Það var reynt að búa til spennu

Ég sé að í Orðinu á götunni segir að enn sé óútskýrður talnamunur sem glöggir menn komu auga á í birtingu talna úr prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Hér skal hann skýrður.
Við birtingu talna kl. 19 á lauardaginn var upplýst að talin hefðu verið 2.212 atkvæði. Þetta var ekki rétt. Hið rétta er að kl. 16 höfðu verið GREIDD alls 2.212 atkvæði, þar af voru TALIN rafræn atkvæði greidd til kl. 16 og gild atkvæði greidd á pappír til kl. 14, alls 1.984 gild atkvæði. Þarna munar 228 atkvæðum sem enn voru í kjörkössum, bæði á kjörstað í Þróttaraheimilinu og á Hallveigarstíg, eða sem biðu úrskurðar um gildi. Þessi 228 atkvæði skýra það misræmi sem var á tölum birtum kl. 19 og lokatölum.
Þetta misræmi við birtingu talna hafði engin áhrif á niðurstöðu prófkjörsins, þar sem þessi 228 atkvæði voru hluti af lokatölum.
Kveðja,
Páll Halldórsson

Ekki veit ég af hverju þessi rannsókn tók svo langan tíma en væntanlega vegna þess að menn áttu frekar von á því að þetta vandræðalega mál myndi gleymast og ekki þyrfti að útskýra þetta klúður neitt frekar.

Það sem er merkilegt við þessa tilkynningu er ekki það að enginn svindlaði heldur hitt að hvernig staðið var að talningunni.

Eins og ég nefndi í fyrri pistil þá grunaði mig að spindoktorar Samfylkingarinnar væru að búa til tölur til að auka fjölmiðlaathygli. Eins og kemur bersýnilega í þessari tilkynningu er ákveðið að birta eingöngu hluta af rafrænum atkvæðum en öll rafræn atkvæði. Setning um TALIN rafræn atkvæði er bara grín, öll rafræn atkvæði voru talin um leið og kosningu lauk.

Þetta er án efa gert til að skapa meiri spennu en sem hefði myndast ef eingöngu hefði verið eftir að telja atkvæði sem voru greidd á pappírsformi eftir klukkan 14 (eins og stendur í tilkynningunni), svo ekki sé talað um þá athygli sem fékkst út á að frambjóðendur voru að skipta á sætum.

Bentu öðrum á færsluna:
  • Facebook
  • Twitter
  • del.icio.us
  • Print
  • Digg
  • Google Bookmarks
  • email
  • FriendFeed
  • LinkedIn
  • Live
  • Ping.fm
  • By Þórir Hrafn, 2-02-2010 @ 10:45

    Ég veit að það vakti nokkra óánægju uppp í fyrra (og í prófkjörinu þar áður) þegar í fyrstu tölum var eingöngu að finna tölur úr rafrænu kosningunum, en ekkert af tölum úr hefðbundnu atkvæðunum. Eins og gefur að skilja er mjög ólíkur hópur einstaklinga sem kýs á netinu og kýs á hefðbundinn hátt og þetta varð þess valdandi að sveiflur urðu mjög miklar á milli fyrstu og annarra talna. Það mætti eiginlega líkja þessu við það ef að mismunandi kjörstaðir væru tilkynntir sérstaklega í hefðbundnum kosningum.

    Núna í ár virðist hafa verið ákveðið að gefa aðeins eðlilegri mynd af dreifingu atkvæða með því að blanda þessu saman frá fyrstu tölum.

    Það má líka velta því fyrir sér af hverju þetta ætti eiginlega að vera eitthvað óeðlilegt. Af hverju finnst þér þetta gagnrýnivert? Af hverju gagnrýnir þú þá ekki þá venju að vera sífellt að birta millitölur til að búa til spennu? Af hverju ákváðu spindoktorar sjáflstæðisflokksins að birta sífellt millitölur í prófkjöri flokksins í Reykjavík þegar að það hefði verið fullkomlega fullnægjandi að birta bara lokatölur í lok talningar? Var það ekki gert til að búa til spennu og fá athygli? Það var þá væntanlega fullkominn tilviljun að tilkynningar á millitölum íhaldsis pössuðu þægilega við fréttatíma sjónvarpstöðvanna?

    Ég geri ráð fyrir því að ég muni geta treyst á þig í baráttunni fyrir því að spindoktorar Íhaldsins leggi niður þessar óþörfu millitölubirtingar.

  • By Tómas, 2-02-2010 @ 21:03

    Mér finnst að menn eigi að birta þær upplýsingar sem þeir hafa á höndum en ekki bara hluta. Ég skil ekki að menn eigi að vera halda aftur tölum sem þeir hafa.

    Menn birta tölur um leið og þær berast hjá Sjálfstæðisflokknum.

    Ólíkt rafræna hluta Samfylkingarinnar er verið að telja.

    Eins og þú bendir réttilega á, þá er þetta mismunandi hópar. Hins vegar hafa báðir hópar haft tækifæri til þess að kjósa yfir nokkra daga. Ef menn óttast ósamræmi þá geta menn einfaldlega talið þau atkvæði sem hafa borist dagana á undan og þau atkvæði sem hafa verið að berast yfir daginn. Það ætti því ekki að vera þörf á því að þetta sé svo mikill munur.

Other Links to this Post

WordPress Themes