Hámark ósvífninnar

Svona á meðan ég reyni að detta ekki í fullkomna fýlu með restinni af þjóðinni sit ég og velti fyrir mér hvað hámark ósvífninnar er þessa vikuna.  Orðið á götunni segir það vera tilboð starfsmanna Straums að endurheimta eignir bankans fyrir milljarða bónus (skil ekki að forstjórinn sé enn þá starfandi eftir þetta og það fyrir 4 milljónir á mánuði), Mega vika Magnúsar (sorry, ágæti almannatengill Landsbankans, fólk nennir ekki að heyra um veðrétti, fólk vill sjá aðgerðir), eða Hreiða Már í Kastljósinu (var hann stressaður eða hvað er málið með hann?).

Hreindýr á Vestfirði

Fékk áhugaverða sendingu í dag, þegar ég var beðinn um að fara í hóp á Facebook sem vildi hreindýr á Vestfirði. Mig minnti að ég hefði einhverntíman lært í sögu að hreindýr hefðu verið á Vestfjörðum (alla vegana á hefðu verið gerðar tilraunir með að setja hreindýr á fleiri staði en það ekki gengið upp.
Ég notaði google og leitað að upplýsingum um málið og fann nokkuð áhugaverða grein um sögu hreindýra á Íslandi. Ég hafði rangt fyrir mér varðandi Vestfirði, það virðist aldrei hafa verið reynt en hins bæði fyrir Norðan og á Reykjanesi. Ég hélt að þau hefðu verið í mun minni tíma á fleiri stöðum, en bæði fyrir Norðan og á Reykjanesi sást til þeirra þangað til á fjórða áratug seinustu aldar.

WordPress Themes