Kvöld nöldur
Stundum dettur maður um augljósa hluti sem maður getur látið fara í taugarnar á sér. Eitt af því var þegar ég datt niður á umfjöllun um forstjóraskipti hjá Húsasmiðjunni á viðskiptablaðinu.
“Steinn Logi hefur stýrt þróun Húsasmiðjunnar úr hefðbundinni byggingavöruverslun í breiða lífsstílsverslun sem höfðar til sístækkandi hóps neytenda og fagmanna.”
Ég man nú ekki betur en stóru breytingarnar hafi farið fram töluvert áður en hann tók til starfa, þegar verslunin óx mjög hratt á nokkrum árum og umboð og verslanir eins og Blómaval voru keypt.
Eina sem hægt er að segja um Húsasmiðjuna í dag, er í raun hversu henni hefur farið aftur á undanförnum árum og maður nennir varla að fara í hana. Þar sem áður voru bæði góð raftækjadeild og búsáhöld er frekar að maður eigi von á ódýrri borvél.
Ég get ekki gert af því en ég sakna gömlu Húsasmiðjunnar.