Twitter

Twitter er nýjasta æðið og nú þegar eru mörg þúsund Íslendingar á Twitter. Ólíkt t.d. facebook er mjög erfitt að átta sig á fjöldanum.

Einhverra hluta vegna hef ég undanfarið fært mig meira yfir á þessar netsíður frekar en að blogga. Það eru svo sem engar sérstakar ástæður en pirringur og annað sem ég er vanur að tjá mig á blogginu hefur fengið útrás á twitter og facebook.

Í fyrstu verð ég að viðurkenna að ég skildi ekki twitter og fannst það ekki sérstaklega sniðugt tæki. Eina ástæðan fyrir því að ég notaði twitterinn var tenging við Facebook. Fyrst allir voru á twitter var alveg eins gott að nota twitterinn til að uppfæra facebook og vera á báðum stöðum.

Undanfarið hefur álit mitt breyst og í dag nota ég twitter mun meira en facebook.

Á Twitter eru ýmis tækifæri og undanfarið hef ég verið að undirbúa lítið námskeið sem ég ætla að halda fyrir JCI um kosti tengslasíðna (er í alvörunni ekki til betra orð fyrir social networking?). Eins og áður þegar ég hef haldið námskeið um þetta.

Í kjölfarið hef ég haldið áfram að skoða kosti og galla þessara vefja sem markaðstækis, og gert ýmsar tilraunir.

Eftir þessa skoðun skil ég ekki hvað íslensk fyrirtæki eru lítið að nota þessa miðla. Sérstaklega fyrirtæki sem eru að rena að ná í ákveðan aldurshópa. Mörg þeirra eru með viðveru á þessum síðum, en sú viðvera er svo lítil og léleg að þeim væri farsælast að sleppa henni.

Maður sér nokkra aðilar sem hafa verið ótrúlega duglegir að tileinka sér þessa miðla, t.d. hefur Andrés Jónsson nýtt sér twitter og facebook til þess að afla lestur á blogginu sínu. Ég veit ekki hvort þetta er sjálfvirkt (en það er mjög einfalt), svo Egill Harðar, sem ég þekki engin önnur deili á en í gegnum twitter.

WordPress Themes