Forstjóri Iceland Express

Maður hefur á tilfinningunni að forstjóri Iceland Express hafi ekki gleymt pólitískum draumum. Fórnfúsi forstjórinn á þing! Er þetta ekki einmitt sem framsóknarmönnum vantar, eftir þau víg sem hafa átt sér stað undanfarin ár.

Ég veit ekki hvort það sé samt meðmæli að hafa verið forstjóri Iceland Express.

Tvö merkileg viðtöl

Ég veit ekki hvað vantaði upp á að Borgarstjóri strunsaði úr settinu hjá Helga Seljan í kvöld í beinni, en eins og Mundi bendir á hreytir hann einhverju í Helga og strunsar svo út. Guðna tókst það sama þegar hann strunsað út í beinni í viðtali hjá Sverri Stormsker.

Báðir vissu þeir nákvæmlega hvað þeir voru að fara út í. Hafi Helgi beitt pólitískri misnotkun og stöðugt reynt að trufla er það ekkert sem kemur á óvart enda er það hans aðferð og hefur alltaf verið.   Hafi Guðni haldið að Sverrir myndi spyrja hann hefðbundinna spurninga yfir kaffibolla, ætti Guðni að endurskoða veru sína sem formaður Framsóknar, enda vita allri sem vilja vita hvernig Sverrir er (spyrjið bara Eyva).   Þetta er svona eins og að mæta í settið hjá Sveppa og félögum og vera svo alveg hissa á að vera boðið upp á ógeðisdrykkinn (en ekki ræða um málefnin og svara spurningum).  Menn hefðu átt að velta fyrir sér áður en leiðin lá í settið en ekki eftir á.

Svona að lokum er ég ekki viss um að Sprengjuhöllin vilji hafa þennan Kastljósþátt í mikilli sýningu.  Ef einhver hefði átt að rjúka úr settinu hefðu það átt að vera þeir, ég vona að útsendingin hafi verið gölluð þeirra vegna.

Hitnar í kolunum

Versta við að starfa við sölu á loftkælingu er að þegar hitamet eru slegin er allt á fullu hjá manni og engin tími til að njóta veðursins. Ansi margir komust að þeirri niðurstöðu í dag að loftkæling væri málið. Reyndar var það auðvitað ekki bara loftkæling, heldur viftur og önnur kæling líka.

Líklega var stærsti dagur í sögu fyrirtækisins í dag og það í miðri kreppunni. Maður getur ekki verið annað en ánægður með það, jafnvel þótt ég hafi minnst fengið að njóta hitans.

Myndin

Ólafur F

Manni finnst eiginlega ekkert vanta upp á þessa valdmannlegu mynd, nema ef vera skildi föt við hæfi Laugarvegins eða valdmannlegan staf.

Ætli þessi mynd verði ekki tákn fyrir valdatíma Ólafs Borgarstjóra.

Er slæmt að selja tónlist?

Undanfarið hefur verið mikið rætt um “sellout” ýmissa tónlistarmanna í auglýsingar.   Ýmsir tala eins og tónlistarmenn eigi helst að borða úr nösunum á sér og spila á litlum krám, annað sé “sellout”  Í Mogganum um helgina var skrifað um andlát pönksins og í dag var upplýst að reynt hefði verið að fá  Ó, Reykjavík í Vodafone auglýsinguna.

Reyndar dettur Óttar Proppé í ótrúlega vörn, eins og þess sé þörf.

Fjölmörg dæmi er um að hljómsveitir sem annað hvort voru ekki frægar eða farnar að kulna hafi náð eyrum nýs hóps áheyrenda með því að selja þær í auglýsingar. 

Sjálfsagt eru margir að heyra Megas í fyrsta skipti af yngri kynslóðinni (fyrir einhverja alvöru).  Það skildi þó ekki vera að hann seldi meira af plötum fyrir vikið!  Jafnvel svo mikið að það bæti margfalt fyrir þá fýlupúka sem kalla hann “sellout”.

Ef ég hefði þá hæfni til þess að skrifa meistaraverk, og væri boðið milljónir fyrir að fá lagið, er einfalt hvað ég hefði ákveðið.

Á hinn bóginn skilur maður menn sem vilja ekki selja lögin sín.  Það er auðvitað þeirra val og ekki mitt að dæma þá.

Hafinn yfir vafa

Er ekki eitthvað pínlegt við að að sú sem sagt að: “Heiðarleiki borgarstjóra er hafinn yfir vafa”, skuli nú hafa verið kippt út úr skipulagsráði vegna þess að hún sagðist þurfa að kynna sér málið varðandi Listaháskólann.

Það er nefnilega það.

Skítt með kerfið – og fánalögin

Hrannar, upplýsingafulltrúi Vodafone, heldur að fólk sé fífl.   Það sé munur á fánalitunum og fánanum.    Það sjá það allir óblindir menn að þarna er fánininn á ferðinni og þeir eru bara að dansa á línunni, sjálfsagt með því hugarfari að fánafasistar ráðist á þá og að slæmt umtal sé betra en ekkert umtal. Þeir verða nú að mæta hinu símafyrirtækinu í þeirri umræðu.

Það er álíka mikill útúrsnúningur hjá Hrannari og þegar menn skrifa “léttöl” um leið og menn auglýsa bjór.

Það er því fullkomlega eðlilegt að Hrannar og félagar verði kærðir svo úr því fáist skorið hvernig má fífla íslenska fánann. 

Góðar breytingar hjá ISNIC

Ég sé að Isnic er búið að breyta hjá sér þannig að það er hægt að borga beint í gegnum netið.  Jafnframt er hægt að skrá greiðslur, þannig að lénið verði örugglega greitt. 

Þetta er frábær nýjung hjá ISNIC, þetta ásamt því að nú er hægt að skrá lén þótt ekki sé búið að skrá neina nafnaþjóna.

Eina sem ég sakna er þegar þeir sendu út skráningar á lénum.  Ég skil reyndar vel að því hafi verið hætt, en samt var áhugavert að sjá þau lén sem voru skráð. 

Illa merktar leiðir í kringum Keili

Var að koma úr göngu af Keilinum, eftir að hafa farið út af Keflavíkurveginum á velmerktum slóða var leiðinlegt hvað leiðin var illa merkt.   Mér tókst að villast tvisvar áður en ég kom að stæðinu þaðan sem er gengið frá, meðal annars ofan í malargrifjur.  Þetta er ofboðslega fallegt svæði og leiðinlegt að það skuli ekki vera betur merkt.

Seinheppin Valgerður

Í dag skrifa ég pistil á Deiglunna vegna bloggsins hennar Valgerðar. Þau eru endalaust seinheppin í gagnrýni sinni. Furðuleg nálgun að skjóta sendiboðan.

Seinheppin Valgerður

===

Í gær skrifar Valgerður Sverrisdóttir um áhyggjur sínar af því að Geir H. Haarde hafi ráðið Tryggva Þór Herbertsson, sem efnahagsráðgjafa. Hún skrifar pistil á heimasíðunni sinni þar sem hún veltir fyrir sér seinheppni Geirs Haarde.

Valgerði væri kannski nær að velta fyrir sér seinheppni eigin flokks. Framsókn hefur gengið ákaflega illa að fóta sig í stjórnarandstöðunni og þegar hún ræðst gegn Tryggva Þór er það enn eitt vindhögg Framsóknarmanna.

Valgerður fullyrðir það að Tryggvi hafi „lengi talað fyrir sjónarmiðum Sjálfstæðisflokksins“. Hún bendir þó ekki á nokkur dæmi eða rök máli sínu til stuðnings. Miðað við þessa stóru fullyrðu hefði Valgerður átt á að benda á eitthvað máli sínu til stuðnings. Fyrst þetta er svona ítrekað, hefði henni átt að vera í lófa lagt að finna gott dæmi og kasta fram.

Valgerður hefur ekki séð neina ástæðu til þess að nefna þetta áður en Tryggvi hefur tekið að sér fjölmörg verkefni fyrir Ríkið. Halldór Ásgrímsson sá sérstaka ástæðu til að vitna í skýrslu Tryggva og Frederic S. Mishkin í ræðu sinni á viðskiptaþingi Viðskiptaráðs 15. maí árið 2006. Þar hrósar hann þeim og segist sammála.

Valgerður sakar Tryggva einnig um að „í ræðu og riti verið harður andstæðingur Evrópusjónarmiða“ og vitnar jafnframt til skýrslu sem hann gerði ásamt Geir Zoega. Sú skýrsla athugaði fjölmargar kosti í gengissamstarfi, niðurstaða skýrslunnar var: “Annars vegar að halda núverandi fyrirkomulagi og hins vegar að ganga í Evrópusambandið og taka upp evruna”. Það er varla hægt að segja að hann hafi fundið Evrópusambandinu allt til foráttu þegar hann á þessum tíma metur stöðuna svo að nú verandi fyrirkomulag sé betra en næsti kostur sé upptaka Evrunnar. Þetta var gert eftir að hafa metið þá kosti sem voru mögulegir í stöðunni.

Varðandi starf hans fyrir Askar Capital, hefur það frekar aukið reynslu hans síðan hann starfaði fyrir Hagfræðistofnun og gefið honum nýja sýn. Það er heldur ekki eins og tillögur hans munu fara ólesnar yfir í framkvæmd. Það er þarf því lítið að óttast að þótt hann hafi tekið sér frí frá forstjórastöðu sinni.

Sem flokkur hefur Framsóknarflokkurinn verið í stöðugum vanda á þessu kjörtímabili. Um leið Sjálfstæðisflokkurinn hefur gefið eftir vegna dræmrar stöðu hagkerfisins, hefur Framsóknarflokknum ekki tekist að nýta sér það í eigin hag. Þvert á móti hefur flokkurinn misst þriðjung þess fylgis sem hann hafði í seinustu kosningum. Geri aðrir betur án þess að hafa gert stórkostleg mistök eða lent í stórum hneykslismálum.

Sú umræða sem Valgerður leggur af stað með að þessu sinni ber ekki vott um að flokkurinn sé að fóta sig í stjórnarandstöðunni. Þessi gagnrýni er vindhögg, en í stað þess að gangrýna að ríkisstjórnin hafi yfir höfuð þurft að ráða sér ráðgjafa, er reynt að efast um hæfni ráðgjafans.

Ríkisstjórnin á hins vegar heiður skilinn fyrir að viðurkenna vandann, og á opinberan hátt reyna að vinna gegn honum. Í þessari stöðu er Tryggvi Þór maðurinn með reynsluna og því réttur maður á réttum stað.

Minn gamli heimabær

Skemmtileg saga, það sem gerir hana enn skemmtilegri er að þetta er minn gamli heimabær. Í Oldenzaal bjó ég í heilt ár.

Fyrir betra eða verra þá mótaðist maður ansi mikið á þessu ári, enda á mjög mikilvægt ár þegar maður var 16 ára. Einn í útlöndum.

Ef þú smælar…

Gat ekki annað en brosað af auglýsingu Iceland Express í morgun í blaðinu, þar sem sagt var “Þegar þú brosir, þá brosum við”. Ég skal fúslega viðurkenna að viðhorf starfsfólksins hefur alltaf verið fín og þau hafa reynt að gera sitt besta. En stjórnendur félagsins eru út úr öllu korti og viðhorf þeirra til farþega líkara bónda sem er að smala sauðgripum heim af fjalli.

Komin heim – áhugaverð umræða

Ég er komin heim heilu á höldnu heim. Ég veit ekki hvort ég eigi að hrósa Iceland Express fyrir að hafa bara verið 40 mínútum of seinir. Þessa seinustu og verstu virðist það vera nokkuð gott, enda undirbjó ég mig undir ýmislegt áður en ég fór út á flugvöll.

Ég sé að mál málanna hér heima hefur verið tenging krónunnar við Evruna.

Árni Helgason er komin í hóp Eyjubloggara, það er mjög góð viðbót. Árni á einmitt ansi góðan pistil um tengingu íslensku krónunnar við Evruna. Það er rétt hjá Árna og Jónasi að mönnum sé holt að skipta reglulega um skoðanir.

Ég hef sjálfur verið í hópi þeirra sem hafa séð kosti þess og galla að ganga til liðs við Evrópusambandið.

Þegar ég bjó í Svíþjóð börðust ungir hægrimenn fyrir því að losa böndin við Evrópusambandið. Þeir vildu viðskiptafrelsið og frjálst flæði fólks sem hafði heillað þá í upphafi þegar það voru hægrimenn sem börðust fyrir inngöngu. Þegar ég bjó í Svíþjóð í kringum 2002 þá var það kostnaður og reglubáknið sem þeir voru andstæðir. Þegar menn eru að færa lög og reglur upp á heilu löndin, má sjá árangurinn t.d. bara innan Svíþjóðar. Þannig eru vetrardekk bönnuð eftir ákveðin tíma, hins vegar eru íbúar norður-Svíþjóðar ekkert að fara að skipta þeim út á þeim tíma, hins vegar þurfa íbúar í Suður-Svíþjóð sjaldnast á þeim dekkjum. Svíar hafa sjálfir barist mikið fyrir því að munntóbakið verði ekki bannað, en þeir mega ekki flytja það út og sótt hefur verið að þeim að banna það heima fyrir.

Sama gildir um margar af þessum áhugaverðu reglum sem við höfum tekið upp. Della eins og þegar Íslendingar hættu að nota gular línur á þjóðvegum. Sagt var að þetta væri tilskipun frá Evrópusambandinu, þar sem menn þurfa ekki að hafa áhyggjur af þungum snjólögum eins og hér. Ólíkt Íslendingum hunsuðu Norðmenn þessa tilskipun og voru með gularlínur þegar ég keyrði þar fyrir nokkrum árum.

Hin hliðin er svo peningahliðin, en sem innflytjandi er maður alltaf á nálum hvort varan sem maður pantaði inn fyrir 2 mánuðum verði á sama verði þegar hún kemur til landsins. Bankarnir hafa verið duglegir að bjóða mér “varnir” en þær kosta sitt. Þetta gerir allar áætlanir og tilboð mun erfiðari en ella (nema að maður geri ráð fyrir vörnum og leggi það á vöruna). Það hafa því verið augljósir kostir við að halda tengjast annarri mynt. Hins vegar hafa mér ekki sýnst vera nein leið önnur en að ganga í Evrópusambandið, með þeim stóru göllum sem því fylgir.

Þetta hefur því verið vegasalt sem hefur í mínum huga vegið þyngra á þann veg að við eigum sleppa. Það væri því áhugavert að skoða hvort hægt væri að nýta fleiri kosti í þessu samstarfi með tengingu við Evruna án þess að ganga inn.

Express í vanda

Í upphafi vikunnar frétti ég af því að afísingarbúnaður Iceland Express hefði bilað, ég lenti sjálfur í nokkurri töf sem var aldrei var útskýrð fyrir mér eða öðrum, í dag er svo allt í einu sprungið hjá þeim.

Við þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar Samvinnuferðir-Landsýn var í greiðsluerfiðleikum, til þess að flugvélarnar flygju þurftu aðstandendurnir SL að mæta út á völl með poka af peningum. Þannig var mér sögð sú saga.

Það skildi þó ekki vera að menn séu farnir að mæta með poka út á flugvöll núna hjá Expres? Það er amk. eitthvað skrýtið við að 1 flugfélag lendi í þessu öllu í sömu vikunni. Skítt með kúnnann er algjörlega viðhorfið! Hafi þeir haft einhverja viðskiptavini er það núna umþb. að breytast þannig að það eru bara erlendir gestir sem þekkja ekki orðspor flugfélagsins.

Þessa stundi eru tugir eða hundruð sem bíða þess að menn skipta um dekk. 1 dekk! Hvað getur það tekið langan tíma. Það hefur nú tekið um 10 tíma að skipta um 1 dekk. Ef það er eitthvað meira afhverju hefur það t.d. ekki komið fram í fjölmiðlum eða verið tilkynnt?

Að sjálfsögðu eins og von er á vísa eru engar upplýsingar í boði nema í fjölmiðlum, þeir sem reka félagið eru komnir heim til sín og búnir að setja símsvarann á. Það virðist ekki skipta þá neinu máli að farþegar bíða úti á velli án þess að hafa nokkrar upplýsingar nema seinkun sem var seinkað klukkustund í einu! Ótrúlegt að þessi vera ekki bara heiðarlegir og upplýsa nákvæmlega hvað er í gangi.

Það er amk. ljóst að þegar ég verð búinn að fljúga þær ferðir sem ég á inni hjá þeim (ef það gengur eftir) mun ég verulega endurskoða hvaða flugfélag ég mun fljúga með í framtíðinni.

Enn heima í boði Iceland Express

Ég er ekkert sérstaklega himinlifandi, en í nótt klukkan 2.10 fékk ég SMS frá Iceland Express, svo þegar ég vaknaði klukkan 4 og byrjaði að gera mig kláran, komin með töskurnar og sótti símann, þá sé ég þetta ágæta SMS. Það var því ekkert annað að gera en að fara aftur að sofa. Ég sé nú ekki í fréttum að það sé vont veður, afísingarbúnaður bilaður eða aðrar óviðráðanlega orsaki eins og þetta heitir nú oftast hjá þessum flugfélögum.

Það vill hins vegar til að önnur vél frá þeim fer klukkan 15:30 og mjög óvænt fer mín vél þá líka! Einhvern vegin efast ég þó um að það séu 2 vélar að fara á sama tíma. Þetta er sjálfsagt hluti af sparnaðaráætluninni, enda fjöldi farþegar í báðum vélum ekki dugað nema til þess að fylla aðra.

Mér finnst mjög gagnrýnivert að þetta sé gert með svo skömmum fyrirvara. Sá Iceland Express ekki í hvað stefndi? Var ekki hægt að láta fólk vita með 2-3 daga fyrirvara eða er þetta eitthvað plott til þess að geta vitnað í “óviðráðanlegu orsakirnar”.

Nú er ég bara á leiðinni á námskeið í London, þannig að ekki þarf ég ekki að hafa áhyggjur af öðru en að finna hótelið mitt í myrkri, en námskeiðið er einhverstaðar í útjaðri London og ég hafði hugsað mér daginn í að finna réttan stað. Aðrir eru örugglega ekki svona heppnir, enda það góða við Standsted flugvöll að hann er heimavöllur svo margra lággjaldaflugfélaga. Ég býst við að margir hafi verið búnir að bóka sig áfram í önnur tengiflug.

Það virðist vera meira að gera hjá Almanntengli Iceland Express þessa dagana, heldur en Stoða. Því miður virðist viðhorfið vera sama og í auglýsingu Vodafone (skítt með ..), þar sem viðskiptavinirnir eru lítið metnir. Dæmi um þetta er að flugfélagið brýtur enn lög með því að birta ekki fullt verð heldur verð án skatta, þrátt fyrir það hafi marg ítrekað verið bent á þetta. Iceland Air er þó búið að breyta þessu.

Uppfært:
Ég sé að annar Eyjubloggari hefur lent í því saman og er álíka hress og ég með þetta.

Ný baraáta gegn spami

Ýmsir hafa bent mér á að spamvörnin mín hafi ekki gengið nægjanlega vel, í sumum vöfrum virtist ekki skipta máli hvað menn skrifuðu inn ekkert gekk.

Núna er ég komin með nýja spamvörn. Vonandi virkar hún betur.

Nýja lúkasaramálið?

Þjóðarsál Íslendinga er nokkuð skemmtileg, fyrst var algjör múgæsing yfir máli Pauls en svo breyttist þetta í að vera nýjasta Lúkasarmálið.

Það er reyndar út í hött að bera saman annars vegar fár út af dauðum hundi (eins og menn héldu) og hins vegar baráttu manns fyrir betra lífi.

Ég hef enga trú á því að Paul sé í raunverulegri hættu í Kenýa, meira að segja Kjartan Jónsson frá vinum Kenýa gat ekki annað en vitnað til þess að það ætti að veita honum hæli fyrir „þurfa að búa í Nairóbí“, vegna ástandsins þar.  Þar búa 3 milljónir, þannig að við ættum fljótlega von á nokkuð fleirum samkvæmt þeim rökum.  

Einna merkilegust fannst mér skoðun framkvæmdarstjóra Alþjóðahússins, sem var ekki tilbúinn að hoppa á þann vagn að gagnrýna Ríkisstjórnina fyrir þetta. 

Hins vegar hefur þetta mál orðið til að benda okkur á við hvernig kerfi við búum í dag.  Þær ómannúðlegu aðstæður sem það fólk sem sækir okkur býr við.  Það er eitthvað sem við þurfum að laga, hvort sem Paul sé að ýkja til auka líkurnar sínar á að búa hérna eður ei.

Nýtt DV.is

Dv.is er mjög flottur eftir breytingarnar, og miklu meira af skemmtilegum upplýsingum á vefnum. Í fyrstu datt mér í hug að þeir hefðu notað Wordpress. Margt við uppsetningu vefjarins minnir á fídúsa þess. Hins vegar þegar ég skoðaði Admin sé ég að svo er ekki. Því miður gat ég ekki séð að kerfið sé einkennt á neinn hátt.

Núna þarf DV.is að finna fleiri leiðir til þess að auka tekjugrunn sinn.

Gangur lífsins

Get ekki annað en bent á þessa snilldar athugasemd við þessa frétt:

Það sem ég hef orðið var við þá passar þetta allveg. Á mínum vinnustað hefur þetta einmitt verið að gerast. Stelpurnar vilja töffara, sem endar oftar en ekki með barnai og þá eru þeir farnir. En rólegi, vinnusami, og hægláti maður er einn og fær enga kvensu. Og svo endar þetta með því að hann flýtur til Filippseyja og nær sér í glæsilega konu . Og brosir út að eyrum. Þessu hef ég orðið vitni að.

Þá vitum við það!

Guðmundur, hættu þessu væli!

Samkvæmt viðtali við Viðskiptablaðið þá er Guðmundur Þórodsson að undirbúa stofnun á nýju orkufyrirtæki. Sögusagnir hafa verið um að Guðmundur sé að vinna að þessu og fyrrverandi starfsmenn hans hjá REI ætli að koma til hans.Það er ekki leiðinleg staða að vera á fullu að stofna fyrirtæki með meðgjöf frá sínum gamla vinnuveitanda, á fullum launum með síma og bíl.

Um leið spilar hann sig eitthvað fórnarlamb, og segir að þetta sé eitthvað spinn hjá stjórnmálamönnum. Meira að segja hans gamli yfirmaður Alfreð Þorsteinsson, kom í fjölmiðla og tala um hvað Guðmundur sé góður drengur.

Ég held að Guðmundur ætti að hætta þessu væli. Hann ætti ekki að vera neitt hissa á að hans gamli vinnuveitandi sé ekkert sérstaklega hress með stöðuna, hann með fulla kassa af trúnaðargögnum að undirbúa stofnun fyrirtækis í sama geira.

Ef Guðmundur segir satt og rétt frá að þessi gögn muni ekkert gagnast honum, ætti að vera lítið mál fyrir hann að henda þessum kössum upp í Orkuveitu.

Hann getur þá alla vegana einbeitt sér að því að stofna þetta fyrirtæki og úthluta sér og sínum mönnum þær milljónir sem hann vildi upphaflega gera í REI. Í dag eru allir að leita að umhverfisvænni orku, og jafnvel í fjármálakreppunni eru enn til peningar í slík verkefni, fátt bendir til annars en að hann geti komið slíku fyrirtæki á legg og gert góða hluti.

Það er bara algjör óþarfi að gera það með það orðspor að hann hafi gert það með trúnaðargögnum frá OR, hvað sem lögfræðingar hans segja.

WordPress Themes