Skrýtið að maður sem hatast hefur verið Bónus í mörg ár, eigi nú allt í einu leiði um búðina og það án þess að vera að versla. Hann virðist bara hafa verið á röltinu og endað í búðinni sem hann hatar. Þetta ber hann alla vega á borð í Vísi í dag:
Jón Gerald þvertekur fyrir það hafa verið að njósna. „Ég var bara að ganga í gegnum búðina. Ég var búinn að vera þarna í fimm til tíu mínútur þegar mér var vísað út,” segir Jón.
Af hverju segir Jón bara ekki það sem hann var að gera, að hann hafi verið að njósna?
Jói í Bónus var heldur ekkert hissa á að honum hafi verið vísað á dyr. Skildi Jói ekki ætla að senda njósnarana sína í þessa nýju verslun Jóns? Ætli Jói megi einn njósna en aðrir ekki?
Það er nokkuð merkilegt að auglýsa vöru sem er ekki til og hefur aldrei verið til.
Mann annars nokkur eftir því að hafa séð Grolsh léttöl sel í búðum hér á landi? Nú finnst mér þessi bjór ágætur og myndi án efa fjárfesta í léttöli ef það væri til í búðum. Það hefur bara aldrei sést.
Samt er þessi vara auglýst á fullu.
Auðvitað vita allir að það er verið að auglýsa áfengan bjór en ekki léttöl. Fíflagangurinn virðist vera að það sé hægt að setja lítil texta í eitt horn, sem varla sést og málið er leyst.
Væri nú ekki nær að auka virðingu okkar með fyrir lögum landsins með því að annað hvort virkja þessi lög og framfylgja þeim eða henda þeim á haugana. Það fer hvort sem er enginn eftir þeim.
Pressan segir frá Manhattan flugvellinum og taka sérstaklega fram að mikið hafi verið lagt í heimasíðuna.
Mikið hefur verið lagt í hana og sett hefur verið upp vel uppfærð og fagmannleg heimasíða í kringum verkefnið.
Spurningin er kannski hversu fagmannleg síðan er og hversu mikil vinna er lögð í hana. Það má svo sem segja að 3D myndirnar sem sýna flugbrautirnar hafi krafist nokkurar vinnu.
Heimasíðan sjálf er meira spurningarmerki og sýnir kannski frekar hvað það er auðvelt að koma sér upp fagmannlega útlítandi síðu á nokkrum mínum. Þeir nota Wordpress kerfið (líkt og flestir Eyjubloggararnir. Næsta sem þeir nota er vefútlit sem er tilbúið og hægt að finna hérna og heitir Arthemia.
Wordpress vefumsjónarkerfið er orðið ótrúlega öflugt og með þúsundir af notendum og aðilum sem eru bæði að þróa útlit og íbætur er hægt að koma sér upp heimasíðu sem lítur vel út. Fyrir þá sem hafa áhuga á íslenskri útgáfu er meira að segja hægt að sækja þýðingu hérna.
Undanfarið hefur töluvert verið rætt um hagnað og veltu Twitter og Facebook á netinu, en Facebook stefnir að því að vera með 500 milljónir dollara í tekjur á þessu ári. Tekjur sem þrátt fyrir að líta út fyrir að vera verulegar eru í raun eingöngu um 2 dollara á hvern notenda. Gefið hversu mikinn tíma hver og einn ver á vefnum, og hversu miklu þarf á móti að kosta til í vélbúnaði, þróun og svo framvegis er í raun mjög ólíklegt að mínu mati að Facebook sé hagnast mjög mikið á þessu.
Ekkert hefur verið gefið upp um tekjur Twitter, enda er sú tala reyndar örugglega nálægt núlli. Þeir hafa sagt að þeir ætli ekki að auglýsa neitt á síðunni, sem gerir það að verkum að maður hefur ekki enn séð út hvernig þeir ætla að fjármagna vefinn sinn.
É g er reyndar mjög svartsýnn um framtíð Twitter, um 90% af færslum hjá Twitter eru búnar til af 10% notendum og flestir notendur er með eina færslu á dag eða færri. Rosalega hátt hlutfall Twitter notenda koma bara einu sinni inn á vefinn og svo aldrei aftur. Margir sem hafa farið inn á vefinn skilja alls ekki út á hvað hann gengur.
Annað áhyggjuefni er að um leið og vefurinn er mjög opinn og mun opnari fyrir utanaðkomandi tengingu en t.d. Facebook. Í sjálfu sér er það hluti af því hversu vel hefur gengið hjá Twitter, með hjálp utanaðkomandi tóla sem hafa gert það að verkum að hægt er að nota Twitter eftir ótrúlega mörgum leiðum. Vandamál þess hversu opinn Twitter er, hefur hins vegar gert það að verkum að spam hefur aukist gríðarlega. Það kom eiginlega á óvart að það tók ekki nema 10 mínútur að stofna nýjan reikning á Twitter, setja upp kóða sem loggaði sig inn á Twitter og sendi reglulega skilaboð. Það þarf ekki að taka það fram að þessir reikningar spretta núna upp eins og gorkúlur.
Svo er það auðvitað spurning um Myspace, vefinn sem ég hef aldrei komist upp á lag með að nota. Nú er búið að segja upp 30% starfsmanna. Síðan sem fyrst var vinsæl, en hefur síðan tapað flugi. Eitthvað sem facebook ætti að taka til sín, jafnvel með þá stöðu sem þeir eru með í dag er ekkert sem segir ekki að það þurfi að vera um alla eilífð. Þeir hafa samt hagað sér þannig, sem er mjög hættulegt. Það getur vel verið að þetta er staður og stund núna, en um leið og menn finna eitthvað betra fara menn, eins og gömlu notendur Myspace.