Eru spilavíti slæm fyrir orðspor Íslands?
Ég las viðtal við Álfheiði Ingadóttur heilbrigðisráðherra á vísi í gær þar sem verið er að fjalla um spilavíti, þar sagði hún:
„Ég sé enga ástæðu til þess að breyta lögunum og fara að opna hér spilavíti. Það yrði ekki orðspori Íslands til framdráttar. Ísland hefur upp á margt að bjóða og aðra sérstöðu,” segir Álfheiður sem þykir hugmyndin ekki góð og áréttar að spilafíkn sé alvarlegur sjúkdómur og öllum ljóst hverjar afleiðingar spilafíknar geta orðið.“
Nú eru til dæmis bæði spilavíti í Danmörku og Svíþjóð. Ég hef ekki orðið var við að þessi spilavíti hafi skaðað orðspor þessara landa.
Ég sé ýmsar ástæður fyrir því að spilavíti eigi ekki að starfa á Íslandi en hvernig sú starfsemi eigi að skaða orðspor okkar sé ég ekki. Gat Álfheiður virkilega ekki fundið betri rök gegn spilavíti en að það skaðaði orðspor okkar Íslendinga?
Hitt er annað mál að á Íslandi hafa menn verið með ótrúlegan tvískinnungshátt varðandi spilavíti og fjárhættuspil. Íslensk góðgerðarsamtök hafa getað rekið spilakassasali, þar sem menn hafa getað tapað aleigunni. Þegar farið er inn á þessa staði má sjá að þetta eru ekkert annað en vísir af spilavítum. Það hefur þótt í góðu lagi og stjórnvöld hafa veitt þessu blessun sína. Meira að segja SÁÁ hefur hluta af tekjum sínum með þátttöku í rekstri spilakassa. Þeir setja sig nú upp á móti þessari hugmynd, en hversu trúverðugt er það þegar þeir standa sjálfir í stórtækum spilakassarekstri?
Ég er ekkert hrifinn af því að fá spilavíti til Íslands, en það er rétt hjá Álfheiði að spilafíkn sé alvarlegur sjúkdómur. Á sama tíma er samt skrýtið að góðgerðarstofnun sem starfar við það að hjálpa fólki úr þessari fíkn skuli fá drjúgan skildinginn með rekstri sem verður ekki kallaður annað en vísir að spilavítum. Ég hef ekki séð núverandi heilbrigðisráðherra leggjast gegn því eða koma með aðrar lausnir fyrir þessi félög til að afla sér fjár.
Hver er annars munurinn á sportbar með 15 spilakössum og spilavíti með spilakössum? Bara nafnið og að það verða væntanlega spilaborð með alvöru „dílerum“?
By Þröstur, 8-02-2010 @ 14:23
Ef það á ekki að leyfa spilavíti, hversvegna þá ekki að banna t.d. áfengi? Ég held ég geti fullyrt að áfengisfíkn eyðileggi fleiri fjölskyldur á hverju ári en nokkur önnur fíkn. Vinstri menn geta náttúrlega ekki höndlað þá hugsun að almenningur eigi að bera ábyrgð á eigin gjörðum.
By Halldór Á, 8-02-2010 @ 14:26
Það eru nú meðmæli með hvaða hugmynd sem er ef Álfheiður Ingadóttir er á móti henni. Sannkallaður gæðastimpill.
Mér líst vel á spilavíti – sem er nú ekki kallað gambling hell á útlensku, heldur kasínó. En væntanlega hafa það verið sömu aðilar og bönnuðu bjórinn í 50 ár og voru á móti litasjónvarpi sem fundu upp orðið spilavíti.
Það eru alls konar spilaklúbbar í gangi og menn að spila póker upp á peninga alla daga vikunnar. Er ekki betra að fá þessa starfsemi upp á yfirborðið?
En kannski ættum við að taka Álfheiði Ingadóttur á orðinu og skapa okkur Íslendingum enn meiri sérstöðu. Bönnum bjórinn aftur, bönnum boxið, bönnum litasjónvarp, setjum á gjaldeyrishöft – æ, gleymdi, þau eru nú eþgar við lýði – og bönnum konum að kjósa.
By Torfi Stefán, 8-02-2010 @ 23:43
Halldór Á er greinilega hress á kantinum og flýtur yfir staðreyndir og áratugi til þess eins að koma höggi að VG eða aðra.
Orðið spilavíti er væntanlega mun eldra en litasjónvarp yfir höfuð og bendir margt til þess að bann á spilavíti hafi alveg eins tengst hægri íhaldsmönnum sem og vinstri mönnum.
Ég held að enginn sé lengur að tala um að banna bjórinn, gjaldeyrishöftin voru sett á í tíð síðustu ríkisstjórnar og voru líklega nauðsynleg.
Ég er sammála Tómasi varðandi tvískinnunginn en væri til í að heyra rök hans hví hann er á móti opnun spilavítis hér á landi.
By Tómas, 9-02-2010 @ 00:02
Ég er ekki að segja að þetta eigi að vera bannað með lögum, en eins og með annað eiga að gilda ein lög. Ekki ein lög fyrir líknarfélög og svo önnur um einkaaðila.
Hins vegar er ég ekkert æstur í að fá casino til Íslands, frekar en ég er ekki hrifinn af þessum Gullnámu kössum. Ég hef bara séð alltof marga fara illa á þessu og vildi helst vera laus við stórt Casiono.
Ég er því ekki að leggja til að ég eða stjórnmálamenn séu að reyna að hafa vit fyrir fólki. Það er vita vonalaust að ætla að stoppa fólk sem hefur áhuga á þessu. Bandaríkjamenn hafa gert ítrekaðar tilraunir, og gert menn meðal annars útlæga frá Bandaríkjunum fyrir að reka net-casino.
http://www.gamblux.com/editorNews342.asp
http://www.usatoday.com/sports/2006-07-18-online-gaming_x.htm
By Torfi Stefán, 9-02-2010 @ 08:39
Takk fyrir svarið. Ég var bara velta þessu fyrir mér sjálfur þar sem ég hef ekki enn neina mjög svo vel mótaða skoðun á málinu
By Bóndi, 13-02-2010 @ 18:15
Hvaða orðspor? Síðan hvenær hefur Íslandi eitthvað orðspor? Þetta er krummaskuð í Norðursjó líkt og Jan Mayen. Það er öllum heiminum sama um eyjar eins og Jan Mayen og Ísland… þessar fámennu og afskekktu eyjar eru afgangsstærðir sem enginn er að hugsa um eða velta fyrir sér – nema þá við helst eyjarskeggjasrnir sem höldum að augu heimsins beinist að okkur.
By Georg Georgsson (gosi), 14-02-2010 @ 11:37
Ef við teljum betra að fá þetta uppá yfirborðið,hafa þetta löglegt og skattleggja.Þá hljótum við að vilja lögleiða fýkniefni og selja td. í apotekum eða stórmörkuðum þannig að ríkið fái sinn skatt.Varðandi SÁÁ þá orkar það mjög tvímælis að þeir standi í spilakassarekstri.en þetta er að skila þeim tekjum eins og áfengissala ríkinu.Þó svo hagnaðurinn á endanum sé enginn.