Baggalútsfréttir Vísis

Ég horfði í fyrra dag á ráðlausan og duglausan fréttastjóra Vísis reyna að afsaka frétta um “appelsínuhúð” stjarnanna með því að þetta væru Baggalútsfréttir.

Hvað átti maðurinn við? Eru þeir að ljúga þessum fréttum? Eru þeir að gera gys af þessu fólki? Var maðurinn að segja að fréttamiðill sé algjörlega ótrúverðugur?

Af hverju sagði hann bara ekki satt og rétt frá, þeir gera þetta af því að þær selja. Þeir setja inn slatta af myndum og þetta er mikið lesið. Fólk smellir á 5-10 myndir og fjölgar þannig flettingum á vefnum og hækkar lesturinn í samanburði við miðlana.

Þar að auki er eftirspurn eftir þessum fréttum, í hvert skipti sem þessar fréttir birtast tróna þær á toppnum yfir vinsælustu fréttir miðlanna.

Varðandi það að þetta brengli sjálfsmynd barna og unglinga, þá er nóg framboð af efni sem bjagar unglinga. Sú útlitsdýrkun sem er í samfélaginu birtist allstaðar og lélegar vísisfréttir eru varla staðurinn til að hefja baráttu gegn því.

Um leið og Stöð 2 er á fullu að fækka fólki undrar maður sig á því að fréttastjórinn haldi vinnunni. Vonandi var þetta bara slæmur dagur hjá honum en er ekki lýsandi fyrir hæfni mannsins.

Hið meinta hrun moggabloggsins

Hatur DV á Moggabloginu er ótrúlegt, skipti eftir skipti hafa þeir komið með upplýsingar um meint hrun bloggsins og fjallað um flótta bloggara.

Án efa er það áhyggjuefni þegar heilu hóparnir af bloggurum ákveða að yfirgefa bloggið. Hins vegar er það spurning hvers virði þessir “stjörnubloggarar” eru. Eitt af skilyrðum þess að verða stjörnubloggari hjá DV virðist vera að yfirgefa moggabloggið.

Á sama tíma eru þúsundir minni bloggara sem halda áfram að blogga þarna og þar eins og annars staðar eru molar brauð. Þótt það séu höggin skörð í hópinn koma nýir í staðin og með þúsundum minni bloggara, hefur það líklega ekki úrslita áhrif hvort nokkrir stórir hverfi.

Það fylgja því ákveðnir kostir að vera hluti af samfélagi eins og hjá moggablogginu og margir þeirra sem nú hafa ákveðið að yfirgefa bloggið og skrifa á eigin vegum eiga eftir að komast að því að það er ansi margt gott við moggabloggið. Kostir sem ekkert annað bloggsamfélag getur boðið upp á.

Í gær gerði dv.is sér aftur að umtalsefni hið meinta hrun heimsókna inn á moggabloggið. Þar bera þeir saman annars vegar þá viku sem mest var sótt (eða um 10% meira en í vikunni á undan og vikunni á eftir) og svo seinustu viku. Þeir komast að því með þessum samanburði að það hafi orðið hrun (heildar “hrunið” er sem sagt um 16% þegar þessar tvær vikur eru skoðaðar). Raun minnkun á milli vikna er hins vegar 3,4% og heimsóknir eru yfir meðaltali seinustu 17 vikna. Þetta eru því bara eðlilegar sveiflur á milli vikna og eru ekki sérstakar vísbendingar um hrun.

Sannleikurinn hefur aldrei neitt sérstaklega verið að þvælast fyrir DV-mönnum og góð saga er sannleikanum betri.

Hugmyndaþing borgarinnar

Mætti á hugmyndaþing borgarinnar í gær. Var nokkuð sáttur, þótt mér hafi þótt kynningin að nokkru leiti villandi. Ég var ekki viss um að nenna að fara þegar ég sá að þetta virtust fyrst og fremst vera fyrirlestar.

Það kom reyndar vel fram að það yrðu vinnustofur en hins vegar var töluverð áhersla lögð á fyrirlestrana og dagskráin á þeim var þétt. Ég gat því ekki betur séð en að vinnustofurnar færu fram eftir að fyrirlestrunum væri lokið (sem sagt um klukkustund).

Á endanum var þetta keyrt samhliða og var nokkuð áhugavert.

Ég hefði reyndar viljað sjá meiri vinnu með hugmyndirnar. Það komu yfir 1000 hugmyndir ef því sem ég hef séð eftir þingið, hins vegar væri gaman að vinna frekar með þessar hugmyndir og útfærslur. Eins og þetta var sett upp var bara hver og einn að setja inn sínar hugmyndir á töflur. Maður gat svo sem skoðað hugmyndirnar en maður hefði viljað getað unnið áfram með þær.

Borgin fær samt stórt hrós fyrir þetta. Vonandi að þessi útfærsla verði unninn áfram og við sjáum þetta meira inn í hverfunum.

Rakst annars á þessa skemmtilegu mynd. Dagur var þarna mættur ásamt borgarfulltrúum allra framboða. Það er greinilegt að menn eru að vakna enda styttist í kosningar.

Messufall kemur lítið á óvart

DagurDV.is segir frá því í dag að af um 100 leiksskólastjórum hafi eingöngu 4 mætt á fund hjá Degi B. Eggertssyni þegar hann boðaði alla á fund sinn.

Í sjálfu sér þarf það ekki að koma á óvart að það hafi ekki verið
meiri aðsókn á fundi Dags og segir líklega meira en margt annað um störf Dags í borginni. Á sama tíma og hann hefur þegið full laun hjá borginni fyrir störf sín hefur áherslan verið á önnur störf en meðal annars sem varaformaður Samfylkingarinnar. Það þarf engum að koma á óvart að það starf taki töluvert tíma

Þannig væri fróðlegt að skoða hvernig hann sótti nefndir og fundi
stjórna sem hann situr í (og þyggur laun fyrir) í vor á meðan á
alþingiskosningunum stóð.

Fyrir vikið hefur Dagur oft komið illa út, þar sem hann hefur farið mikinn með mál sem hafa verið gjörsamlega úr lausu loftið gripin og farið með inn á fundi og í fjölmiðla.

Dagur er klár strákur og á án efa framtíðina fyrir sér í pólitík, en
hann ætti að láta þetta verða sér lexíu og sinna betur þeim störfum
sem hann tekur að sér. Taka minna að sér og sinna því vel.

Ósamræmi í úthlutunarreglum LÍN

Menntamálaráðherra barðist lengi fyrir auknu jafnræði hjá LÍN, en nú hefur reglum verið breytt í þver öfuga átt.

Það verður ekki af þessari stofnun skafið. Ég er nokkuð viss um að starfsmenn fangelsisstofnunnar koma fram við sína umbjóðendur af sambærilegri virðingu enda virðast báðar stofnanirnar helst telja sig díla við glæpamenn. Í þau fáu skipti sem ég hef átt viðskipti við LÍN hefur viðhorfið alltaf verið að ég sé að reyna að misnota mér aðstöðu mína á einhvern hátt.

Ég man eftir ótrúlega mörgum dæmum í gegnum tíðina, þar sem fólk var hankað á einföldum smáatriðum svo það fengi örugglega ekki fengið lán, ég man að ég gafst sjálfur upp þegar ég var úti í námi vegna þess að anna kerfið hentaði ekki mjög vel að þjónustufulltrúanum en í Svíþjóð voru 4 annir yfir árið og sum námskeið náði yfir 2 -3 annir. Ég hef heyrt af læknanemum sem hafa staðið í ströngu vegna þess að verklega námið þeirra hentar ekki að fulltrúunum og svo mætti lengi telja.

Nú var ég að rekast á enn eitt dæmi þess að þessi stofnun virðist vísvitandi reyna að hindra lán til einstaklinga. En með nýjum breytingum þá er ekki hægt að lána öðru námi en námi sem er skipulagt sem 60 ECTS:

Heimilt er að veita einungis skólagjaldalán til náms sem ekki er skipulagt sem 60 ECTS-eininga nám á skólaárinu, sbr. 2. m.gr.

Hverjar skildu vera ástæður fyrir þessu? Víða erlendis eru í boðið fjölmörg form af námi, en á sínum tíma byrjaði Háskóli Íslands með diploma nám, sem var nám í 3 annir og var sérstaklega í greinum þar sem fólk stoppaði stutt við á þeim tíma, það er tölvunarfræði og viðskiptafræði. Þessu námi hefði ekki verið veitt lán. Í hefur Háskólinn boðið upp á nám sem er kennt seinnipartinn og mögulegt er að taka með vinnu. Til dæmis býður Háskólinn í dag eingöngu upp á meistaranám í endurskoðun með þessu fyrirkomulagi. Þetta nám fær heldur ekki styrk.

Til samanburðar, þá samkvæmt reglum LÍN mætti einstaklingur skrá sig í meistaranám í mannauðsstjórnun sem er eining meistaranám í viðskiptafræði og taka eingöngu 45 ECTS á ári og samt fá lán, bara vegna þess að námið er skipulagt sem fullt nám.

Það vekur athygli að þessar breytingar eru nýjar og það skuli vera núverandi stjórn sjóðsins og menntamálaráðherra sem hefur hvað lengst barist fyrir því sem hefur verið kallað jafnrétti til náms skuli með þessu standa á óskiljanlega hátt gegn þessari hugsjón sinni.

Ég hef nú þegar sent á þá fáu stjórnarmenn sem ég fann netfangið bréf og óskað eftir að menn leiðrétti þetta enda með ólíkindum að slíkt misræmi sé í úthlutunarreglum sjóðsins. Ég von að menn leiðrétti þetta, enda man ég ekki betur en að Gunnar I. Birgissyni og félögum hafi verið mokað úr sjóðnum til að draga úr óréttlætinu en ekki auka á það.

Ræðumenn á þingi

Því miður vantaði upp á ræðumennskuna í kvöldÖgmundur (sem er nb. skemmtilegri ræðumaður en pólitíkus) sagði að Sigmundur hefði verð besti ræðumaður kvöldsins. Því var ég sammála, þóg hugsanlega af örðum ástæðum. Ýmsir hafa kallað þetta skjallbandalag, það væri fróðlegt bandalag ef það yrði af veruleika.

Ólíkt flestum þeim sem tóku þátt í ræðum kvöldins, þá hafði Sigmundur húmor og gat stautað sig í gegnum ræðublaðið án þess að horfa stöðugt á blaðið eða stama vegna þess að hann vissi ekki hvað hann átti að segja næst. Við í jci reynum að halda okkur frá málefnunum sjálfum þegar við erum að dæma, og þar erum við Ögmundur hugsanlega ósammála en samt niðurstaðan sú sama Sigmundur var bestur.

Ég horfði á stærstan hluta af umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra og get ekki sagt að ég hafi verið hrifinn. Ég eiginlega gafst upp á endanum.

Ég hef tekið þátt í að dæma ræðumenn, þar á meðal seinast þegar Birkir Jón varð fyrir valinu þegar JCI valid ræðumann Alþingis. Eins og þá var ég nánast þeirra skoðunar að það ætti enginn skilið að vera ræðumaður kvöldsins.

Það er ótrúlegt að menn sem eru atvinnustjórnmálamenn (lifa á því að tala til fólks), skuli ekki leggja metnað sinn í að undirbúa ræður sínar almennilega. Það hefur amk. greinilega gleymst að segja þessu ágætu ræðumönnum að það er ekki bara efnið sem skiptir máli heldur líka flutningurinn.

Svo var líka í kvöld eins og oft áður.

Katrín Jakobsdóttir kom næst á eftir Sigmundi. Þrátt fyrir að hafa algjörlega misst af því tækifæri að ná til kjósenda með því að horfa til þeirra þegar hún flutti ræðuna sína, þá var flutningurinn alla veganna í lagi.

Ég hef verið alllengi baráttumaður fyrir því að ungliðahreyfingar taki upp samstarf um að bjóða upp á almennilegar kappræður. Því miður hef ég hvorki ítök né áhrif á til að bæta þessa þætti en hef þó eins gert eins mikið og hægt er innan míns eigin flokks til að bæta ræðumennskuna.

Sem fyrr er ég boðinn og búinn að bæta ræðumennskuna og ef einhver vill reyna að taka þátt í þessu áhugamáli mínu, hverra flokka sem viðkomandi er, þá er ég tilbúinn að hjálpa við að bjarga þessu annars ágæta kvöldi með leiðbeiningum og aðstoð.

WordPress Themes