Fullvíst má telja…

Reynir Traustason birtir langa grein í DV í dag þar sem hann heldur því fram að Sjálfstæðisflokkurinn sé „á barmi klofnings”.

Meirihluti greinarinnar gengur út á að rifja upp ummæli og kenningar í kringum síðustu kosningar og við myndun núverandi ríkisstjórnar fyrir rúmu ári síðan.

Afganginn skáldar Reynir svo upp. Þetta kemur vel í ljós þegar lesið er í gegnum greinina. Það er sérstaklega athyglisvert hve víða hann vísar í almannaróm og hvað sé hermt, nefnt  og talið vera svona eða hinssegin. Þetta er orðrétt úr greininni:

Sá skilningur er víða…

Raunar er hermt að…

Fullvíst er að…

því hermt er…

talinn tilheyra…

Hermt er að…

Sögusagnir hafa geysað…

er nefndur…

Hermt er að…

Fáum dylst að…

Ótrúleg blaðamennska!

Athyglisverð yfirlýsing

Þetta er nokkuð athyglisverð yfirlýsing hjá Birni í World Class, sérstaklega í ljósi þess að viðkomandi hefur nú þegar verið dæmdur. Þetta er því ekki spurning um að vera saklaus uns sekt hefur verið sönnuð, ef þetta er það mat sem World Class notar til að meta starfsfólk sitt.

Seinir með fréttirnar

Vísir fer nú af stað með starfslokasamning Guðfinnu Bjarnadóttur, fyrrverandi rektors HR.   Það er merkilegt að þeir skuli taka þetta mál upp núna.   Fattaði þetta virkilega enginn hjá þeim þegar tekjublaðið kom út?  Hún var lang launahæsti þingmaðurinn með margföld laun á við aðra þingmenn. Samt virðast engar viðvörunarbjöllur hafa hringt á þeim tíma sem blaðið kom út.

Ræðunámskeið til Nígeríu

Nóg að gera hjá Nígeríumönnum, nú vilja menn fá ræðunámskeið JCI þangað!  Ætti maður að skella sér :)

Greinilegt að Facebook er nýjasti vettvangur þessara útsjónasömu svindlrara.

Subject: Ræðunámskeið JCI

“am interested in purchasing your item. am in nigeria for a business so i will be needing it there. let me know the condition of the item.
regards”

Pólitísk sátt!

Er fólk ekki með öllu mjalla!. Skítt verið með pólitíska sátt, borgarbúar krefjast þess að hæfasti maðurinn verði ráðin í jobbið.

Einelti í stjórnmálaflokkum

Staða Frjálslyndra verður stöðugt merkilegri. Nú hefur Guðjón Arnar komið fram og sagt að Kristinn sé að verða fyrir einelti af eigin miðstjórn. Guðjón Arnar situr í miðstjórninni, en talar eins og hann standi fyrir utan þessi hana. Eineltið er ekki lengur bara innan flokksins heldur líka á bloggsíðunum. Nú er þetta ekki lengur eiginlega bara einelti eins og Guðjón Arnar talaði um þetta heldur bara opinskáar umsagnir.

Illa farið með útrásina

Eyjan segir frá deilum innan Enex, þar sé meðal annars búið að úthýsa forstjóranum.

Það er sorglegt hvernig er komið fyrir þessu fyrirtæki, en Enex er það fyrirtæki á Íslandi sem hefur leitt orkuútrásina. Þeir eru eina fyrirtækið sem hefur sýnt alvöru árangur og það módel menn höfðu í huga þegar REI fór upphaflega á stað. Það er þekkingarsala en ekki fjármögnun.

Það er vonandi að hlutirnir fari að lagast og eigendurnir fari að koma sér saman um fyrirtækið, því annars er nokkuð víst að þessi besti árangur Íslendinga verði að engu.

Lélegur spunameistari

Sankornið um að Ólafur Teitur sé lélegur spunameistari er áhugavert sandkorn. Ólafur Teitur var jú starfsmaður DV á sínum tíma, reyndar er ekkert eftir af því blaði sem Ólafur starfaði á. Bæði viðbrögð hans sem á að vera reyndur blaðamaður sem og viðbrögð DV við þessu eru því merkileg. Það er greinilegt að menn muna en eftir misréttlátri gagnrýni Ólafs Teits, þegar hann skrifaði um fjölmiðla á VB.

Vopnað rán í Kópavogi

Var að undirbúa ræðunámskeiðið mitt og kaupa möppur. Þegar ég mætti í Skólavörðubúðina var mikið um að vera Löggan nýkomin, Sjónvarpið og aðrir fjölmiðlar. Ég get ekki sagt annað en að það sé nokkuð gott hjá vísi að vera komnir með myndir af þessu nokkrum mínútum eftir að atburðurinn á sér stað.

Annað sem mér fannst vera nokkuð merkilegt er í raun ágangur fjölmiðla, konan sem lenti í þessu var strax á eftir mætt á “blaðamannafund” og yfirheyrð af fjölmiðlum um þetta. Spurningar um framganginn og svo hvort hún treysti sér ekki til þess að segja þetta “í mynd”. Ég skildi konuna vel þegar hún hafnaði því.

Það litla sem ég heyrði var að henni hefði verið ógnað með dúkahníf og svo hafi fartölvu verið stolið.  Þetta hafi í raun verið misheppnaður þjófnaður. Upphaflega hafi ekki staðið til að beita ofbeldi en þegar uppkomast hafi þeir gripið til dúkahnífsins.

Ég veit ekki hvort það er faraldur í gangi, en ég var niður í Office1 áðan og þar hafði greinilega líka verið stolið, þar sem það voru 3 bílar á staðnum og verið að skoða útihurð.

Að græða á kreppunni

Andrés Jónsson bendir á að það sé nú inn að selja fólki sparnaðarráðgjöf. Það sé ekki lengur að selja Herbalife og íbúðir eins og það var heldur sé málið að selja sparnaðarráðgjöf.

Ég hef nú aldrei heyrt þetta áður, ég hef alltaf séð fyrir mér þetta fólk sem er að selja þessa ráðgjöf sem fólk sem er að þessu nánast af hugsjón og gerði mér ekki grein fyrir að það væri einhverjir peningar í þessu. Var nú bara svo grænn að ef maður þyrfti að nýta sér þessa þjónustu væri þóknunin 1-2 þúsundkallar.

Ætli þetta sanni ekki það sem ýmsir fjármálagúrúar hafa sagt: Það eru alltaf tækifæri til að græða, jafnvel í kreppunni.

Hópurinn Fans of Fans stofnaður á Facebook

Hafði nokkuð gaman af því að það voru íslendingar sem stofnuðu hópinn “Fans of fans” á Facebook. Ég var því ekki lengi að skrá mig í hópinn, en ég hef undanfarin ár selt ótrúlega mikið af viftum. Spurning um að bjóða áhugamönnum um viftur, sérstök afsláttarkjör af viftum.

Spennandi verkefni í Gufunesi

Þessi skemmtigarður er ótrúlega spennandi og gaman að fá svona skemmtigarð í Grafarvoginn. Maður vonast til þess að þetta eigi eftir að ganga vel hjá þessum djarfhugum, það er ekki sjálfgefið. Þetta er sjálfsagt einhver besta nýting sem er í boði á þessu landi en eins og menn vita þá voru þarna öskuhaugar okkar Reykvíkinga fyrir um 20 árum. Menn hafa amk. ekki verið mjög hrifnir af hugmyndum Reykjavíkurborgar að gera þetta að leikvöllum fyrir börn hverfisins. Staðreyndin er að menn vita ekki nákvæmlega hvar hættuleg efni voru grafin og þrátt fyrir að uppgufun sé ekki mikil, þá er ekki vitað með langtímaáhrif barna sem leika sér þarna langtímum saman.

Gísli Marteinn talaði um umferð við Grafarvoginn. Á sínum tíma tíma benti ég á ruglið við að setja HR niður í Vatnsmýrina. Það hefði verið mun skynsamlegra að koma honum niður á Keldnaholti. Þar sem nú þegar er öflugar rannsóknarmiðstöðvar, nægt landrými, mikið af rekstri til að styðja við bakið á skólanum, stutt í núverandi stúdentagarða HR og svo að dreifa umferð.

Í staðin fyrir þetta er nú umferðinni allri beint niður í bæ, hvort sem það er HR, HÍ eða aðrir stórir vinnustaðir. Með hinum aðgerðunum hefði verið hægt að dreifa umferðinni mun betur og nýta sér að stutt er í íbúabyggð þar sem möguleiki hefði verið á frekari uppbyggingu stúdentagarða.

Það er alveg ljóst að ef farið hefði verið eftir þessum ábendingum hefðu umferðarmannvirki í kringum Grafarvoginn getað orðið allt öðruvísi en það stefnir að í dag.

Hagsmunatengslin

Í Silfrinu í dag gerði Ögmundur Jónasson hagsmunatengsl að umtalsefni og eins og áður hefur verið bent á hafa einstaklingar í þingflokknum gefið ýmsar upplýsingar um sjálfa sig. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að upplýsingarnar eru nokkuð misjafnar eftir þingmönnum, mislangt er gengið í að upplýsa eignir. Einnig virðast sumar upplýsingarnar vera 2-3 ára gamlar og spurning hversu marktækar þær eru orðnar í dag.

Ýmislegt getur valdið hagsmunatengslum, það er mikil einföldun að setja hagsmunatengsl fram á þann máta að eiga lítinn hluta í banka búi til einhvern sérstök hagsmunatengsl. Á sama tíma geta menn skuldað sama banka stórar fjárhæðir. Skapar slíkt ekki hagsmunatengsl? Þarf því ekki að upplýsa hvaða upphæðir menn skulda og til hverra?Önnur augljóst tengsl eru vinir og vandamenn.

Ætlar VG að fara að birta helstu vini og fölskyldumeðlimi ef alþingismenn skildu fara að hygla þeim.Það er sjálfsagt mál að ræða þessa hluti en hins vegar verða menn þá að ræða öll hagsmunatengsl og ekki bara ein sem henta VG að birta.

Örfá laus sæti

Nú er farið að styttast í að ræðunámskeiðið sem er ég er að halda byrji. Sú breyting hefur í raun orðið á að vegna mikils fjölda sem ætlar að sækja námskeiðið verða í raun 2 námskeið en ekki 1. Það eru bara örfá sæti laus á þessi námskeið.

Ræðunámskeið JCI eru þaulreynd og hafa verið kennd í amk. 30 ár lítið breytt. Þau ganga út að mikla þáttöku þeirra sem taka þátt, það er því ekki hægt að hafa of marga einstaklinga.

Ef þú hefur áhuga á að taka eitt af þessum sætum sem eftir er ræðunámskeiðið, þá er hægt að skrá sig hér.

Heimskreppan

Í dag er í vísi verið að vitna til þess að George Soros sé að spá nýrri heimskreppu. Í sjálfu sér kemur alls ekkert nýtt fram í þessari frétt enda hefur George gefið út ágæta bók um málefnið. Bókin kom út í maí og er reyndar mjög áhugaverð yfirlestrar fyrir þá sem lítið vita um þetta en hafa áhuga á að vita hvernig þessi málefni ganga fyrir sig.

Umsetinn

UmsetinnÁstandið undanfarnar  tvær vikur hafa verið nokkuð sérstakar á athugasemdakerfinu mínu, stór hluti athugasemda hefur komið frá 2 iptölum.   Augljóslega hefur verið um eitthvað grín að ræða en ég hef tekið þátt í gríninu með því að svara eins og um alvöru athugasemdir væri að ræða.

Ég lokaði athugasemdakerfinu í ákveðin tíma út af þessu og vonaðist til þess að þessir menn sneru sér að einhverju öðru en að sitja um bloggið mitt.   Ég vil hins vegar hafa athugasemdakerfi opið, enda finnst mér bara gaman af því að fá athugasemdir og ábendingar frá öðrum.  Það á við hvort sem það eru athugasemdir til þess að bæta tungutakið, pólitískar skoðanir eða einfaldlega til að leiðrétta eitthvað sem er ekki rétt.   Ég hef alltaf tekið tillit til þessa þótt ég sé ekki alltaf sammála mönnum. Ég hef meira að segja haft nokkuð gaman af þeim fíflaskap sem hefur birst hjá þessum aðilum og fundist jafnvel til þess koma hvernig þeir hafa fundið vinkla til að snúa út úr því sem ég er að segja.

Það þarf svo sem ekki að taka það fram að eftir að ég opnaði athugasemdakerfið hélt þetta áfram.  En ég kannaði hráloggana í gær og í ljós kemur að aðilar tengdir þessum iptölum hafa amk. komið 80 – 90 sinnum á dag inn á bloggið mitt.  Nú eru þeir vinnustaðir sem tengjast þessum iptölum ekki stórir og því augljóst að einhverjir hafa setið um bloggið mitt.

Ég veit það ekki en mér finnst sjálfum nokkuð sérstakt þegar lögfræðingar út í bæ hafa ekkert betra að gera en að sitja um bloggið mitt.   Ég hélt einu mennirnir sem hefðu nóg að gera í kreppunni væru lögfræðingarnir.

Ætli 2 vikna glenz sé ekki orðið nokkuð gott?  Mér finnst þetta amk. ekki lengur fyndið.

Landslög

Ég velti því fyrir mér hvort eitthvað standi í landslögum um að skrá niður iptölur gesta á heimasíðum.  Um leið og ég vafra um netið skil ég eftir mig ákveðið “fingrafar” í formi iptölunnar minnar.  Reyndar er það ekki bara iptalan sem er skilin eftir heldur eru líka slóðir “hostname” sem getur gefið í raun ýmsar nánari upplýsingar, t.d. oft hvaða fyrirtæki um er að ræða. Þessar upplýsingar geta verið ansi námkvæmar og jafnvel niður á tölvu eins og hjá Háskólanum þar sem “hostname” gefur upplýsingar um hvaða tölvu hjá háskólanum er verið að nota, jafnvel þótt margir notendur séu að nota sömu iptölu.

Margir teljarar skrá þessar upplýsingar og hægt að sjá þessar upplýsingar aftur í tímann, jafnvel allar heimsóknir á viðkomandi síðu frá upphafi og hvaða síður voru skoðaðar.   Ég hef reyndar ekki verið með neinn teljara á þessar síðu og skrái því ekki slíkar
upplýsingar en hins vegar eru t.d. vísir.is með teljara þar sem þessar upplýsingar eru skráðar og geymdar.

Nú veit ég ekki hvað landslög segja og finnst í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við að þetta sé skráð en ef það er athugavert þá eru ansi margir íslenskir vefir að brjóta þessi lög. 

Í dag er ég …

…stoltur meðlimur Deigluklíkunnar.

Ég hef nú skrifað oft um það að þessar klíkur innan flokksins séu nokkuð mikið ofmetnar.

En það er mun skemmtilegra að skrifa um þetta í svona æsifréttastíl eins og Andrés gerir það.Ég held að ef þetta væri eins og Andrés skrifar það hefði komið fram framboð núna en ekki seinna.

Eitthvað hefur mikið breyst ef menn bjóða sig ekki fram í Heimdall ef það er megn óánægja.Ég tek það svo sem fram að ég hef tekið lítinn þátt í ungliðastarfi Flokksins undanfarin ár, enda eins og lesendur þessa bloggs ætti að vera ljóst hefur JCI átt hug minn.

Annar dagur í tímastjórnun

Í tilefni af ágætu ræðunámskeiðsins hélt JCI Esja Tímastjórnunarnámskeið. Þetta er nú í fyrsta skipti sem ég fer á slíkt námskeið, en það veitti ekki af. Ætli ég kannaðist ekki við flesta ósiðina sem voru þar nefndir, meðal annars að skoða fréttamiðla, blogg og tölvupóst ótt og títt. Ég ætla að byrja á því að reyna að draga úr tímanum sem ég ver í þetta. Ég ætla þó ekki að ganga alla leið sem var kennd en samt að vinna í að draga úr þessum tíma og reyna kannski að nýta hann í eitthvað annað betra og taka svo bara góðan tíma endurm og eins t.d. um leið og maður er að bíða í símanum.

Leiðinlegasta útvarpsefnið

Ég er ekki frá því að leiðinlegasta útvarpsefni sem er í boði, sé efni þar sem verið að fara yfir í þaula hvað á að vera í næsta þætti.   Ég kvarta svo sem ekki undan því að menn kynni næsta þátt en 10 – 15 mínútna dagskráliðir!   Ég þarf bara að bíða eftir þessum þætti og heyri þetta þá.  Núna er verið að kynna þátt á Útvarpi Sögu, það er búið að eyða einmitt 15 mínútum í að kynna þátt sem verður í vikunni, það á meira að segja að að koma páfagaukur í þáttinn sem verður boðið að taka þátt.

Það liggur við að manni hlakki til!

WordPress Themes