Um bloggið
Heiti potturinn var stofnaður árið 1998, þá var skrifað í gegnum telnet hugleiðingar, undir lok ársins bentu nokkrir félagar á sniðugt kerfi þar sem ekki þurfti lengur að flytja færslurnar yfir á netið.
Síðar datt áhugi fyrir þessum skrifum að mestu niður meðal annars vegna þess að ég jók skrifin á frelsi.is og deiglan.com.
Eftir að hafa tekið mér nokkurt hlé í bloggi, ákvað ég að færa mig yfir á moggabloggið, í kjölfarið á því ákvað ég að færa blogg inn á eigin netþjón þar sem ég hef betri stjórn á efninu og birtingunni með því að hafa fulla umsjón með netkerfinu. Ég ætla að sjá til hvað ég endist að blogga hérna eða hvernig þetta verður.
Tómas Hafliðason