Undanfarið hefur verið töluvert mikið af hneykslismálum í gangi.
Það hefur eiginlega verið sorglegt að hlusta á Árna Þór Sigurðsson verja þá ákvörðun að hann hafi orðið að gista á hóteli innan höfuðborgarsvæðisins vegna þess að hann þurfti að vinna frameftir og vakna snemma um morguninn á eftir. Heyrir þessi maður í sjálfum sér? Það var svo gaman að heyra í Jóni Magnússyni, sem fannst þetta í grunninn allt í lagi vegna þess að formaðurinn hans fór í þessa ferð.
Það að flugmiðar Þorgerðar Katrínar hafi kostað 5 milljónir er alveg út í hött. Tilraunir Eirkíks Bergmanns eru álíka gáfulegar og ef lögga myndi taka mann grunaðann um ölvun við akstur og mæta svo heim til hans nokkrum dögum síðar og kanna ástandið. Það er varla hægt að bera saman verð á flugmiðum núna, eins og það var þegar Ólympíuleikarnir stóðu. Hins vegar skilur maður ekki þessi verð á flugmiðum og að menntamálaráðherra hafi eytt 5 milljónum í að fljúga þarna út. Það hefur svo sem enginn heldur spurt hvað ferðin kostaði forsetann og föruneyti.
Ég skil ekki heldur þann fíflagang hjá forsetanum að gefa ekki öllum strákunum riddarakrossinn fyrst hann var að þessu á annað borð. Fimmtándi maðurinn var búinn að vera þarna úti allan tímann og leggja á sig jafnmikið og hinir allan tímann. Ef pallaregla Ólafs hefði átt að gilda, þá voru þarna 3 krossar sem fóru fyrir utan hana (formaður, framkvæmdarstjóri og þjálfari HSÍ). Ég er auðvitað ekki hlutlaus í þessu máli enda er 15. maðurinn frændi minn.
Nú ætlar Pósthúsið að segja upp 130 manns. Nú þegar er dreifing Fréttablaðsins oft frekar hæpin (amk. á köflum), maður veltir því fyrir sér hvernig þetta verður þegar búið verður að segja upp þessum hóp.
Þeir ætla kannski að fara að taka upp metró dreifingu á fjölförnum stöðum?
Uppfært:
Nú hefur komið í ljós að þetta á fyrst við bæi út á landi. Dreifingin til mín mun því amk. ekki versna.
Ég borða nú yfirleitt ekki á morgnana áður en ég fer í vinnuna. Nokkuð slæmur ávani sem ég hef lengi ætlað mér að breyta en hefur aldrei komist í verk.
Nú er kannski komin græja til þess að breyta þessu. Hver veit nema að ef ég ætti þessa græju í tölvunni myndi ég fá mér eina rist á morgnana?
Það er nokkuð pínlegt fyrir fyrirtæki sem kennir sig við töluna google, hefur notað stærðfræðiþrautir til að ráða fólk og safnaði í hlutafjárútboði fjárhæði í tengslum við e, að geta ekki reiknað rétt í reiknivél sem þeir bjóða á netinu.
Reyndar eins og kemur fram í þessari grein er þetta mjög afmarkað vandamál.
Það er engu af síður pínlegt fyrir google.
Ég frétti af einni Kínverskri sem býr í norður-Evrópu, hún bloggaði á kínverskir gátt um skömmina af þeirri að sú sem var síður falleg var falin. Það liðu víst ekki nema nokkrar mínútur þangað til færslan var tekin út og bréf barst um þjóðaröryggi.
Ég hef oft farið til Kína, og séð ýmislegt. Ýmislegt sem menn hafa verið að segja hérna heima hefur verið gamlar eða afbakaðar fréttir en þeir eru ekkert að grínast með málfrelsið, meira segja hjá fólki sem býr ekki í Kína.
Þessi frétt kemur mér alls ekkert á óvart. Við höfum verið að selja búnað til að koma í veg fyrir myglusvepp. Maður hefur því verið að heyra þessar sögur frá fyrstu hendi.
Menn ættu að kanna hjá sér rakann og tryggja að hann sé undir 50%.
Það er samt fyndið þegar menn eru að auglýsa lofthreinsitæki til þess að eyða myglusvepp, eina ráðið sem dugar til að byrja með er að halda rakastiginu réttu og leita af sér allan grun að það séu ekki svæði sem eru stöðugt rök.
Það er lítið mál að kaupa rakamæli eða fá þá gefis hjá bönkunum og kanna hvort rakastigið sér rétt.
Þegar illa er komið þarf auðvitað að leita til Hús og Heilsu en við höfum alltaf mælt með þeim þegar málin eru orðin alvarleg.
Dálítið sérstakur andi í gangi hjá Dönunum. Þó svo að menn ætli sér að vinna keppnina, er frekar sérstakt að vilja bara fara heim þegar það er ljóst að sá árangur er ekki í höfn.
Er ekki verið að senda Dv úr hægri í vinstri vasa?. Manni finnast þetta ekki mjög stórar fréttir. Kannski eru þetta fréttir í hópi einhverra en úr einu nafna undra Baugs yfir til annars. Eða hvað?
Annars get ég ekki ímyndað mér að það sé neitt nema risastórt tap af DV þessa dagana. Efast ekki um að orðsporið hafi batnað en bara beint ofan í það efnahagsástand sem er í gangi þessa dagana.
Ég get ekki gert af því að mér finnst nokkuð ósmellegt þegar menn birta bæði mynd af fyrirtæki og bílnúmer svo stuttu eftir slys. Það mætti alveg hylja þetta. enda ekkert fréttagildi að sýna númer bíls og nafn fyrirtæksins, sem maðurinn starfaði hjá.
Hvað er rangt við þessa mynd?
Ef menn horfa í smástund í hægra hornið uppi sjá menn væntanlega að ég er að auglýsa á síðu þar sem verið er að birta launin mín.
Var einn af þeim sem fóru á Clapton. Keypti reyndar ekki nægjanlegt rafmagn til þess að OR byði mér, en komst hins vegar að því að þeim var ekki boðið í VIP stúkuna.
Það er frekar súrt boð að vera boðið á tónleika og vera “bara” á A-svæði. Þarna voru hundruð manns sem fengu sæti, á með Orkuveitan og ýmsir aðrir buðu upp á standandi svita. Ég hefði viljað vera einn af þeim. Enda orðinn frekar þreyttur í löppunum og ansi heitt undir lokin.
Ellen byrjaði og var með mjög furðulega tónlist. Ég skildi ekkert í tónlistinni, ekki frekar en bílflauti. Skrítið að koma á svona tónleika og frumflytja 5 af 6 lögum, þegar maður er upphitunarband. Hefði viljað sjá eitthvað sem maður þekkir.
Fyrir utan hita var Clapton la la. Eins og að vera mættur í fiskiskurð út á Granda. Kláraði vinnuna sína óaðfinnanlega en engin vinnugleði í mannskapnum. Á endanum komu lög sem maður þekkti en fyrrihlutinn var tómur blús á alla kanta.
Einhver besta leiðin í dag til að vekja snöggt umtal er að bögga bloggarana, ég var þess vegna eiginlega hissa á því að Mannlíf hefði sleppt út þessum flokki en í fyrra fékk blaðið töluverða umfjöllun út á að birta laun bloggara. Bæði neikvæða og jákvæða umföllun.
DV tók á sig ómakið eins og tvíböku bloggarinn Gurrý hafði sagt fyrir um.
Í fyrra var listinn birtur á netinu nokkuð víða og má meðal annars finna hér, menn geta svo vellt fyrir sér launaþróun bloggsamfélagsins.
Ég reyndar keypti mér ekki <a href=”http://www.dv.is”>DV</a> í dag en ég sá hins vegar forsíðuna. Þar er því slegið upp sem sérstöku hneyksli “útvöldum” hafi verið boðið á Clapton.
Nú var ég fyrir nokkrum árum að vinna hjá fyrirtæki sem keypti orku fyrir nokkrar milljónir á mánuði. Á þeim tíma var ekki búið að opna fyrir orkumarkaðinn, en á endanum var farið í ótrygga orku og vonast til þess að raforkulögunum yrði breytt með aukinni samkeppni. Það var gert.
Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá er Orkuveitan að keppa á samkeppnismarkaði og þarf á sínu að halda til þess að halda í sína viðskiptavini.
Nú veit ég ekki hversu mörgum var boðið, en væntanlega voru þessir útvöldu forsvarsmenn mjög stórra kaupenda (fyrirtækja, bæjar og ríkis). Þetta eru kaupendur sem eru að kaupa fyrir milljónir af fyrirtækinu.
Hafi OR áttað sig á samkeppninni og er að gera eitthvað fyrir viðskiptavini sína þá fagna ég því. Það styrkir væntanlega fyrirtækið. Það eitt veit ég að góðir kúnnar ákveðinna banka eru í hópi Clapton gesta á morgun, þótt ég sé ekki einni þeirra og þótt bankakreppan sé í bullandi gangi.
Það er óhætt að segja að verið sé að gera úr úlfalda úr mýflugu með þessari frétt. Ég sat ekki þessa fundi (þeir voru fleiri en einn) en hringdi nokkur símtöl í dag og menn muna ekki sérstaklega eftir þessu. Það er því líklegt að þetta hafi þá verið rætt á einum þeira og væntanlega í umræðu tíma.
Það er samt sorglegt að vita til þess að umræða á svona fundum skuli leka til fjölmiðla og mun í framhaldi væntanlega rýra traust stjórnmálamanna eins og Hönnu sem hafa treyst því að það sem hefur verið sagt á þessum fundum hafi ekki lekið á netið eða í fjölmiðla. Hingað til hefur það verið virt.
Varðandi umræðu um prófkjör, held ég að flestir séu á því að það eigi að fara fram. Það er nauðsynlegt eftir þau átök sem fram hafa farið innan flokksins.
Myglusveppur var aftur í urmæðunni í dag, þegar borgin var í vandræðum vegna myglusvepps. Það sorglega við þetta er auðvitað að það hefði mátt svo auðveldlega koma í veg fyrir þetta en grundvallar atriði er að halda rakastiginu réttu.
Menn þurfua að fylgjast vel með rakastiginu heima hjá sér. Ég er með þurrktæki í gangi heima hjá mér allan sólarhringinn, meðal annars vegna þess að ég get ekki loftað nægjanlega vel úti hérna hjá mér. Niðurstaðan var alltof of hátt rakastig, þangað til ég fékk mér þurrktæki. Loftið er miklu betra á eftir.
Sama gildir um fjölmörg hús sem eru annað hvort of lek, gömul eða ekki hægt að lofta nægjanlega vel í gegn. Rakastigið verður of hátt, hitastigið kjör hitastig og aðstæður til þess að sveppur þrýfist.
Það er eiginlega ótrúlegt að sú vakning sem hefur verið undanfarið ár hafi ekki orðið fyrr á Íslandi.
Undanfarið hef ég töluvert fjallað um tekjublöðin, upphaflega hélt ég að það væri bara 1 blað, en áfram er eiginlega bara 1 blað þótt það hafi verið gefin út 2. Ég skoðaði mannlífsblaðið og sá að það virðist mun verr verið haldið um það blaði og fullt af stafsetningarvillum í blaðinu en um leið efast maður um útreikningana. Það er nokkuð fyndið að heyra menn tala um “stóra” tekjublaðið þegar annað blaðið er með 2500 en hitt er með 2550. Þá vill maður frekar “áreiðanlega” tekjublaðið eða hvað?
Vísir fór svo að með sína útgáfu. Reyndar segja þeir 500 en að er auðvelt að sjá að svo er alls ekki. Þeir eru ekki einu sinni með launin hjá öllum þeim sem þeir eru með myndir af. Myndirnar eru góðar.
Enn og aftur kemur Ögmundur fram alltof seint, nú liggur hann yfir þessum tekjublöðum og fær þá góðu hugmynd að forstjórar lækki launin sín og seli bílana sína. Týpískt þegar stjórnmálamenn eru að vesenast í svona hlutum. Góð hugmynd en eitthvað svo 2007. Ég held að fæstir forstjórar séu á sömu launum og í fyrra. Reyndar eru þeir en með sömu bíla, en einmitt vegna þess að þeir fá ekki fjármagn í nýjan bíl næstu mánuði.
Um leið og mikið hefur verið fjallað um laun bankamanna, sem svo sannarlega á rétt á sér hefur minna verið fjallað um laun fjölmiðlamanna.
Ég hlustaði á Sigurjón M Egilsson hneykslast á launum bankamanna í einhvejrum þætti í fyrradag, en svo frétti ég af því að hann sé með um 1300 þúsund á mánuði, sem afsökun er það víst sagt vera helmingi minna en það sem Moggaritstjórinn er með í laun. Ritstjóri DV er svo með um milljón á mánuði.
Hvernig er hægt að réttlæta þessi laun hjá fjölmiðlum sem ekki standa undir sér?
Í gær var ögmundur að pirrast út í SUS og kvarta undan því að menn væru að mótmæla birtingu álagningaskráa. Ég man reyndar ekki eftir að þeir hafi gert það í ár og því kvörtunin óþörf. Hins vegar talaði þingmaðurinn eins og þetta væri það eina sem SUS eyddi kröftum sínum í.
Ég ákvað því að henda saman einni lítilli grein á Deigluna:
Ögmundur Jónasson sagði í viðtali við Vísi að hann ætti þá ósk að frjálshyggjumenn hættu að berjast gegn birtingu álagningarskráa. Það er ótrúlegt að þetta sé aðal ósk Ögmundar, þegar það eru svo miklu betri hlutir sem hann gæti óskað sér fyrir skjólstæðinga sína.
Ég veit ekki alveg hvað er að femínistafélaginu, en það er greinilega nokkuð.
Upphafleg yfirlýsing karla klúbbsins held ég að hafi verið mistök. Einfaldlega spurðir af vísi.is og orðið að svara, hins vegar er þetta orðið of langt gengið þegar félagið er farið að segja fólki hvað þá á að gera á fylleríi er orðið af langt gengið.
Þurfi menn sönnun á því hvernig fólk hegðar sér er málið bara að skoða Kastljós kvöldins, þar sáum við stemmninguna.
p.s. Ég vorkenndi Jóa og Alta lítið að fara í þetta flug til Kína, enda hef ég svo oft flogið alveg jafn lengi og þeir þegar ég hef farið þangað.
Ég hugsa að það verði bara 1 tekjublað í ár, já og 1 minni vefur hjá vísi. Mannlíf var með blað í fyrra, en ég hef lítið heyrt af því í ár. Íslendingar munu því bara geta uppfyllt gægjuþörfinni í boði Frjálsrar verslunar í ár.
Er þetta ekki svona eins og skoða partýmyndir daginn eftir, þegar menn eru að þrífa æluna?
Það er ekkert nýtt að ég er algjörlega á móti birtingu þessara upplýsinga. Ég held að það gildi um þetta eins og svo margt: Við viljum sjá þessar upplýsingar, svo lengi sem það er ekki verið að skoða okkur.
Fyrst það er lífsins nauðsynlegt að birta þessar upplýsingar, því er það gert á þennan máta? Það er ótrúlegt að menn þurfi að fara niður á skattinn og sækja þessar upplýsingar. Ég þarf meira að segja fara í skattumdæmi hvers og eins! Hefur Skattstjóri ekki heyrt af netinu? Ætti ég ekki að geta skráð mig inn á vef skattstjóra og sótt þessar upplýsingar allt árið um kring? Er eitthvað minni líkur á að mig gruni nágranna minn um skattsvik um jólin heldur en í ágúst?
En að hafa þetta í heimabankanum? Bara hlekkur fyrir neðan þjóðskrá sem héti skattskrá! Í staðin fyrir heimilisfang kæmu upplýsingar um útsvar!
Það mætti jafnvel uppfæra þetta frekar, þar sem hægt væri að skoða þetta í rauntíma. Ef ég sé að nágranni minn var að kaupa sér bíl, gæti ég farið inn á vefinn séð hvort hann greitt óvenju háan skatt um seinust mánaðarmót eða fengið háa upphæða greidda svarta.
Ég reyndar efast um það að menn myndu sætta sig við það og í raun á þeim tímum þegar persónuvernd er að vernda ýmiskonar ómerkilegar upplýsingar en svo má birta í fjölmiðlum hvað ég hafði há laun í fyrra. Það í boði ríkisins.
Ég veit að þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég skrifa um þetta (árlegur viðburður), en hins vegar hef ég alltaf auglýst eftir einu og ætla að gera það núna, því ég hef aldrei fengið svar við þessu. Getur einhver bent mér á gott dæmi þar sem þessar upplýsingar hafa verið nýttar til þess að upplýsa stórfelld skattsvik?
Eða er þetta fyrst og fremst til þess fallið að uppfylla gægjuþörf okkar.