Loftkæling frá Íslandi

Þegar ég byrjaði að flytja inn fyrir mörgum árum loftkælingu, sagði góður vinur minn að nú væri ég endanlega genginn af göflunum. Ég gæti allt eins selt eskimóum ísskápa. Fyrirtækið sem ég rak náði þó góðu flugi og við seldum mest af loftkælingu árið 2007 og þá mest til banka og fjármálafyrirtækja.

Augljóslega datt botninn úr þessum eftir hrunið, ég ákvað að gerast nemandi frekar en að selja loftkælingar og hætti að starfa hjá Íshúsinu, þrátt fyrir að fyrirtækið hafi haldið áfram rekstri af fullum krafti.

Þegar ég hóf þennan rekstur datt mér í raun aldrei í hug að fyrirtækið ætti eftir að taka þátt að gefa loftkælingu í góðgerðarmálefni en það gerðist í gær þegar leitað var til Íshússins og óskað eftir þátttöku í að senda loftkælingu til Haiti. Það merkilega var að sá sem leitaði eftir aðstoðunni er samkeppnisaðili og hefur staðið i ákafri samkeppni við Íshúsið í mörg ár. Rauði Krossinn hafði haft samband við þá og þeir fóru af stað og hringdu í fyrirtækin í þessum geira og söfnuðu saman tækjum.

Mikið væri gaman ef Íslendingar gætu staðið saman á þennan hátt í fleiri málum, ekki síst á þeim tímum sem nú eru uppi.

Bentu öðrum á færsluna:
  • Facebook
  • Twitter
  • del.icio.us
  • Print
  • Digg
  • Google Bookmarks
  • email
  • FriendFeed
  • LinkedIn
  • Live
  • Ping.fm
  • By Ari, 19-01-2010 @ 22:47

    Hérna… af hverju þurftu Íslendingar loftkælingu, var ekki nóg að skrúfa niður ofna eða opna gluggann?

  • By Tómas, 19-01-2010 @ 22:55

    Í mörgum glerbyggingum er ekki hægt að opna glugga af ýmsum ástæðu. Þú ert heldur ekkert mikið að opna glugga á 15 hæð í byggingu á bersvæði. Á öðrum stöðum er búið að fjölga einstaklingum í rými þannig að loftræsting dugar ekki eða var ekki til staðar. Auk þess eru gríðarlega mikil aukning á raftækjum, tölvum, ljósum og öðrum hitagjöfum sem gerir það að verkum að það er nauðsynlegt að setja upp loftkælingu.

  • By Ari, 19-01-2010 @ 23:12

    ok. Þakka svarið.

Other Links to this Post

WordPress Themes