Að kasta skyri eða orðum

Það er nokkuð fyndið þegar vinstrimenn væla undan því að einhverjir hópar sem þeir telja vera tengda sjálfstæðisflokkum eru með nafnlausar árásir, þegar hópur sem er tengdur VG ræðst inn á kosningaskrifstofur hinna flokkanna með ofbeldi.

Ekki hæfileiki til að opna bækling?

Smugan var með mikla ,,uppljóstrun” í dag, þegar þeir fullyrtu að Guðlaugur Þór væri hvergi að sjá í bæklingi Sjálfstæðisflokksins (en hann hefði verið þar áður). Þegar betur er að gáð kemur í ljós að þeir virðast ekki hafa hæfileika til þess einu sinni að opna bæklinginn. Guðlaugur Þór er þar ásamt Kristjáni.

Fyrir þá sem vilja sjá allan bæklinginn er hann að finna hérna

Nýr vefur Samfylkingarinnar

Það er margt sem vekur athygli á nýrri heimasíðu Samfylkingarinnar, Samfylkingin.is

Mér hefur fundist Samfylkingin standa sig vel á netinu og oftast betur en eigin flokkur. Mér finnst hins vegar nýja heimasíðan mjög ruglingsleg og ekki mjög flott. Efri hlutinn er ágætlega skýr en svo er eitthvað box þarna í miðjunni sem heitir kjördæmi sem er bara á hálfri síðunni, þessi bloggaratenging er frekar döpur.

Það kemur á óvart að Samfylkingin hafi ekki fundið hýsingarfyrirtæki á Íslandi sem þeir treysta til þess að hýsa síðuna. Sérstakt að treysta á erlent niðurhal til að sækja síðu um íslenskan stjórnmálaflokk.

Annað sem kemur á óvart er að síðan skuli vera gerð með útliti sem þúsundir af síðum byggja á. Hægt er að kaupa útlitið fyrir 100$ en síðan hefur því verið breytt lítillega fyrir Samfylkinguna. Það er nokkuð sérstakt hjá Samfylkingunni að fara þessa leið. Maður hefði haldið að það væri meiri metnaður en að vera sett í kassa og kaupa útlit sem er tiltölulega lítið hægt að vinna með.

Stóran plús fær þó samfylkingin fyrir að nota “open source” lausn, það er auðvitað ákveðið hugrekki að fara í lausn sem er ekki studd af stóru hugbúnaðarfyrirtæki með þær lausnir sem flokkurinn þarf.

Hrósið í vefsíðumálum fær Borgarahreyfingin, þeir fara svipaða lausn og Samfylkingin með “open source” lausn, það er wordpress sem er sama kerfi og Potturinn er keyrður á, sem og Eyjan. Þeir nota svo einnig “open source” útlit, sem ólíkt samfylkinginnu er svo breytt að það er alveg óþekkjanlegt. Ég get reyndar ekki séð í þeirra annars mjög svo opna bókhaldi að þeir hafi keypt lénið sitt eða borgað 1984 fyrir hýsinguna. Svo væri örugglega sniðugt fyrir þá að sækja þýðingu á wordpress hjá Binna. Þá myndi amk. losna við viðburði sem eiga að vera haldnir á “Mon, 20. Apr:”, heldur Mánudaginn og svo framvegis.

WordPress Themes