Smá spilling?

Þetta er nú alveg örugglega ekki stærsta málið þessa dagana, en er þetta ekki smá spilling?. Aðstoðarmaður, sem er að vinna í fullu starfi, en tekur aðstoðarmannsstarfið svona eins og að vinna í sjoppu, á kvöldin og um helgar.

,,Spillingarbaninn” Jón var tekin þarna, en það þarf þó enginn að segja mér annað en að ýmsir aðstoðarmenn séu ekki á kafi í því sem þeir ættu að gera. Eins og lagt er af stað með eiga þeir að vera aðstoðarmenn sem eru að vinna í kjördæmunum.

Ég held að menn ættu að grípa tækifærið núna og leggja þetta kerfi niður. Nú þegar verið er að skera allstaðar niður, væri það nú gott fordæmi hjá þingmönnum að spara hjá sjálfum sér. Fólk hætti kannski að henda eggjum í Alþingi og tæki þá í aðeins meiri sátt?

Meiri uppljóstranir um ritskoðanir og vinnubrögð

Ég sérstaklega vekja athygli á áhugaverðri færslu Birgis Símonarsonar, þar sem hann flettir enn frekar hulunni af ritskoðunum og vinnu eiganda blaðanna.

Það fór eins og margir spáðu að með þessu myndu ýmsir koma fram sem áður höfðu þagað.

Ég hef einhvern vegin aldrei haft mikla virðingu fyrir Símoni Birgissyni, hann hefur alltaf verið í mínum huga “stjörnublaðamaður” eins og hann var kallaður, sem átti sína frægð á meðan DV náði sínum allra lægstu lægðum. Virðing mín fyrir Símonu hefur vaxið til allra muna með þessum skrifum sínum.

Hver er tilgangur útgáfunnar?

Það er nú ljóst að Reynir Traustason ætlar að sitja af sér storminn, eins og það var kallað hjá ríkisstjórninni. Þrátt fyrir að hafa verið tekinn við lygi og þrátt fyrir að hafa viðurkennt að hafa tekið við ritstjórnarlegri leiðsögn af utanaðkomandi aðila og þrátt fyrir að hafa fengið alla til þess að efast um blaðamannastéttina. Nú þegar hefur einn blaðamaður sagt upp störfum og spurning hvort aðrir munu fylgja á eftir honum?

Það efast enginn um að Reynir er fær blaðamaður, hann hefur verið naskur á fréttir og komið með áhugaverð sjónarhorn. En stundum missa menn sjónar af hlutunum og verða að axla ábyrgð.
Það er alveg ljóst að með Reyni og son sem ritstjóra munu menn efast um allra fréttir sem koma frá blaðinu. Voru þær skrifaðar í raun til þess að upplýsa almenning eða eru þær í boði auðmanna? Hvaða fréttir voru ekki sagðar?

Hversu líklegt er að DV muni þjarma að bönkunum? Mun ekki bara koma upp sami óttinn um að blaðinu verði lokað? Hvað með ríkisstjórnina, fjármálaeftirlitið eða seðlabankann? Hvernig er hægt að þjarma að þeim þegar ritstjórinn á blaðinu hefur sjálfur orðið uppvís að lygi?

Það getur vel verið að Reynir njóti traust hjá stjórninni, en hann hefur misst traust þjóðarinnar. Þetta eitt og sér gerir það að verkum að menn setja spurningamerki við útgáfuna. Hver er tilgangurinn með útgáfu á blaði sem enginn treystir?

Að búa til fréttir

Ég vona að Kompás haldi áfram að “búa til fréttir”, eins og lögmaður manns sem bauð fólki að greiða því fyrir að hlaða á sig skuldum og fara svo í þrot, kallar þetta. Það ætti í raun að vera meira en nóg að gera hjá kompási um þessar mundir.

Það virðist vera að það séu alltaf einhverjur tískulögmenn fyrir menn sem lenda í svona “ólukku”. Það safnast alla vegna upp á einn og sama lögmanninn um þessar mundir mál gegn Kompási. Ég man ekki betur en hann hafi verið í fjölmiðlum út af fleiri slíkum ólánsmönnum.

Það er alveg ljóst að ég ætla að horfa á þetta í kvöld.

Hetja ársins hjá DV

DV leitar nú að hetju ársins. Því miður eru frekar fáar hetjur á ferli þessa dagana.

Augljósasta valið er Jón Bjarki Magnússon, uppljóstrari.

Því miður er ég nokkuð viss um að atkvæði greidd Jóni Bjarka munu falla í flokkinn “auð og ógild” þegar farið verður að telja atkvæðin.

Hægt að spara gjafirnar

Undanfarið hefur forsetinn verið töluvert verið gangrýndur fyrir bruðl og eftir að Stöð 2 benti á þetta að hafa notað yfirklór, eins og þegar rætt var um símreikninginn var verið að tína til smáhluti eins og að inn í þessu væri þjófarvarnarkerfið.

Agnes Bragadóttir tók þetta í kjölfarið í gegn og fékk mjög bágt fyrir, enda eins og vanalega þegar sá blaðamaður fer í verkefni þá er hún eins og fíll í postulínsbúð. Hins vegar voru marar ábendingarnar réttar, það hefði mátt fara snyrtilegra í að tjá sig. Fyrir vikið voru ansi margir á móti þessari umfjöllun hennar.

Nú þegar kemur í ljós að gjafir forsetans eru ekki meira metnar en svo að þær eru seldar á ebay fyrir 35 þúsund kall, má velta fyrir sér hvort sé ekki rétt að spara þær eitthvað?
Hvar skildu þær annars hafa verið gjaldfærðar, ég man ekki eftir þeim í umfjöllun stöðvar 2.

Var haft áhrif á DV?

mbl.is hefur birt viðtal við Reyni Traustason, þar sem hann er spurður út í fréttina sem hvarf, þar segir hann:

Spurður um staðhæfingar Jóns Bjarka um að hann hafi sagt sterka aðila úti í bæ hafa komið í veg fyrir birtingu greinarinnar og jafnvel haft í hótunum við hann, segist Reynir ekki getað tjáð sig um það sem gerist innanhúss á ritstjórn DV en að umrædd ákvörðun hafi algerlega verið tekin á faglegum forsendum.

Þetta er rosalega skrýtið svar. Það er eiginlega ótrúlegt að þessi miðill sem hefur svo oft komið fram sem málsvari litla mannsins og farið mikinn um spillingu undanfarið skuli ekki geta svarað því á afdráttalausan hátt hvort sterkir aðilar séu að hafa áhrif inn á ritstjórnina.

Þetta dregur tvímælalaust úr trúverðugleika miðilsins og vekur upp frekari spurningar hvort það sé reglulegt að utanaðkomandi aðilar séu að hafa áhrif á fréttaflutning miðilsins.

Það er hins vegar rétt að þessi frétt bætti litlu við það sem áður hafði komið fram, en það hefur átt við um ýmsar fréttir sem DV hefur birt án þess að hika við það. Hvaða frétt er t.d. í því að tekjuafkoma ríkisins sé í sögulegu lágmarki? Kemur það einhverjum á óvart? Er eitthvað sem ekki hefur áður komið fram í þessari frétt?

Fyrst fréttin af Sigurjóni var svona ómerkileg, af hverju hefur hún þá verið birt núna?

Hvenær fékk Þorleifur leyfið?

Af hverju viðurkennir hann bara ekki mistökin?

Af hverju viðurkennir hann bara ekki mistökin?

Ég skrifaði áðan um málefni sem virtist við fyrstu sýn hafa verið smávægileg mistök borgarfulltrúa þegar hann gleymdi óvart að þurrka út nafn á einum stað í bréfi sem hann sendi á alla fjölmiðla. Þegar ég les þetta betur yfir get ég ekki séð að hann hafi yfir höfuð haft nokkurt leyfi.

Í tilkynningu sem hann sendi síðar á fjölmiðla eftir að málið er komið í hámæli segir hann:

Ég fékk leyfi frá stúlkunni og móður hennar til að senda bréfið til fjölmiðla en vil biðja fjölmiðlafólk að fjalla um það af nærgætni og birta ekki nafn hennar.

Í þessu ljósi er málið allt annað, hann fer sem sagt í fjölmiðla með bréf án þess að biðja um leyfi. Þegar málið er komið í hámæli, þá fyrst óskar hann eftir leyfi, hann fær það í gegn en ekki að birta nafnið. Hann gleymdi því ekki að taka út nafnið heldur beinlínis sendir út bréfið og fær síðan síðar leyfi til þess að birta bréfið eftir á. Þetta gerir hann ekki fyrr en löngu síðar og farið er að spyrja hann út í þetta! Þá biður hann um að “fjölmiðlafólk að fjalla um það (insk. bréfið) af nærgætni”. Honum hefði verið nær að biðja stúlkuna og forsvarsmenn hennar afsökunar og óska eftir því að nafnið yrði alls ekki birt.

Af hverju viðurkennir hann bara ekki mistökin, að hann hafi ekki fengið leyfið?

Óheppilegar bréfaskriftir

Nýjasta klúðrið í bréfaskriftum eru skrif Þorleifs Gunnlaugssonar, þegar hann gleymir að þurka út nafn stúlku á einum stað.
Menn hafa verið að bera þetta saman við bréfaskriftir Bjarna Harðarsonar, en stór munur er á þessu:

  • Bréfið var ekki sent í nafnleysi
  • Leyfi hafði fengist (gegn því að þurrka út nafn stúlkunnar)
  • Á einum stað gleymdist að þurrka út nafnið
  • Bréfið var ekki skrifað sem árás á einn nafngreindan einstakling

Ég sé svo sem ekki ástæðu til þess að þessi mannlegumistök séu það afdrifarík að Þorleifur þurfi að segja af sér.

Alvarlegar ásakanir á hendur þingmönnum

Alvarlegar ásaknir á hendur þingmönnum

Alvarlegar ásaknir á hendur þingmönnum


Ég var að klára klára að lesa bókin Áfrýjunin eftir John Grisham. Í umsögn um bókina má lesa:

Kviðdómur í þéttsetnum réttarsal í Missisippi sakfellir risafyrirtæki fyrir að menga vatnsból smábæjar með eiturefnaúrgangi með þeim afleiðingum að fjöldi manns deyr úr krabbameini. Fyrirtækið áfrýjar til hæstaréttar Missisippi. Dag einn verða níu dómarar að taka afstöðu til málsins. Hverjir eru þessir níu? Hvernig greiða þeir atkvæði? Og er hægt að skipta um einn þeirra áður en endanlegur dómur fellur?

Þegar ég las bókina hugsaði maður hvort svona væri mögulega hægt í raunveruleikanum og í leiðinni hvað maður væri ánægður með að það væri ekki möguleiki að kjósa dómara á Íslandi. Þrátt fyrir meingallað kerfi, þá er ekki betra að dómarar þurfi að selja sig.

Í dag les ég svo þetta hjá Þrymi:

Ég fékk eftirfarandi e-mail, finnst ég verði að senda það áfram:
Landsbankamaðurinn sem var hnepptur í varðhald fyrir 100 miljóna fjárdráttinn sé farinn að mala á fullu.
Davíð Oddson hefur þessi sönnunargögn, þetta er ein af leynibombum hans en hann er með gögnin um þetta mál og líka mál á fleiri þingmenn. Þess vegna mun hann fagna utanaðkomandi rannsókn.

Upplýsingar um braskið hans Lúðvíks sem á Fasteign ehf, Miðklett ehf og Eykt ehf – sem á nánast aðra hverja byggingu í Borgartúninu, koma úr átt Davíðs, sem gerði slíkt hið sama við Þorgerði Katrínu á sínum tíma í tengslum við Kaupþing í nóvember sl.

Lúðvík er ekki sá eini sem fékk sk. “mútu lán” hjá L.Í, lán með helmings lægri vöxtum en gengur og gerist.

-Sif Friðleifs fékk líka 75 milljónir líka á vildarkjörum til að kaupa hlutabréf í Decode – sem er líka verið að afskrifa.
- Þorgils Óttar fékk Keflavíkurflugvöll á 11 miljarða en ásett verð vallarins eru 50 miljarða á vildarkjörum frá L.Í en hann hefur aldrei þurft að borga krónu af því og það er verið að afskrifa það líka.

Ég hef fengið þessar upplýsingar staðfestar og sannaðar en málið er að um 80 – 90% þingmanna eru innblandaðir inn í viðskipti af þessu tagi á einn eða annan hátt.

Sigurjón Ólafsson er að vinna í þessum afskriftum á vegum Landsbankanum í Apóteksturninum í Austurstrætí og þá vinnu er hann að vinna augljóslega í felum með tætarana í fullum gangi.

Og svona í lokin er Björgvin G. með myntkörfulán upp á einhverja tugi milljóna, borgar á aðra miljón af því á mánuði og mér skilst að KPMG hafi verið að vinna að afskriftum fyrir hann þegar þeir voru stöðvaðir í fyrradag, eitthvað hefur þó Sigurður G. lögfræðingur Glitnis og mágur Björgvins fengið þegar afskrifað nú þegar.

Hef fengið það staðfest að uppýsingar af þessum toga hefur Davíð Oddson á nánast allan þingheim og er því sallarólegur. þori þeir ekki að hrófla við honum og láti hann því frekar valta yfir sig á meðan þeir fá að láta tætarana ganga.

Það rýrir gildi þessa bréf að augljóst er að ýmislegt stenst ekki. Vont að af hafa ekki augljósar staðreyndir á hreinu, eins og að Sigurjón er ekki Ólafsson, heldur Árnason. Þrátt fyrir umræður um verðmæti fasteigna á Keflavíkurflugvelli hefur enginn komið fram og sagst vera tilbúinn að greiða meira fyrir þær.

Hins vegar vekur bréfið óneitanlega spurningar.

Erum við í betri málum en með dómarana í Áfrýjuninni, þótt í þessu tilfelli séu það ekki dómarar heldur alþingismenn?

Að eiga kökuna og éta hana

Menntamálaráðuneyti fær ríflega 4,3 milljarða minna en var áætlað. Meðal þess sem þar er skert, er að 650 milljóna króna rannsóknarframlagi til Háskóla Íslands verður frestað.

Manni finnst að þarna sé ríkisstjórnina að reyna að eiga kökuna og éta hana líka. Um leið og fólki hefur verið ýtt inn í háskólana, skólarnir fengnir til þess að taka við nemendum um áramótin, sem stefnir í að vera 2000.

Það er spurning hvernig þetta fer saman?

Góð gjöf – ókeypis tónlist

Kimi Records er í dag með frábæra gjöf, fullt af skemmtilegri tónlist sem þeir bjóða manni að sækja og hlusta á. Á morgun ætlar Mogginn að gefa tónlist. Maður verður kannski bara að hlusta á skemmtilega tónlist á morgun, svona í óveðrinu.

Ruglið í Binga

Björn Ingi bullar um Sjálfstæðisflokkinn

Björn Ingi bullar um Sjálfstæðisflokkinn

Ég setti inn athugasemd hjá Birni Inga í gær út af færslu þar sem hann teygði og togaði ýmsar hugmyndir sem virðast hafa verið á floti varðandi Flokkinn. Ég benti sérstaklega á það atriði að það væri ólíklegt að það væri von á mótframboði á móti Þorgerði Katrínu í varaformannin. Síðar apaði AMX vefurinn upp sömu frétt eftir honum og Bingi telur það sér til tekna að vefurinn hafi gert það. Því miður eykur það ekkert sérstaklega trúverðugleika þessar færslu. Hvorugur bendir á nokkuð máli sínu til stuðnings annað en spjall. Þeir sem eru nefndir í pistlinum fanga örugglega þessar ótímabæru stuðningsyfirlýsingu þessara manna.

Þó svo að sjálfstæðismenn rífi í hár sitt og skegg út af hugmyndum hennar varðandi RÚV er varaformaðurinn farsæll í sínu embætti. Það er algjörlega óvíst að þeir 50 þúsund sem skrifuðu undir áskorun Skjás eins hafi átta sig á því að flytja ætti kostnaðinn yfir á þá (og ríflega það). Ég gæti örugglega skrifað langan pistil um ruglið sem er í gangi í RÚV, heimskulegur flatur niðurskurður og sóun peninga hjá þessari stofnun. Það er sorglegt að sjá útvarpsstjóra sem er að koma úr einkaumhverfinu, gera ekkert til þess að draga úr kostnaði eða nota þá þekking sem hann ætti að búa við úr einkaumhverfinu.

Björn Ingi veltir einnig fyrir sér kosningu Geirs H. Haarde, eins og það væri hneyksli ef hann fengi ekki sömu kosningu nú og seinast. Seinast fékk hann rússneska kosningu, maður á ekki von á öðru í þessu árferði að það séu ekki allir sáttir. Það væri fréttir til næsta bæjar ef hann fengi sömu kosningu.

Annað sem ekki var nefnt í pistli Björns er að Bjarni Ben hættir skyndilega sem stjórnarformaður N1. Það hlýtur að þýða tíðindi. Maður undar sig samt á því að farsæll viðskiptamaður ákveði að einblína frekar á stjórnmálin en viðskipti. Bingi ætti kannski að velta því fyrir sér, þar eru kannski alvöru fréttir á ferðinni.

Nýtt Orkuveitumyndband – nýja stjórn!

Í fyrra bjó Sölu og markaðsdeild Orkuveitunnar til myndband sem fór eins og eldur um sinu um netheima. Myndbandið var kallað REI REI, ekki um jólin. Myndbandið var búið til sem grín fyrir jólahlaðborð Orkuveitunnar, svona til að létta andannn hjá fyrirtækinu sem var sjálfsagt ekki í toppi. Þetta var (og er) algjörlega komið frá starfsmönnum, þótt þetta sé orðið mjög flott.

Í ár er svipað í gangi, sama deild gerði nýtt myndband fyrir jólahlaðborðið. Í ár er það ekki REI REI, heldur Nýja stjórn enda hafa ófáar stjórnir verið í ár. Ég efast reyndar um að myndbandið eigi eftir að fá jafnmikla athygli og í fyrra enda tíðarandinn annar í þjóðfélaginu. Málefni Orkuveitunnar hafa ekki verið í forgrunni undanfarna 2 mánuði.

Ég get annars ekki séð betur en að Kjartan Magnússon eigi leiksigur þarna. Ýmsir höfðu á orði að í fyrra myndbandinu sé Kjartan ekki beint með sérstaka tækni.

Fullorðið blogg – lognar heimsóknartölur

Heimsóknir

Ofvaxnar heimsóknir

Jónas er að velta fyrir sér heimsóknartölum í dag. Svo sem áhugaverðar vangaveltur sem reglulega hafa skotið upp kollinum, sérstaklega í kringum bloggin á Moggablogginu, þar sem tölur hafa verið opinberar.

Nú vill svo til að flest þeirra blogga sem hann nefnir hafa ekki verið með opinberar tölur. Hins vegar er auðvelt að skoða þá sem hann talaði um og hægt er að skoða. Markaðurinn er samkvæmt Vísi sjálfum með að meðaltali tæplega 2500 heimsóknir á dag, Mannamál er með um 1400 heimsóknir á dag. Þessi blogg eiga það sameiginlegt að vera auglýst af eigin miðlum.

Ekki er ljóst hvaðan Jónas hefur heimsóknartölur frá Agli, en hins vegar getur vel verið að hann sé með þessar heimsóknir. Ég væri í raun ekkert hissa á því að þær væru töluvert fleiri. Ólíkt t.d. Jónasi sem er bloggari af þeirri tegund að þora ekki að hafa skoðnanir sínar opnar fyrir athugasemdum, þá býður Egill upp á að fá viðbrögð við skoðunum sínum.

Þess vegna getur Jónas bloggað bölvað bull eins og með þessar heimsóknartölur, og það eru ekkert alltof margir sem nenna að lesa svona bull.

Alveg örugglega ekki 10 þúsund á dag.

Kjöraðstæður fyrir spillingu

Jón Steinsson er með mjög góðar ábendingar varðandi mögulega spillingu, ég er hjartanlega sammála honum um að það er veruleg hætta á spillingu á næstunni þegar fyrirtæki setjast við samningaborðið við bankana.

Ég skil heldur ekki að það hafi verið tekið meira til í bönkunum en það sem gert var. Að mestu leiti er þetta sama fólk, þótt topparnir hafi farið. Sömu menn og voru að gera lánasamninga við þessi loftbólufyrirtæki.

Bendi á umræður um viðtalinu við Jón, hérna, hérna og hérna.

Snillingur á Píanó

Víkingur Heiðar Ólafsson var í kvöld valinn einn af þremum framúrskarandi ungu einstaklinga hjá JCI. Aðrir sem voru á þeim lista voru Mugison og Margrét Lára.

Ég hafði hvorki heyrt af Víking né í honum hingað til. Hann spilaði þó eitt lag fyrir, íslensk sönglag sem hann hafði útfært, bæði undirspil og söngrödd miðað við píanó. Það var ótrúlega gaman að heyra hann spila, ég hafði helst á tilfinningunni að það væri heil hljómsveit með honum.

Maður á örugglega eftir að fylgjast betur með honum í framtíðinni.

Skyldulesningar

Egill bendir á skildulesningu á grein Jóns Steinssonar, ég fagna því að hann bendir á þessa grein en ég hafði ekki séð hana áður. Þetta er einmitt eitt af því sem ég hef haft áhyggjur af, en maður hefur séð nú þegar ýmsa hluti sem maður setur spurningarmeki við.Dofri bendir á umræðu um einhliða upptöku Evrunnar. Ég er ánægður að Samfylkingarmenn bendi á hugmyndir varðandi einhliða upptöku Evrunnar. Hingað til hefur mér fundist umræðan vera of einhliða, það er alveg ljóst að menn verða að nálgast þetta mál ekki út frá gömlum hugsjónum að vera með eða á móti sambandi á leveli sem byggir ekki á rökum heldur frekar einhvers konar trú.

Hin djöfullega Evrópa

0-devil-cant-handle-the-truth.gifEr að horfa á þátt á Omega sem virðist hafa það eitt markmið að benda á hversu “djöfullegt” Evrópusambandið er. Reyndar var nokkuð áhugavert (sem ég geri ráð fyrir að sé satt), að það Evrópuþingið er byggt á mynd af Babýlonturninum. Það var fyrsta merki um að Evrópusambandið væri djöfullegt.

Meira að segja hefur Hlið helvítis verið fundinn staður í Berlín, það var víst klárað 1930 og þar með var helvíti á jörð skapað, svo kom austur-Þýskaland, að þeirra sögn hefur helvítið haldið áfram eftir sameiningu Þýskalands og inn í Evrópusambandið.

Mér skilst að ég eigi eftir að komast að því hvar sæti Satans er rétt og á eftir. Ég skal hundur heita ef það er ekki innan Evrópusambandsins.

Ætli þögli herinn sé hér á ferð að heilaþvo lýðinn? Ætli það sé mikið um þætti “pro-Evrópu” í gangi á Omega? Ég geri ráð fyrir að þetta sé línan hjá Omega áhorfendum. Þennan mánuðinn að gefa smá peninga til Omega og afskrifa Evrópusambandið.

Annars er umræðan um Evrópusambandið oft á plani sem er ekki langt frá umræðunni í þessum þætti.

Í dag fór LÍÚ af stað með umræðu um atvinnuleysi ungs fólks. Ætli það verði landlægt hérna um leið og við og ef við göngum í sambandið? Hvernig er annars ástandið í Danmörku? Hvernig er ástandið í Hollandi? Þegar ég bjó þar 1990 var mikið atvinnuleysi sérstaklega hjá ungu fólki. Ég hef ekki heyrt nein rök sem sannfæra mig um að þetta verði svona.

Á hinn bóginn að ræða við þá sem eru með nánast guðdómlega aðdáun á sambandið og að það muni koma með lægra matarverð. Hvernig gerist það?  Getum við ekki bara einhliða fellt niður tolla og fengið ódýrara matvælaverð. Það var líka áhugavert að heyra þessa nánast trúarlegu sannfæringu Samfylkingarmanna á Akranesi í átt að Evrópusamabandinu, annað hvort “okkar leið eða þú átt ekki samleið” og að sjálfsögðu ekki opnað á neina aðra möguleika. Þú skalt ekki aðra guði hafa.

Þetta er bara svona svo eitthvað sé nefnt. Það þekka allir þessa póla. Þeim verður seint hnikað.

Eins og menn heyra get ég ekki beðið eftir Landsfundi, enda báða póla að finna þar. Það verður fjör. Þegar menn eru með sannfæringu sem jaðrar við trúarlegri sannfæringu má búast við fjörugum umræðum sem ólíklegt er að muni skila nokkru. Mér heyrist Styrmir tala um þjóðaratkvæðagreiðslu, er það sem menn ætla að miða á sem sú sáttaleið sem Flokkurinn kemur með???

Tilgangslaust ofbeldi

Það er eiginlega ótrúlegt að sjá lítinn hóp fólks gera aðra árás á opibera byggingu.  Að þessu sinni Seðlabankann. Mér skilst að sumir hafi verið betur útbúnir að þessu sinni og lært af reynslunni, því hafi skíðagleraugu verið á meðal útbúnarðar sem sumir í hópunum báru á sér.

Því miður skilar þetta ofbeldi ákaflega litlu fyrir málstaðin, nema ef vera skildi að lögreglan mun halda áfram að vígbúast.   Með þessu ofbeldi má búast við minni mótstöðu við kröfum lögreglunnar um betri vopn.

WordPress Themes