Fyrir ári síðan hringdi nokkuð hrjúf rödd í mig og sagði mér frá áhugaverðu verkefni. Verkefni sem mér fannst spennandi og nokkuð framsækið. Reyndar hafði ég heyrt aðeins af þessu nokkru áður þegar Andrés Jónsson hringdi og spurði mig hvort ég hefði áhuga á að taka þátt.
Þetta verkefni var Eyjan. Hrjúfa röddin var Pétur Gunnarsson.
Síðan þá hefur Eyjan alltaf verið minn fyrsti upphafstaður á netinu enda hluti af Eyjuteyminu. Síðan þá hef ég reglulega átt í samskiptum við Pétur, meðal annars út af misnotkun á myndinni minni góðu, 30 bjóra færslunum mínum sem voru að gera ýmsa brjálaða og svo hugmyndum um þróun bloggarana. Það er ekki spurning að ég á eftir að sakna Péturs.
Það verður spennandi að fylgjast með vefritinu í höndum Hallgríms. Ég þekki Hallgrím ekki neitt og hef aldrei talað við hann. Ég fylgdist vel með honum þegar Útvarp Saga byrjaði og svo í framhaldi þegar sú útvarpsrás hóf starfsemi á eigin vegum. Einhvern vegin hef ég alltaf séð Hallgrím fyrst og fremst sem útvarpsmann. Það verður gaman að fylgjast með þessu. Það er nokkuð víst að vefur eins og Eyjan krefst mikillar viðveru.
Átti mjög góða helgi, þar sem ég gekk yfir Fimmvörðuháls. Það væri lygi að segja að þetta hafi verið ferð þar sem ég hafi verið einn í náttúrunni. Það var næstum óslitin röð frá Skógum og yfir í Bása.
Magga Best bendir á Sigga vin sinn í löngu og frekar leiðinlegu máli. Í öllum þessum prívat texta fann ég hins það sem skiptir máli, hann er að bjóða upp á ókeypis hýsingu á DNS!
Sem er frábær þjónusta og um leið skemmtilega mótsagnarkennd.
Hann lifir sem sagt á því að hýsa lén, en með þessu sér hann til þess að menn geti á einfaldan máta farið og keypt sér ódýra vefhýsingu annar staðar! Fá erlend hýsingarfyrirtæki hafa nennt að setja sig inn í íslenskar aðstæður og t.d. bluehost var með allt í lagi fyrir nokkrum árum ákvað að hætta því, lentu hundruð íslensk lén í vandræðum.
Þau hefðu sem sagt ekki lent í því með hjálp 1984.
Búinn að vera að fara reglulega inn á vef Flugleiða undanfarna daga og séð á hverjum degi tilkynningu um sameiningu eða niðurfelling á flugi. Það sem hefur verið sameiginlegt með þessu tilkynningum er að það hefur verið af óviðráðanlegum orsökum. Hvað ætli sé óviðráðanleg orsök? Of léleg bókun í flugvél?
Annað sem hefur einkennt þessar tilkynningar er að þær hafa jafnóðum horfið af yfirlitsíðunni með fréttir. Þannig er efsta fréttin seinasta tilkynniningin en hinar tvær eru hvergi að sjá!
Ætli fólk sem hefur keypt sér tengiflug sé mjög glatt með þessar breytingar? Ég veit að ég yrði ekki sáttur.
Þessi mynd er óvenju skýr “fréttamynd” komandi frá bloggara og greiningin ítarleg. Með svona skýra mynd er ég hissa á að viðkomandi aðilar skuli ekki hafa brugðist við þessu og reynt að hreinsa orðsporið. Líklega er það hversu lítil viðbrögð þetta hefur fengið á blogginu, en hins vegar hefur þetta farið eins og eldur um sinu í heitupottunum. Enda myndin svo auðskilin að hver sem eru getur skilið hana.
Nú þekki ég þetta fólk af góðu einu og hef enga trú á þessu. Því hljóta að koma einhver svör um þetta.
Það getur verið mjög erfitt að vinna upp almenningsálitið, hafi menn misst það.
Nú auglýsa menn sem eru að selja hjólhýsi og ferðabíla ALVÖRU útsölu. Ég veit ekki hver er munurinn á alvöuru útsölu og útsölu, ég er hins vegar nokkuð viss um að salan sé ekki mikil þessa dagana. Menn eru sjálfsagt fyrst og fremst að reyna að losa sig við lagerinn, jafnvel án mikillar álagningar.
Það er greinilegt að vefsíðan Baugsmalid.is hefur ekki vakið þá athygli sem eigandi síðunnar vonaðist eftir. Hún er amk. auglýst nú í útvarpinu fyrir fréttirnar.
Maður heyrir alveg glamra í yfirvigtarbuddu Flugleiða þessa dagana. Í tilkynningu segir að það eigi að létta vélarnar, meðal annars með því að ná betri röðun í farangri. Hvað er betri röðun? Er það ekki bara það að við eigum eftir að þurfa að fara með minni farangur, hvort sem er handfarangur eða sá venjulegi?
Um leið og maður skilur að vel að flugélögin þurfa að draga saman seglin, vonast maður til þess að þetta verði gert á þann veg að það verði ekki verra að ferðast með þeim en í dag. Nógu slæmt finnst manni nú oft ástandið, þegar maður er að ferðast með þessum flugfélögum. Ekki skiptir þá máli hjá hvoru maður er að ferðast.
Mest vorkennir vorkennir maður auðvitað starfsfólkinu þessa dagana. Ótrúlegt hvað það er farið mörg aftur í tímann miðað við fréttir kvöldsins. Fólki sagt upp með allt að 9 ára starfsreynslu!
Ég hef áður nefnt það hérna, að það er ágætt að vera auglýsandi:
á sumrin
í þessu árferði
Hingað til hef ég alltaf getað fengið góða díla á sumrin, þegar margir auglýsendur halda að sér höndum. Núna er greinilegt að menn halda að sér höndum sem aldrei fyrr. Klassíska setningin er núna að það er gott að auglýsa í kreppu, þá fær maður svo góða auglýsingadíla. Ég hef heyrt hana nokkrum sinnum undanfarnar vikur hjá góðum auglýsingasölumönnum.
Hins vegar er líklega ekki jafn jákvætt að ég fæ fleirri símtöl með góðum dílum (sem ég nb. fagna mjög), heldur en raunverulegum viðskiptavinum.
Ætli það segi ekki eitthvað um ástandið í þjóðfélaginu?
Ég stefndi á að skreppa til Finnlands með félögum mínum í JCIEsju en varð því miður að verða af þeirri skemmtun. Í staðin fyrir það beið mín myndakvöld á föstudaginn, þar sem ég sá helstu hápunkta ferðarinnar.
Tryggvi félagi minn tók þessa glæsilegu mynd, en ég skemmti mér nokkuð yfir að hann tæki bara myndir af blómum og öðru ómerkilegu. Hann átti samt nokkrar ansi sleipar í ferðinni.
Hins vegar var þetta myndband ekki tekið upp í Turku, en var liður í keppni um glæsilegasta myndbandið.
Lenti í því áðan að lénið rann út. Það var létt og einfalt verk og fara og greiða af þessu léni og í leiðinni nokkur önnur sem ég vil halda í. Potturinn er því komin úr smá leyfi.
Andrés Magnússon á góða greiningu vegna greina Svans Kristjánssonar, sem virðist hafa birgt ansi margt inni seinustu 20 árin.
Fyrir utan þessa ágætu greiningu Andrésar, finnst mér stórkostlega merkilegt hvernig Svanur talar niður til síns eigins skóla, gerir lítið úr árangri skólans og þar með eigin vinnustað.
Á flestum öðrum vinnustöðum hefði þessi maður ekki haldið lengur vinnunni.
Á sama tíma og hann hamrar á því hversu óhæfur skóli HÍ er og Hannes, má spyrja sig hvert hans framlag hefur verið til þess að skólinn verði einn af 100 bestu skólum í heiminum? Hingað til hefur manni fundist hann helst hafa verið í hópi þeirra manna sem hafa komið í fjölmiðla og gjammað og þá oftast til að tala niður Sjálfstæðisflokkinn. En miðað við þessar greinar hefur hans framlag sjálfsagt verið eitthvað stórkostlegt, sem hefur farið fram hjá okkur leikmönnunum.
Fyrst farð er að ræða um þennan 100 háskólalista, þá má velta því fyrir sér hvort staða Háskólans hafi batnað á undanförnum árum. Hérna er ágætis grein eftir Pawel um þetta. Örlögin hafa síðar gert það að verkum að Pawel er starfandi hjá samkeppnisskóla HÍ, þótt hann hafi ekki verið það þá.
Ég velti fyrir mér hvað Hagkaup getur opnað margar risabúðir? Núna eru þeir að opna 4500 fm risamarkað, beint ofan í ástandið eins og það er í dag.
Ég hef einu sinni átt leið um Hagkaup í Holtagörðum, og það var á föstudegi um 6 leytið. Yfirleitt þegar allt er brjálað að gera t.d. versluninni þeirra hérna í Spönginni. Á sama tíma var þessi risa búð nánast tóm. Það var afgreitt á 2 kössum og ég komst beint að.
Nú standa menn að baki þessum verslunum sem eiga fulla vasa fjár, en maður hlýtur að minnsta kosti að spyrja sig hvort þeir hafi ekki eitthvað betra við peninginn minn að gera en að opna hvert tóma gímaldið á fætur öðru. Þeir geta amk. lækkað matarverð, ef álagningin er svona fín.
Friðjóni finnst sorglegt ástand í SUS af því hann langar til þess að lögleiðing fíkniefna verði rædd í SUS en þau voru efst (ofarlega) á baugi þegar hann var þar virkur. Eins og Mundi benti á þá eru þessar minningar frá seinust öld.
Ég veit nú ekki hvað er sérstaklega sorglegt við að menn skuli ekki nenna endalaust að hamast í sama gírnum. Menn hafa greinilega rætt þessi mál í tæplega 20 ár, og ekkert nýtt komið fram.
SUS hefur verið mjög öflugt undanfarið og var meðal annars með opin stjórnarfund í gær. Hreyfingin var nú ekki lokaðri fyrir svona málefnum, en að sé áhugi hjá þessum málefnahópum geta þeir einfaldlega tekið upp þessi mál. Hafi Friðjón áhuga á að koma málinu að skella sér eða senda pósta á sömu menn um að koma þessu að hjá hópunum.
Ég held bara að mönnum finnist önnur málefni vera brýnni.
Almannatengillinn sem nú segir okkur frá því hvernig Eimskip tókst að klúðra 10 milljörðum, sem sá sami og stóð vaktina þegar FL group. Hann er greinilega ekki öfundsverður af sínu starfi.
Það er eiginlega ótrúlegt að hlusta á hann segja okkur frá fyrverandi forstjóra, hvernig honum tókst að klúðra málunum fyrir alla aðra en sjálfa sig. Svo er það bara miskilningur að hann hafi fengið milljarð í vasann.
Það er nú bara samt svo að það er enginn misskilningur, hann tók óskabarn þjóðarinnar og sigldi því næstum í strand, og fær svo milljarð í vasan fyrir það.