Category: JCI

Auglýsingar á blogginu

Ég breytti hausnum og setti inn auglýsingu á toppinn. Þetta er í fyrsta skipti sem ég geri það, en upphaflega þegar ég byrjaði að blogga á eyjunni var talað um auglýsingar og jafnvel auglýsingaborða efst sem við fengjum borgað fyrir. Ég átti nú ekki von á að fá greitt fyrir að blogga. Reyndar hef ég fengið ágætis greiðslu sem hefur vakið ómælda athygli en strákarnir á Eyjunni gáfu mér peysu. Peysan hefur slegið í gegn og verið mikið notuð.

Í þetta skipti auglýsi ég brúðkaupsræðunámskeiðið mitt. Ég veit ekki hvort það er gott að setja svona jákvæðan hlut inn á nöldur bloggið mitt :) Ég ætla samt að gera það og vona að þetta vekji einhverja athygli.

JCI er nonprofit samtök sem greiðir ekki leiðbeinendum fyrir störf sín, þannig að þetta er ekki eitthvað sem ég er að fara að hagnast á persónulega. Ekki nema ánægjan að fá að kenna á þessu námskeiði og lærdómurinn af því. Þannig að það er ekki ástæðan fyrir því að ég set þessa auglýsingu inn. Hins vegar hefur þetta fengið nokkuð mikla umfjöllun og búið er að fylla eitt svona námskeið, ég vidli gjarnan ná að fá fleiri til þess að seinna námskeiðið geti farið fram.

Ef þú veist um einhvern sem er að fara að halda ræðu í brúðkaupi, máttu endilega benda á námskeiðið. Þetta eru 2 kvöld og við munum hjálpa viðkomandi að keyra í gegnum ræðuna og þjálfa sig upp. Það kostar 12 þúsund kall að fara á þetta námskeið.

WordPress Themes