Gerði Margrét ekkert gagn?
Ég sé að Samfylkingin hefur ekki séð ástæðu til að birta leiðréttar tölur á heimasíðu sinni vegna mistaka sem voru í birtingu talna á laugardaginn. Það er nokkuð merkilegt að þetta skuli bara standa en eina sem gert hefur verið er að senda tilkynninguna til Eyjunnar. Þarf ekkert að leiðrétta þetta við þá sem kusu?
Síðan prófkjörið fór fram hef ég séð nokkra blogga um þá synd að Sigrún Elsa náði ekki þeim árangri sem hún ætlaði sér. Um hana hafa verið sögð ýmis fögur orð og talað um hvað borgarstjórnarflokkurinn er að verða af öflugum liðsmanni í borgarstjórn.
Það hefur hins vegar ekki verið sagt múkk (svo að ég hafi séð) um árangur Margrétar Sverrisdóttur sem þó lenti fyrir neðan Sigrúnu.
Gerði hún ekkert gagn? Var ekkert gott um hana að segja?
Líkt og Sigrún hefur hún starfað með borgarstjórnarflokki Samfylkingarinnar. Margrét taldi sér ýmislegt til ágætis þegar hún mótmælti fáránlegri frétt á DV að hennar mati:
“Heildarmánaðarlaun mín hjá Reykjavíkurborg eru 212.449 krónur fyrir skatta. Ég fæ 25% skerðingu á full laun varaborgarfulltrúa vegna þess að ég sit bara í einu fagráði, Umhverfis- og samgönguráði. Ég á líka sæti í hverfisráði Grafarholts- og Úlfarsárdals og í borgarmálahóp Samfylkingar, sem hittist oft. Auk þess hef ég sótt borgarstjórnarfundi en mæting mín þar er aldrei skráð af því ég á ekki seturétt þar. “
Hún virðist því hafa starfað nokkuð með Samfylkingunni.
Hverju ætli það sæti að enginn Samfylkingar bloggari hafi séð ástæðu til að minnast á ágæti Margrétar? Þegar F-listinn hóf meirihluta samstarfa við Sjálfstæðiflokkinn ákvað hún að taka ekki þátt í því heldur gekk í faðmlag við Samfylkinguna sem átti væntanlega síðar töluverðan þátt í að Íslandshreyfingin ákvað að sameinast Samfylkingunni.
Finnst Samfylkingarfólki engin eftirsjá í henni?