Aukinn áhugi á Facebook á þingi

Það er áhugavert að sjá hvernig þingmönnum á Facebook undanfarnar daga en sumir hafa náð undraverðum árangri á nokkrum dögum með mörg hundruð vini.

Ég hef svo sem ekki fylgst nákvæmlega með þessu, en t.d. hefur skólafélagi minn úr MR hann Ágúst Ólafur verið vinur minn eiginlega síðan ég byrjaði á Facebook. Aðrir sem ég þekki betur hafa ekki látið sjá sig en eru nú að stíga skrefin.

Auðvitað er þetta eitthvað sem aðilar ættu að vera fyrir löngu byrjaðir að nota. Það er spurning hvernig fólk metur það, þegar dagana eftir að prófkjör er ákveðið séu þeir beðnir að vera vinir einhvers sem er á leiðinni í prófkjör?

Kannski ekkert öðruvísi en þegar aðilar sem hafa ekki heilsað manni áður eða í mörg ár eru nú allt í einu mjög kumpánlegir.

Smá stress

Eftirfarandi tilkynning var að berast á póstlista starfsmanna Háskólans:

[Hi-starf] Samskipti og traust í dreifðum verkhópum, fyrirlestur Tómasar Hafliðasonar til meistaraprófs í iðnaðaraverkfræði, miðvikudaginn 4. febrúar, kl. 16:30 í VR-II, stofu 155. ALLIR VELKOMNIR

Smá stress, en um leið fögnuður að maður sé að fara að klára þetta. Stressið magnaðist í gær þegar ég hélt að ég hefði týnt tölvunni minni sem er með öllum nýjustu útreikningunum hefði verið stolið (ritgerðin og það allt er að sjálfsögðu marg bakkað upp á mörgum stöðum).

Skil!

Ég er ekki frá því að vera svona 1 kg léttari eftir að hafa skilað meistararitgerðinni minni af mér í dag. Eitthvað sem ég hefði átt að gera fyrir mörgum árum en kom aldrei í verk fyrr en núna.

Ótrúlegur léttir enda búinn að hafa þetta yfir mér öll þessi ár.

Næsta skref er bara að meistaranefndin sé mér sammála. Það kemur í ljós eftir viku þegar vörnin fer fram.

Dagskráin í kvöld: Horfa á hvað sem RÚV býður mér upp á, án þess að hugsa að ég ætti að vera að gera eitthvað gagnlegra. Nú getur maður slæpts án þess að böggast yfir því að ritgerðin bíði. Þetta er amk. úr mínum höndum.

Kolrangar áherslur

Það var einn rauður þráður í orðum Samfylkingar þingmanna áður en þeir fóru á þingfund áðan. Aðalatriði er að koma Davíð Oddssyni frá völdum.

Er það nema von að menn séu komnir í þessa stöðu ef þetta er aðalatriðið!

Auðvitað á Davíð að fara frá, en það er varla bara Davíð. Það þarf að fara í allsherjar hreingerningu á kerfinu. Hvað sem segja má um störf Davíðs, þá skiptir litlu máli hvort hann verði nokkrum mánuðum lengur eða skemur í stól seðlabankastjóra.

Stóru málin eru heimilin og fyrirtækin, það þarf að koma hjólum atvinnulífsins af stað og það þarf að tryggja að hérna verði ekki fjölda gjaldþrot.

Enginn af þeim þingmönnum Samfylkingarinnar sem rætt var við í morgun nefndi að þetta skipti máli!
Í mínum huga snýst þetta því um völd hjá þeim en ekki raunverulegan áhuga á að laga það ástand sem nú er hér ríkjandi. Ef það væri raunin væri þetta ekki aðalkrafan heldur að fá aðgerðir til að bjarga fólkinu í landinu í núinu.

Að vera skyldur til hliðar

Hvað þýðir á lögfræðimáli að vera skyldir til hliðar? Ég var að leita á netinu og fann engar skýringar á þessu.

Veit einhver hvað þetta þýðir?

Sá er vanhæfur til að birta stefnu sem er aðili að máli, maki aðila eða skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða annan lið til hliðar.

Skyldir menn eða mægðir að feðgatali eða niðja eða hjón, kjörforeldri og kjörbarn, fósturforeldri og fósturbarn eða skyldir að öðrum eða mægðir að fyrsta eða öðrum til hliðar mega ekki samtímis eiga dómarasæti í Hæstarétti.

Fífl Dagsins II

Ég ætla að leyfa mér að birta færslu Önnu Sigrúnar um Fífl dagsins. Ég var búinn að vera að skrifa færslu, þegar ég rakst á þessa færslu. Ég hefði ekki skrifað þetta betur, þótt ég hefði setið við að reyna að skrifa fram á miðja nótt.

Tíðindi af heilsufari Geirs Haarde eru grafalvarleg.

Að hans sögn var honum tilkynnt að æxlið er illkynja á þriðjudag. Daginn eftir var gerður að honum aðsúgur, hann kom fram í fjölmiðlum og sinnti sínu starfi. En andlegt álag á forsætisráðherrann hefur verið gríðarlegt og það veit sá sem allt veit að ekki hefur það haft góð áhrif á hið vaxandi mein. Geir hefur sýnt ótrúlegan andlegan styrk síðustu daga miðað við aðstæður. Margur hefði algerlega bugast.

Öllu hugsandi fólki er ljóst að þessi tíðindi eru grafalvarleg og ljóst að engan tíma má missa í meðferð þessa illkynja meins. Í því ljósi að forsætisráðherra verður fjarri störfum næstu vikur eiga veikindi hans fullt erindi við þjóðina og hann á þakkir skyldar fyrir að tilkynna okkur þetta svo fljótt. Ég ber virðingu fyrir þeim trúnaði sem Geir sýnir samborgurum sínum.

Það gera ekki allir, sbr. Hörð Torfason sem af stjarnfræðilegu gáleysi tjáir sig um málið af vanstillingu og tillitsleysi sbr. þetta; http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/23/haenuskref_i_retta_att/

Þar breyttist “maður ársins” í fífl dagsins.

Ég óska Geir alls hins besta í erfiðri meðfer framundan og, já, bið honum og fjölskyldu hans guðsblessunar.

Hérna er viðtalið af mbl.is.

Frétt dagsins

Ég skil eiginlega ekkert að á þessum gúrku degi í fréttum, hafi stórfrétt dagsins ekki fengið neina umfjöllun :)

Fékk þetta annars sent áðan, en Ögmundur er þarna á vappi bak við Lúðvík í viðtali sem var sýnt í aukafréttatímanum áðan.

Bjartýnsisverðlaun dagsins

Eru án efa til Víkurverks sem hvetur Íslendinga í auglýsingum að ferðast næsta sumar innanlands á græjum sem kosta frá 1,5 – 2 milljónum og upp í 10 milljónir, þegar hægt er að kaupa sér tjald á 20 þúsund og gerir nákvæmlega sama gagn. Held að þessi tæki séu eitthvað mjög svo 2007 að kaupa sér fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla.

Ég er nokkuð viss um að Íslendindingar eiga eftir að ferðast meira um landið sitt á næsta ári, hins vegar eigi menn eftir að fara að ferðast á mun eðlilegri nótum en undanfarin ár. Það er amk. sá ferðamáti sem hefur gangast mér alveg ágætlega og ég að fleiri Íslendingar muni aftur sætta sig við þann ferða máta.

Maður er eiginlega bara hissa að þessir menn séu að auglýsa þessar vörur á fullu, á sama tíma og flestir aðrir sem hafa verið að auglýsa dýrari vörur eru nánast horfnir af markaðnum.

Þeir hljóta fá alla vegna bjartsýnisverðlaun dagsins.

Enn eitt hnútukast Jónasar í garð Eyjunar

Það er magnað hvað Jónasi virðist uppsigað við Eyjuna og bloggara hennar. Ekki nóg með að hann reynir stöðugt að blekkja lesendur um eigin vinsældir, heldur notar hann líka hvert tækifæri sem hann getur til þess að henda hnútum í Eyjuna. Þetta er nánast orðið eins og hjá leikskólabarni sem fær ekki að vera memm.

Jónas kemur líka trekk í trekk með kolrangar upplýsingar, helst til að sýna eigið ágæti og hversu Eyjan er slæm. Í dag kemur hann með fullyrðingar varðandi vinsælustu bloggara landsins. Spurningin er hins vegar á hvaða forsendum gerir hann það? Veit hann eitthvað um vinsælustu bloggara landsins? Án þess að Jónas hafi nokkra hugmynd gæti það verið 15 ára stelpa á Bolungar, sem Jónas hefur aldrei heyrt um, en er mjög vinsæl hjá ákveðnum aldurshóp. Það er bara ekki til neinn einasti listi um vinsælustu bloggara landsins. Hann getur því ekkert fullyrt um hverjir eru vinsælir og hverjir ekki, fyrir utan þá sem eru inn á vefjum eins og blog.is og visir.is og heimsóknartölur eru birtar.

Listinn sem Jónas virðist vera að nota er listi bloggáttarinnar, sá listi er góður svo langt sem hann nær, og það er til þess hversu margir notendur bloggáttarinnar lásu ákveðna bloggara. Jónas getur ekki með nokkru móti yfirfært það yfir á heildar vinsældir bloggara. Blogg fá heimsóknir í gegnum mjög margar leiðir, bloggáttin er svo sannarlega ein þeirra og alveg frábær sem slík. Hinir óháðu er einmitt háðari því að fá heimsóknir í gegnum slíkar gáttir.

Hinir háðu fá yfirleitt flestar heimsóknir í gegnum þann miðil sem þeir tengjast.

WordPress Themes