Í gær hætti ég í JCI (Junior Chamber international) samtökum sem ég hafði verið í upp á dag í 4 ár (byrjaði 16. Janúar 2006). Það var svo sem ekki auðveld ákvörðun, en ég horfði upp á skrípaleik í gær og ákvað að það væri komið að leiðarlokum hjá mér.
Upphaflega gekk ég inn í JCI vegna ræðumennsku, þrátt fyrir að samtökin eigi að standa fyrir meira en ræðumennsku þá hefur það alltaf verið það sem ég hef haft mestan áhuga á. Ég hef því tekið þátt í öllum ræðukeppnum sem ég hef haft færi á að taka þátt í og sömuleiðis þjálfað á þeim ræðunámskeiðum sem ég hef getað tekið að mér.
Ég hef áfram mikinn áhuga á ræðumennsku, og hefði viljað vera í samtökum sem snúast um að þjálfa fólk fyrst og fremst í ræðumennsku, framkomu og auk þess hjálpar fólki að reka og stjórna fundum. Þetta er eitthvað sem skortir nánast í íslenska skólakerfið og mikil þörf er á.
Það er auðvitað stutt síðan ég hætti í JCI, en síðan þá hef ég velt þessu fyrir mér og er kominn á þá niðurstöðu að það sé rétt að stofna svona samtök, sem eru að sjálfsögðu ópólitísk en eingöngu með þessi framan greindu markmið.
Ef þær hugmyndir sem ég er með ná fram að ganga má búast við að samtökin færu af stað á næstu vikum eða mánuðum og að sjálfsögðu að vel athuguðu máli. Eitthvað sem ég á eftir að fara í á næstu dögum að skoða og halda áfram að velta fyrir mér hvort ég fari út í þetta og á hvaða nótum slík samtök myndum starfa.
Helgin var merkileg ég kláraði forsetatíðina mína um helgina, sem forseti JCI Esju. Þetta er búið að vera skemmtilegt ár, og mikið verið gert. Á árinu tvöfaldaðist fjöldi félaga og rúmlega það, fjöldi viðburða var margfaldaður og útgáfa aukin.
Ég vona að ég skili góðu búi, strákarnir sem tóku við eru mjög öflugir og eiga eftir að gera gríðarlega góða hluti.
Nú framundan er ræðunámskeið JCI Esju, en ef fer fram sem horfir verða 2 námskeið keyrð samtímis. Ég væri mjög ánægður, því þrátt fyrir að vera hættur þá sem forseti þá var skipulagning og kynning á mínum vegum. Þessi námskeið hafa verið gríðarlega vinsæl og hafa á fimmtatug farið í gegnum þessi námskeið á árinu sem er að líða. Enda eru námskeiðin þannig að menn fá góðan grunn í að koma fram, hvort sem menn eru að kynna verkefni, í vinnunni eða að fara í giftingu.
Hins vegar er starfið í JCI miklu meira en bara ræðumennska, það er algengur misskilningur vegna þess að mest hefur sést af ræðumennsku hjá JCI. JCI starfar á 4 sviðum, alþjóða, einstaklings (þar sem ræðumennska er staðsett), samfélags og að lokum viðskiptasviði. Það er því ansi margt í boði fyrir félaga.
Ég sé ekkert eftir að hafa gengið í JCI fyrir tveimur árum, þá var ég á kafi í öðrum félagsstörfum og taldi að ég hefði ekki mikinn tíma til að sinna þessu. Hins vegar eftir smá tíma áttaði ég mig á kostum þess og hef síðan meira og meira einbeitt mér að starfi JCI.
Yfirleitt hvetjum við fólk á að byrja á að kynna sér starf félagsins með því að taka þetta fyrsta grunnnámskeið í ræðumennsku. Fólk hefur þá fengið einhverja innsýn inn í starf félagsins áður en það gengur inn, ef það hins vegar er ekki að fýla sig hefur amk. fengið námskeið sem mun gagnast í leik og starfi.