftarlistann er alveg örugglega frá stjórnarflokkunum kominn. Spuninn virðist vera tvennskonar, annars vegar á þetta að vera komið úr höfuðstöðvum framsóknar og hins vegar þessi nokkru nöfn sem eru augljóslega bull.
Auðvelt er að dempa inn nokkrum nöfnum og gera stórfrétt úr þessu, listinn er opinn og nöfnin birtast strax. Varðandi að þetta sé komið frá Framsókn, þá eru indefence ópólitísk og kjósendur allra flokka í samtökunum.
Þrjátíu þúsund undirskriftir segja sitt og þótt spunakellingar ríkisstjórnarinnar reyni að spinna sig frá þessu þá er megn óánægja með þessa samninga og raunverulega reiði í samfélaginu varðandi samninganna. Menn spinna sig ekkert úr því.
Undanfarið hef ég verið að taka til í pósthólfunum hjá mér, bæði vinnupósturinn (hi) og gmail voru fullir. Ýmislegt skemmtilegt hefur komið í ljós við þetta en flest hefur fengið að fara í ruslakörfuna, enda veit ég ekki hvað ég á að gera við 10 ára pósta. Ég verð þó líklega seint í hópi þeirra sem fylgja inbox zero.
Eitt af því sem kom upp þegar ég tók til í hi póstinum mínum var póstur frá árinu 2000, þegar RÚV kom með “bráðsniðuga” nýjung, sem var Fréttasíminn. Menn áttu að hringja inn og hlusta á seinasta fréttatíma.
Ég skrifaði um þetta á sínum tíma og fannst þetta frekar heimskulega hugmynd (og finnst enn). Markaðsstjóri RÚV hafði þá samband og hafði (augljóslega) aðrar meiningar.
Eftir nokkrar bréfaskriftir sendi ég honum eftirfarandi bréf:
Ég er þeirrar skoðunnar að þetta sé 10 árum of seint og þetta nái ekki fótfestu hér á landi. Ekkert sem þú hefur sagt mér hefur breytt þessari skoðun minni. Tæknilega hefur verið hægt að framkvæma þessa hluti í langan tíma. Tíminn mun einn leiða í ljós hvort þessi skoðun mín er rétt.
Ég veit ekki hvenær fréttasíminn hvarf, en hann er þá amk. vel geymdur ef hann er til.
Top Gear virðsta vera ótrúlega lagnir við að koma sér í vanda, greinilega ætla þeir alls ekki að hlusta á raddir þessara umhverfissina og halda bara áfram sínu striki.
Nú er verið að jagast í þeim út af ralli á Norðurpólnum, ekki er langt síðan allt var brjálað í Botswana þegar þeir kvikmynduð í saltnámum þar. Reyndar bentu stjórnvöld þar í landi á að þeir hefðu eitt vikum í undirbúning og hefðu gert allt samkvæmt bókinni, meðal annars keyrt slóða sem áður voru til.
Top Gear mega eiga það að sem bíla þáttur þá eru þeir flottir, ekki verið að fara þennan hefðbundna prufurúnt, heldur er druslan prófuð. Það er ekki oft sem ég horfi á þessa þætti en ég kann að meta að prufa bílinn í einhverju öðru en að keyra hring á planinu, eins og maður er vanur í þessari tegund af þáttum.
Ég hef verið duglegur að ræða um þáttinn zuuber og bloggið þeirra. Ég skal viðurkenna að ég les nú ekki bloggið þeirra eða hlusta á þáttinn þeirra. Nú tók ég eftir því að lénið zuuber.is. Það mun því styttast í að zuubler hætti að blogga hjá samkeppnisaðila vísir.is og færi sig annað hvort í eigið kerfið eða á vísisbloggið.
Áhugaverð frétt um að Sony sé búið að lækka verðið á Sony Playstation. Því miður er afar ólíklegt að við fáum að sjá eitthvað af þessu hérna. En ef þeir lækka verðið almennilega hérna heima líka, getur vel verið að maður skelli sér á eina.
Fór inn á RÚV.is til þess að leita að hvaða tíðni þeir senda út á í Reykjavík. Bjóst við að finna þetta á forsíðunni, eða amk. á einhverjum mjög augljósum stað. Eftir að hafa eytt smá tíma þarna fann ég þetta alls ekki. Fór af gamni inn á Bylgjan.is, bara til að tékka og þar er útsendingartíðninni plasterað um allt.
Afhverju ætli RÚV auglýsi ekki á augljósan hátt á hvaða tíðni þeir senda út á?
Ég veit ekki hversu flókið það er um þessar mundir á Íslandi, allir virðast vera að græða. Ef ekki á hlutabréfum þá á því að kaupa og selja íbúðir eða vera “verktakar” sem virðist gefa vel.
Ég var að skanna mjög áhugaverða grein um myndina The Great Global Warming Swindle, en eins og margir sem horfðu á hana klóraði ég mér í smástund í kollinum og velti fyrir mér hvað væri satt og logið í þessum efnum. Ég hef svo sem lesið margar áhugaveðrar greinar um þetta á erlendum síðum, en hins vegar hefur maður heldur ekki forsendur til að meta þær. Eðlilega vekur slík mynd alltaf hörð viðbrögð og þeir sem skotið er á munu alltaf verjast.
Nú hefur sem sagt birst mjög áhugaverð grein á vef veðurstofunnar, grein sem ég mæli hiklaust með.
The Register segir frá því að nú verði hægt að tékka sig inn í flug með SMS. Samt þarftu að fara í sjálfsafgreiðslukassann. Ég veit eiginlega ekki hvað það hjálpar fyrir utan að geta valið mér sæti með lengri fyrirvara og tryggja þannig það sæti sem ég vil.
Ég skil svo ekki þessa sjálfsagreiðslukassa sem bjóða þér að velja sæti ef þú ert einn að tékka þig inn en ekki ef það eru tveir eða fleiri á sömubókun. Afhverju ætli þetta sé?
Veit ekki alveg hvað ég ætti að gera við hana, annað en að vera hamingjusamur eigandi af Linuxtölvu. Nokkuð
According to Linux Devices Calao’s USB-9260 USB key-sized SBC is 3.3 x 1.4 inches. It is based on an Atmel AT91SAM9260 processor, an system-on-chip and powered by an ARM926EJ-S core clocked at 190MHz.
The USB key SBC has 64MB of SDRAM and 256MB of NAND flash onboard. It also has a 10/100 Ethernet port, and a pair of USB 2.0 host ports. The device also has a 50-pin expansion interface.
Eyjan fjallar um innflutning frá Kína og hvernig hann hefur margfaldast undanfarin ár.
Ég átt töluvert mikil viðskipti við Kína, það kemur ekkert á óvart að viðskipti þaðan séu að aukast. Margt ber þó að varast og meðal annars er allt annað laga umhverfi varðandi ábyrgð, maður hefur heyrt hrykalegar sögur af viðskiptum sem hafa farið úrskeiðis og menn ypta öxlum.
Þegar ég var í Kína seinast, hitti ég Hollending sem var hjá stóru alþjóðlegu fyrirtæki. Hann sagði að þeir sendu alltaf mann út fyrir og eftir hverja sendingu. Þeir hefðu einu sinni keypt vörur frá Kína, farið út og skoðað vörurnar og orðið sáttir um gæðin.
Svo hafi verksmiðjan einfaldlega framleitt vöruna hjá ódýrari undirverktaka sem ekki kunni vinnubrögðin. Gámurinn fór eins og hann lagði sig í ruslið. Þeir ætla ekki að eiga viðskipti við þennan aðila aftur og breyttu vinnubrögðunum þannig að þeir senda menn bæði fyrir og eftir hvern gám.
Guardian segir frá því að Karl Breta prins sé farinn að kolefnisjafna, hann gerir það þó ekki á þann einfalda hátt sem nú er vinsæll á Íslandi. Hann hefur hins vegar breytt ferðamáta sínum og nota í meira mæli lestar í staða einkaþotna og þyrluferða, svo notar hann í staðinn fyrir hefbundið eldsneyti lífrænt ræktaðan orkugjafa á konunglega Jagúarinn og Landróverinn.
Með þessu hefur Karl að minnkað útblástur kolefnis um 9% á sínum vegum. Hann ætlar auk þess að kanna fleiri kosti til umhverfisverndar, t.d. að láta kongunglegar lestar ganga fyrir lífrænt rækuðum orkugjöfum..
Ólafur Ragnar Grímsson kom úr ranni umhverfissinna á meðan hann var á þingi, þó svo að það hafi ekki verið komið á oddinn á þeim tíma. Það er spurning hvort forsetaembættið þurfi ekki að sleppa konunglegum salernispappír og fara að kaupa endurunninn. Svo kynna sér hvort ekki sé hægt að nota innlenda orkugjafa á bílana.
Það gerist stundum að ég þarf að lesa kínverskar síður, þar sem ég stunda nokkur viðskipti við Kínverja. Hingað til hefur þetta ekki gengið neitt sérstaklega vel en ég fann þessa fínu orðabók á netinu.