Prófkjörskerfi Samfylkingarinnar í Reykjavík

Þessa dagana eru á flakki æðislegar kenningar um að gögnum hafi verið stolið frá Samfylkingunni. Hreint og beint æðislegar.

Þessar skemmtilegu sögur eru örugglega upprunar frá einhverjum spindoktor Samfylkingarinnar, þetta eru betri sögur til þess að almenningur smjatti á en sú að Samfylkingin skildi þetta eftir opið. Það er betra að ræða um spillingu Sjálfstæðisflokksins en aulaskap Samfylkingarinnar. Þetta er nefnilega algjör aulaskapur. Hvernig er hægt að klúðra jafn mikilvægum hlut? Var kerfið ekkert prófað?

Nú veit ég ekki hvernig Fylkingin stóð að þessu og frétti bara af þessu eftir á, en kerfið hlýtur að hafa skráð í fyrsta lagi notendur sem skráðu sig inn í kerfið (og þar með kennitölur viðkomandi) og í öðru lagi frá hvaða ip-tölu þeir komu. Þeim ætti því að vera mjög hægur heimaleikurinn að sækja þann sem sótti 300.000 kennitölur frá þeim. Það ætti líka að hafa hringt einhverjum viðvörunarbjöllum ef sami notandinn fletti upp 50 kennitölum á sekúndu (eins og sagt hefur verið að hafi verið gert). Miðað við þennan hraða hefðu allir sem kusu í prófkjörinu getað kosið rúmlega mínútu!

Spurningin er líka afhverju því hefur ekki verið lýst yfir að enginn hafi sótt þessar upplýsingar eða staðfest að einhvern hafi gert það. Geta þeir hugsanlega ekki svarað því? Ef kerfið er þá ekki betur hannað en þetta, þá er spurningin væntanlega hvort eitthvað annað hafi verið mis í kerfinu. Geta frambjóðendur treyst niðurstöðum prófkjörsins?

Vangaveltur um niðurstöður prófkjörsins

Ætla ekki mikið að tjá mig um niðurstöður prófkjörsins í Reykjavík, fyrr uppstilling er endanlega lokið. Auðvitað er ýmislegt sem maður hefði viljað sjá öðruvísi en það er aldrei svo að neinn sé fullkomlega hamingjusamur (og sumir eru langt frá því að vera hamingjusamir).

Í sjálfu sér hefði ég viljað sjá meiri dreifingu á prófkjörstímum, það hefði verið skemmtilegra að gefa sér aðeins meiri tíma til þess að spá í niðurstöðurnar á hverjum stað en núna koma þetta allt í einu skoti og maður hafði einhvern veginn ekki mikinn tíma til þess að spá í hverja á eina. Ég hef verið að renna yfir hin prófkjörin í morgun og skoða niðurstöðurnar.

Líklega er það sem kom mest á óvart niðurstaðan í Kraganum, þar geldur varaformaður flokksins afhroð. Frá því hún var með miklar yfirlýsingar eftir að ákveðið hafði verið að halda prófkjör í kjördæminu og þær niðurstöður sem liggja fyrir þá kemur þetta mjög á óvart. Hún fær verri kosningu í fyrsta sætið en Guðlaugur Þór fékk í Reykjavík. Þó voru höfð ýmis orð um árangurs Guðlaugs í Reykjavík, en ég hef lítið heyrt um þessa niðurstöðu í Kraganum.

Sá listi sem ég er ánægðastur með er listinn í Suður, þar sem varð töluverð endurnýjun á fólki en samt með flottum einstaklingum. Auðvitað hefði maður viljað sumt öðruvísi, ég hefði t.d. ekki grátið það þótti Árni hefði lent aðeins neðar.

Áhugaverð síða

Ég er nokkuð ánægður með að sjá nýju síðu sjálfstæðisflokksins, það er síðan prófkjör.is. Maður er í fyrsta skipti að sjá marga frambjóðendur sem lítið hefur sést til hingað til. Frambjóðendur hafa greinilega verið misduglegir við að setja inn upplýsingar um sjálfa sig.

Lyfseðlar

Alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Í dag lærði að það er til hugtak lyfseðlar, þar sem frambjóðendar koma með lista með ákveðnum aðilum sem þeir vilja að stuðningsmenn kjósi fremur en aðra. Sjálfur hef ég aldrei verið svo frægur að mæta með einn slíkan en þegar hef ég verið að vinna á kjördögum á kosningaskrifstofum hef ég stundum séð fólk með svona seðla.

Reyndar held ég að þetta sé sjaldgæfara en menn ætla, frambjóðendur eru yfirleitt fyrst og fremst að koma sjálfum sér á framfæri og hugsanlega einum til tveimur öðrum. Helst hef ég séð þetta þegar frambjóðendur hafa verið að sópa fólki upp úr framhaldsskólum með rútum, sem er reyndar nokkuð sjaldgæft.

Hitt er annað mál að eins og Pétur Tyrfingsson hefur meðal annars komist að þá eru þessu kerfi nokkuð flókin, fólk þarf að velja sér sæti á taktískan máta og svo lenda menn stundum í því að falla langt niður þegar rangt sæti hefur verið valið sem margir vinsælir frambjóðendur eru í.

Stefán Pálsson gerði í dag umtalsefni á heimasíðu sinni fræðslufyrirlestur, þar sem Pawel ætlar að fjalla um þessi kosningakerfi. Hann gerir þetta skemmtilega tortryggilegt og telur að með þessu sé verið að fara að dreifa lyfseðlum. Ég efast einhvern veginn um að slíkt verði raunin og veðja frekar á að spurningum eins og hvort það borgi sig að kjósa þinn frambjóðanda í fyrsta sætið ef hann er að biðja um þriðja borgi sig. Ég hef heyrt hluta af þessum fyrirlestri áður og þá var það raunin.

Fyrir utan það, þá eru lyfseðlar ekki inn í hinu nýja Íslandi.

WordPress Themes