Davíð víkur ekki

Ég sé ekki að bréf Davíðs hafi birtst í neinum fjölmiðlum en það er áhugverð lesning og á án efa eftir að fá nokkra athygli á næstu dögum. Þarna eru ýmsar áhugaverðar ásakanir eins og að bréfið hafi verið skrifað utan ráðuneytis, umfjöllun um prófgráður og svo auðvitað brotthvarf ráðuneytisstjóra.

Bréfið

Þórlindur í framboð

Var mjög ánægður að heyra í Sprengisandi að Þórlindur Kjartansson er á leiðinni í prófkjör í Reykjavík. Það kom ekki fram hvaða sæti hann sækist eftir.

Ég var mjög ánægður að heyra að Þórlindur er að fara fram en ég man fyrst eftir Þórlindi þegar ég var í MR og hann var Inspector. Svo kynntist ég honum þegar ég fór í Háskólann byrjaði að taka þátt í Vöku. Á þeim tíma var ég búinn að taka þátt í starfi Heimdallar í nokkurn tíma, en einhvern veginn var enginn þar sem hafði áhuga á að drífa mig inn í starfið. Um leið og ég gekk inn í Vöku var ég kominn í starf.

Það hefur alltaf verið góður kostur við Þórlind hvað hann hefur verið góður í að drífa fólk áfram, enda þegar við byrjuðum í Vöku á sínum tíma var félagið með 30% atkvæða í Háskólanum en enduðum síðan með 55%.

WordPress Themes