Eyjan segir frá því í dag að myndbandið sem lak á youtube í gær sé nú komið á nýjan stað eftir að Saga Film fór fram á það við Youtube að þeir fjarlægðu myndbandið.
Að sjálfsögðu var fyrirtækið spurt af hverju þeir hefðu óskað eftir því að myndbandið yrði fjarlægt. Ástæðan sem var gefin fer líklega í sögubækurnar fyrir lélegustu afsökun sem hægt er að bjóða upp á.
Sjálfsagt hafa þeir gert samning um að þeir myndu ekki dreifa því á netinu. Hins vegar er vandamálið að þeir voru alls ekki að dreifa því. Ekki frekar en kvikmyndaframleiðendur og aðrir sem eiga efni sem er sett inn á youtube af notendum vefsins.
Um þann sem setti myndbandið á netið gildir sjálfsagt annað mál og viðkomandi skaðabótaskildur gagnvart fyrirtækinu.
Vandamálið við svona myndbönd er að það er mjög erfitt að stoppa þetta þegar þau eru komin á netið. Þetta fer um eins og eldur í sinu og bara í gær voru víst yfir 30 þúsund mans sem horfðu á þetta.
Skaðinn er því skeður og litlu máli skiptir hvort þeir óski eftir því einnig á nýja staðnum að mynbandið verði tekið út. Sjálfsagt dúkkað það upp á annari myndasíðu (ef einhver hefur nennu til þess að setja það þar), nóg er af slíkum síðum.
Hérna er svo hægt að finna það á nýjum stað
Í gær í fréttum RÚV var viðtal við Steingrím J Sigfússon, þar sem hann var spurður út í afstöðu sinna manna til Icesave samkomulagsins.
Fréttamaður: En þú getur ekki sagt að það séu allir komnir um borð.
Steingrímur: Æi, ég nenni ekki að standa í þessum leik menn eru búnir að vera með þessa síbylju í allt sumar.
Hægt er að sjá þetta myndbrot hérna
Það er spaugilegt hvernig Steingrímur bregst þarna við, eins og það sé síbylja fjölmiðlamanna en ekki óeinining innan hans eigin raða. Á meðan hans fólk getur ekki einu sinni gefið upp eigin afstöðu til þessa mikilvæga máls er fullkomlega eðlilegt að fjölmiðlamenn spyrji hann út í þetta.
Þetta mál þegar Samfylkingin réðst gegn Sigmundi Davíð hlýtur að fara í sögubækurnar sem einhver heimskulegasta pólitíska árás sem sögur fara af.
Björk hendir boomerang og fær hann svo tvöfalt í hausinn, þegar kemur í ljós að hennar eigin leiðtogi er engu betri og ekki bara það heldur líklega töluvert verri. Þar af auki er um oddvita Samfylkingarinnar að ræða, sem ætti að sjá sóma sinn í að mæta í þau verkefni sem hann fær grætt fyrir af okkur borgarbúum.
Þetta ætti auðvitað ekki að hafa komið Björk á óvart að hennar eigin oddviti var ekki að mæta eins og æskilegt er, hluti af myndinni hefur áður komið fram í fjölmiðlum, t.d. hérna, þar sem hann viðurkennir að árangur Samfylkingarinnar í landsmálum hafi verið mikilvægari en þau málefni sem hann tók að sér að gera. Nú hefur komið í ljós að um fleiri tilfelli er að ræða en það sem hann viðurkenndi í þessu viðtali.
Hvort sem menn heita Sigmundur Davíð eða Dagur B, þá eiga menn að sjá sóma sinn í að vinna þau verkefni sem þeir taka að sér að gera.
Annars finnst mér þessi mynd segja ansi margt:

Ólafur Arnarsson dregur í efa trúverðugleika Moggans, þetta gerir hann út af forsíðufrétt Moggans þar sem er fjallað um lánveitingar til stjórnenda Kaupþings vegna jarðakaupa. Lánin voru kúlulán í jenum, sem hafa rokið upp á meðan eignirnar hafa hrunið í verði.
Meðal þess sem kemur fram er að hlutafé var eingöngu 600 þúsund en var síðar aukið í nokkrar milljónir á móti þeim eignum sem voru keyptar. Skuldir félagsins eru nú í kringum milljarður.
Í bloggi Ólafs segir:
“Er ekki staðreynd málsins sú, að jarðakaupendurnir urðu, rétt eins og aðrir Íslendingar, fórnarlömb afglapa við stjórn Seðlabankans á peningamálum á undanförnum árum? Ekki kom fram í „frétt“ Morgunblaðsins hvort lánin vegna jarðakaupanna í Mýrarsýslu eru í skilum. Ætli það megi ekki draga þá ályktun af því, að þau séu í skilum?”
Ha! Er það nú ekki frétt að menn séu að kaupa sér jarðir og skuldi milljarða. Hvernig dettur honum í hug að líkja þessu saman við einstaklinga sem voru að koma sér þaki yfir höfuðið?
Spurningin er auðvitað á hvort það sé óeðlilegt að segja frá mönnum sem tóku hundruðir milljóna að láni til að leika stórbændur út á landi og sitja núna uppi með verðlitlar eignir og óheyrilegar skuldir. Er það ekki frétt?
Samlíking Ólafs hér að ofan er ótrúleg, að líkja þessum mönnum saman við einstaklinga sem voru að koma sér upp heimili og þeim sem hefðu átt að vita hvað þeir voru að gera.
Sjálfsagt er hægt að finna ýmis dæmi fyrir misnotkun Moggans ef út í það er farið og Ólafur nefnir önnur dæmi um misnotkun sem sjálfsagt eiga meiri rétt á sér en þetta dæmi sem hann þó eyðir mestu púðri í. Það er ekki með nokkru móti hægt að sjá að þessi sérstaka frétti dragi úr trúverðugleika blaðsins.
Annað verður sagt um Ólaf sjálfan, um leið og skrif hans eru lesin er kannski rétt að ryfja upp þessa frétt, í henni er bent á að Ólafur Arnarsson er bróðir konu Hreiðars Más, sem er einmitt einn af þeim sem tóku þessi lán.
Gerði skemmtilega tilraun hér í kvöld. Ætlaði að bæta við hér fyrir neðan rss straum með áhugaverðum bloggum. Það vildi ekki betur til en svo að í stað þess að birta þau, þá bættust þau við eins og um eigin blogg væri að ræða. Kerfið bauð sem sagt upp á að bakka upp færslurnar, sem mér fannst í sjálfu sér ekkert óvitlaust (í stað þess að sækja þær í hvert skipti).
Ég vona að ég hafi náð að eyða út þessum færslum. Ef þið sjáið Ómar á ferðinni á blogginu mínu, vitið þið alla vegna af hverju.
Næst þegar ég reyni þetta geri ég ráð fyrir að það verði ekki fyrst á opnu bloggi.
Ég gat nú ekki annað en hugsað til Ketils Mána eða Kenneths eins og hann hét þegar ég las þessa frétt á dv.is. Þar segir Björn:
“Hvað átti bankinn að gera? Færa þetta í hendurnar á Jóhannesi í Bónus?,“ spyr Björn og bætir við. „Ég fékk meira að segja lækkun á leigunni.”
Björn hefur komið trekk í trekk í fjölmiðla og borið fyrir sig að það hafi verið bankinn sem ráðlagði sér svo illa að hann er nú kominn í þessa stöðu. Það skrítna er þó að Björn var að kaupa rekstur sem var ekki ólíkur eigin og sem hann hefði átt að hafa mun meiri þekkingu en bankinn á til að meta hvort væri þess virði að kaupa.
Kenneth karlinn lenti hins vegar í Georgi Bjarnfreðarsyni, kominn með nýtt nafn og fær því ekki að snúa aftur til Ameríku. Orð Kenneths um Georg í gær hefðu alveg eins getað verið Björns:
“Við erum þó alla vegna heiðarlegir glæpamenn”.
Niðurstaðan er að þeirra eigin sögn lentu þeir í mönnum sem komu þeim í þá stöðu sem þeir eru í dag. Annar getur borið fyrir sig heimsku, ég veit ekki um hinn.