Farið hefur fé betra

„Komdu bara á blaðamannafundinn, þá kemstu að því,“ sagði Þór Saari við blaðamann DV.is

Þetta fólk er ágætt og þess verður minnst. Það þarf ekki að hafa áhyggjur af því. Það verður reyndar ekki fyrir störf sín á Alþingi, mér finnst mér mjög ólíklegt. Heldur fyrir að hafa eyðilegt merkilegt grasrótarframboð og séð til þess að fjórflokkararnir muni endalega festast í sessi.

Úr þessu skiptir engu máli hvort Þór og félagar starfi innan Borgarahreyfignarinnar eða utan hennar. Þau eru búin að eyðileggja hreyfinguna og eyðileggja möguleika sambærilegra framboða.

Ég skil því blaðamann DV að nenna ekki að mæta á blaðamannafundinn hans Þórs. Þau eru bara að spila einhvern PR leik og blóðmjólka fréttina.

Hver sendir annars tilkynninginu um að þau ætli að ákveða eitthvað á morgun.

Tengslanet, klíkuskapur og hið nýja Ísland

Klíkuráðningar

Í gær birtist áhugaverð “frétt” á Eyjunni, þar sem rætt var um tengslanetanámskeið Andrésar Jónssonar. Fullyrt var að eingöngu 20% af ráðningum kæmu í gegnum auglýsingar. Sjálfur hef ég nú kynnt mér þetta ágætlega (enda haldið svipuð tengslanetanámskeið á vegum JCI) en held að það sé mun hærra hlutfall sem er auglýst en þarna er gefið til kynna.

Andrés þarf auðvitað að selja námskeið og almannatengillinn veit að það er betra að slá upp sjokkerandi tölu til að ná athygli.

Ég hef reyndar séð 20% töluna í bók sem ég las um tengslanetaráðningar, en sú tala innihélt þá bæði störf sem eru auglýst en endanleg ráðning er þó í gegnum tengslanet og hins vegar störf sem eru aldrei auglýst. Yfirleitt hefur þessi tala þó verið mun hærri eða milli 50-60% af ráðningum séu í gegnum tengslanet. Það skal taka skýrt fram að þetta er mjög misjafnt á milli landa og atvinnugeira. Mér vitanlega hefur þetta aldrei verið rannsakað í stórri ransókn á Íslandi.

Í raun eru ráðningar í gegnum tengslanet mjög skiljanlegar ráðningar. Með ráðningu í gegnum tengslanet er verið að ráða einstakling sem meira er vitað um heldur en einstakling sem kemur af beint götunni.

Í umræðunni sem fór fram eftir fréttina var mikið rætt um klíkuskap og menn settu samansem merki við klíkuráðningum og ráðningum í gegnum tengslanet. Það er í raun mikilvægt að gera greinarmun á þessu tvennu. Tengslanetaráðningar byggjast á að í gegnum tengslanet eru menn að lágmarka hið óþekkta og auka líkur á að viðkomandi sé einstaklingur sem henti og ráði við starfið. Ráðningar í gegnum klíku eru hins vegar eingöngu vegna þess að viðkomandi þekkir rétta aðila óháð getu einstaklingsins.

Klíkuráðningar hafa því miður verið landlægt vandamál á Íslandi. Augljóslega afleiðing er að fyrirtæki og stofnanir eru fullar af fólki sem á alls ekki heima í þeim störfum sem viðkomandi starfa við.

Í dag tala menn fjálglega um hið nýja Ísland. Þar hefur verið rætt um að draga úr (stöðva) klíkuskap. Því miður eru litlar líkur á að slíkt náist og líklegt að þvert á móti muni klíkuskapur aukast. Á tímum þegar mikið framboð er af góðum vinnum er minni hvati til þess að nota sér klíku til þess að finna vinnu en aftur á móti tímum eins og núna þegar mikið atvinnuleysi ríkir og mjög erfitt er að finna góða vinnu reyna menn ýmislegt til að koma sér og sínum í góða vinnu. Um leið eykst þrýstingur á þá sem eru í aðstöðu til að ráða í stöður til þess að hjálpa fólki sem er þeim nákomið til að fá góð störf.

Núverandi ríkisstjórn fer í fararbroddi í þessu og ræður blygðunarlaust vini og velunnara. Það er eiginlega ótrúlegt að á tímum “Nýja Íslands” sé okkur boðið upp á að nánast allar atvinnuráðningar sem fá einhverja umfjöllun í fjölmiðlum séu flokksgæðingar, vinir eða fjölskyldumeðlimir einhvers úr Ríkisstjórninni.

Ég skildi því ágætlega þá sem skrifuðu um í klíkuskap í athugasemdum við fréttinni á Eyjunni.

betrifrettir.is

Ég er mjög ánægður með Betrifréttir hjá jci.is.

Ég hef aðeins fylgst með þessu verkefni og eins og ástandið er núna er virkilga þörf á því að fjá inn jákvæðar fréttir.

Eins og upptekinn og ég hef verið undanfarið hef ég því miður ekkert getað aðstoðað eða fylgst með framgangingum. Þangað til í dag þegar ég fór að skoða þetta og þetta kemur mjög vel út hjá þeim.

Borgarahreyfingin birtir netföng allra félaga sinna!

Deilan innan Borgarahreyfingarinnar verður alltaf sérstakari og sérstakari.  Ég hafði alltaf hugsað mér að skrifa um hana, en málið hefur kannski verið að á hverjum einasta degi hefur deilan orðin spaugilegri.   Það merkilega við þessa deilu að hún er ólík öllum öðrum deilum innan íslenskra stjórnmálaafla.  Hún fer fram fyrir opnum tjöldum og að miklu leiti á bloggsíðum félagsmanna hreyfingarinnar.  Sjaldan hefur maður séð deilu sem hefur verið jafn rætin og það sem er í gangi innan hreyfingarinnar um þessar mundir. Þessar deilur þýða væntanlega að áhugi fólks á stjórnmálum mun dala enn þá meira, ég veit um marga sem bundu miklar vonir við að Borgarahreyfingin myndi breyta stjórnmálum á Íslandi. Það er líklega langt þangað til framboð líkt og Borgarahreyfingin mun ná árangri á Íslandi eftir þessar mjög rætnu deilur.

Einn angi deilunnar hefur verið hvernig smölun fór fram á aðalfund þeirra.  Því miður virðast fáir kunna á tölvupóst innan hreyfingarinnar.  Ekki er langt síðan þingmaður hreyfingarinnar sendi óvart á stóra póstlista vangaveltur sem áttu að fara á einn, nú hefur komið í ljós að einn nýkjörinna stjórnarmanna var skráður sem annar höfunda tölvupósts sem var sendur á alla félagsmenn þannig að allur gátu séð hverjir fengu póstinn (öll netföngin voru sett í cc).

Það sem meira er, sá listi hefur nú verið birtur á heimasíðu flokksins!

Hvernig ætli meðlimum hreyfingarinnar líki við að netfang þeirra sé birt á heimasíðu hennar?

borgara
Netfangaskrá XO í boði Ingibjargar Rögnu Skúladóttur !
september 13th, 2009 Engin svör

Ritskoðun hafinn hjá “miðstjórn” BH athugasemd mín var fjarlægð ekkert rætið bara staðreynd sem “hentaði” ekki !

ég gagnríndi á heima síðu www.xo.is að NETFÖNG allra skráðra meðlima vonu send til ca 600 annara meðlima ! Fyrst vildi Heiða B (2 sæti í stjórn núverandi stjórnar Heiða B. Heiðars)ekki kannst við neitt ! svo játaði Ingibjörg (7 sæti núverandi stjórnar Ingifríður Ragna Skúladóttir) að hafa sent póstinn og “falsað” nafn Heiðu undir !

sólahringur ekki liðinn og ALLRÆÐISTIBURÐINNIR sem tillagan sem samþykkt var leggur grunninn að strax hafnir ! þetta minnir mig óneitanlega á viðbrögð þeirra tveggja eftir að Einkabréf barst óvart í þeirra Email, og Heiða kaus að birta alþjóð á sínu bloggi ! þar var krafist afsagnar ákveðinnar manneskju ! ég ég spyr hvað með ábyrgð stjórnarmanneskju sem opinberar svona TRÚNAÐARMÁL !

fyrst eru mistök sennilega vegna kunnáttuleisis ! svo loksins núna í dag segir hún HEIÐU að hún hafi FALSAÐ hennar nafn í undiskrit í Félagsfundarboði (þetta er sama kona og “passaði” kosninngatölvurnar á landsfundi !

svar hennar á spjallþræði hreyfingarinnar ! http://www.borgarahreyfingin.is/2009/09/12/ni%c3%b0ursto%c3%b0ur-i-stjornarkjori-a-landsfundi-borgarahreyfingarinnar-nu-undir-kvoldi%c3%b0-ur%c3%b0u-sem-her-segir/

Ingifríður 13. september 2009 kl. 14.46
Andri. Heiða sendi ekki þennan póst, það var ég. Ef ég hef sett póstlistann í cc í bcc, þá voru það mistök. Ég hef séð um að senda út fjöldapóst fyrir hreyfinguna í allt sumar. Reglan er sú að viðtakandi er info@borgarahreyfingin.is, en nefföng félagsmanna sett í Bcc. Ef þetta er rétt (hef ekki skoðað póstinn hjá mér) þá er það alfarið mér að kenna, en um mistök að ræða.

hér er svo pósturinn sem um ræðir !

Félagsfundur: Sala OR á HS-orku‏
From: Borgarahreyfingin (info@borgarahreyfingin.is)
Sent: Wed 9/02/09 4:39 PM
Kæru félagar.

Haldinn verður félagsfundur að venju, á morgun fimmtudaginn 3.09.2009 kl.
20:00 að Tryggvagötu 17. Þema fundarins að þessu sinni er sala Orkuveitu
Reykjavíkur á hlut sínum í HS-orku.

Dagskrá:
1. Kosinn fundarstjóri og ritari
2. Sala OR á HS-orku
3. Önnur mál

Gestir fundarins verða: Agnar Kristján Þorsteinsson og Lára Hanna
Einarsdóttir (ef hún mögulega kemst)

Með von um að sjá sem flesta til að ræða þetta mikilvæga mál.

F.h. Borgarahreyfingarinnar,
Heiða B. Heiðars
Ingifríður R. Skúladóttir

Bloggáttin

Uppfært
Fékk rétt í þessu símtal frá Valgeir Skagfjörð, formanni hreyfingarinnar, þar sem hann óskaði eftir því að ég fjarlægði listann. Ég hef kannað að færslan hefur verið fjarlægð af heimasíðu hreyfingarinnar og ekki ætla ég að standa fyrir því að auglýsa stjórnmálaskoðanir fólks, sem ekki vill birta þær upplýsingar. Því er það ljúft að fjarlægja þennan lista af blogginu mínu.

WordPress Themes