Eftir að hafa auglýst jarðarför ríkisstjórnarinnar alla vikuna, verður að segjast að sú jarðaför sem fór fram á Austuvelli í dag var fyrst og fremst jarðaför mótmælendanna sjálfra. Það sagði nú ýmislegt um hversu mikið þessi mótmæli hafa gengið sér til húðar að þrátt fyrir að hafa auglýst fyrir hundruð þúsunda, þá mættu örfáar sálir á staðinn.
Það skildi ekki vera að hluti af málinu er þegar menn eins og Sturla láta “peningaöflin” kaupa sig og hann gerði þegar hann seldi sál sína til EJS. Er ekki betra að vera trúr málstaðnum en að selja sig fyrir nokkra þúsundkalla og missa trúverðugleikan eins og hann gerði?
Nú hafa mótmælendur auglýst jarðaför ríkisstjórnarinnar alla vikuna í fjölmiðlum. Það stendur til að halda jarðarför næsta laugardag og ætlar Sturla vörubílstjóri að standa fyrir jarðarförinni. Undanfarið hefur ekki verið fjölmennt í kringum Sturlu og hann vonast greinilega eftir miklum fjölda á laugardaginn.
Það er nokkuð fyndið að þessir menn sem kvarta undan bágum kjörum og að þeir séu á hausnum hafi allt í einu að kaupa dýrar auglýsingar í fjölmiðlum til þess að afla málstað sínum fylgis. Það bendir nú ekki til þess að menn séu jafn illa settir og þeir vilja meina.
Það verður líka áhugavert að vita hvort það eigi fjölmenni eftir að mæta, nú þegar Sturla auglýsir svo mikið.
Það er nokkuð skemmtilegt að sjá viðtalið við mig er nú enn á forsíðunni á Bylgjunni. Ég fór í gær í viðtal út af brúðkaupsræðunámskeiðinu. Ekki nóg með það heldur er könnunin hjá þeim líka út af þessu viðtali.
Ég var í viðtali áðan hjá Reykjavík síðdegis áðan þar sem ég kynnti brúðkaupsræðunámskeið sem JCI Esja ætlar að halda á 12. júní næstkomandi.
Ég hef verið að kenna á fullt af ræðunámskeiðum en það er ótrúlega algengt að fólk sem er að koma á þessi námskeið vegna þess að það þorði ekki eða komst í gengum brúðkaupsræðu með illu móti. Þá ætlar fólk að fara að bregðast við.
Við ákváðum því að reyna að höfða til þessa hóps og bjóða upp á námskeið sem er sérsniðið fyrir þessar brúðkaupsræður, námskeiðið verður bara 2 kvöld, en vanalega eru námskeiðin hjá okkur 6 kvöld. Þetta verður því miklu styttra og hnitmiðara námskeið heldur en hefbundnu námskeiðin okkar.
Við erum að renna blint í sjóinn með þetta en það er alveg ljóst að það er markaður fyrir þetta, þar sem á hverju ári eru 1700 brúðkaup að meðaltali á Íslandi. Það er amk. skynsamlegra fyrir þann sem er að fara að flytja svona ræðu að taka eitt svona námskeið og fá leiðbeiningar hvernig er best að halda hana en eins og maður hefur oft séð í svona brúðkaupum þar sem móðir eða faðir stendur á gati, les hana bara upp af blaði eða er að drekka í sig kjark til að halda ræðuna.
Það verður eiginlega að segjast að myndbandið sem Ómar Örn sýnir hér er nokkuð rosalegt. Maður vissi bara ekki að svona væri til. Lögreglan virðist grípa drenginn kverkataki án nokkurar ástæðu. Það sem er eiginlega skuggalegast er að hugsa til þess að þessir sömu menn eigi að fá TAZER byssur, hingað til hef ég verið frekar hlyntur því, þó ekki væri nema þar sem von er á óeirðum.
Fararstjórinn Emil Örn Kristjánsson tók okkur Sjálfstæðismenn í ferð um Grafarvoginn í morgun, þar sem hann kynnti okkur fyrir sögunni og áhugaverðum stöðum. Á stuttum gangi var hægt að benda á tugi staða, með ótrúlega merkilega sögu. Eitthvað sem maður spáir oft lítið í þegar maður keyrir fram hjá þessum stöðum. Það er eiginlega synd að þetta skuli ekki verabetur merkt, þannig að um leið og maður labbar eða hjólar um hverfið geti maður áttað stig á þeim merkilegu stöðum, sem eru í vognum.
Ég held að saga Grafarvogsins sé merkilegri en margir íbúar gera sér grein fyrir, t.d. er upphaflegu götunöfn í hverfinu með merkilega heilsteypta og skemmtilegamynd með nöfnum eins og Hverafold, Frostafold og Fjallkonuveg.
Ég held að versta PR- / auglýsingaherferð sem sögur fara af sé herferð EJS, þar sem þeir hafa látið Sturla Jónsson, vörubílstjóra, auglýsa í fjölmiðlum alla vikuna að hann muni ekki standa fyrir látunum á laugardaginn. Ekkert meira var sagt.
Yfirleitt reyna fyrirtæki að tengja sig við einstaklinga sem hafa jákvæða ímynd, en Sturla hafði það þegar hann hóf þá baráttu sem hann stendur í. Sú ímynd er fyrir löngu fallinn, og flestir sem eru ekki skráðir í Frjálslynda flokkinn sjá Sturlu fyrir sér sem hálfgerðan rugludall.
Væntanlega hefur þetta átt að skapa einhverja umræðu og eftirvæntingar hvaða læti þetta ættu að vera. Hins vegar spurði enginn, engin skrif hafa verið um þetta og ég hef bara heyrt um þetta í einum fjölmiðli, en það er Útvarp Saga.
Eftir stendur að EJS skuli ákveða að tengja sig við Sturlu. Ég nokkuð viss um að fæstir PR sérfræðingar myndu mæla með þessari aðferð.
Ég er að minnsta kosti viss um að það verði engin læti við verslun EJS í kjölfarið á þessari herferð, nema að Sturla mæti á trukknum sínum.
Mundi benti á ummæli dagsins, ég ákvað því að skella mér á bylgjuna og benda á mín eigin ummæli dagsins, en það er Stormsker sem ætlar að bjóða Lóknum á Goldfinger.
Það var nokkuð skemmtilegt að í gær sakaði Magnús Þór mig um að snúa út úr aðalatriðum og aukaatriðum. Í dag skrifar hann svo um stysta fund í sögu Akranes. Þar kemur enn og aftur fram að búast megi við 60 manns og svo er reiknað út frá því. Raunveruleikinn er hins vegar að Skaginn hefur samþykkt að taka á móti 30 konum og börnum.
Nú er spurning hvor okkar er að snúa út úr? Ég þegar ég í gær benti réttilega á að hann hafði ekki verið að hleypa í gegn athugasemdum, eða hann þegar hann tönnlast á 60 manns sem séu á leiðinni til Skagans?
Magnús Þór Hafsteinsson hefur ekki farið fögrum orðum um gömlu samstarfsaðila sína og kallað þá trekk í trekk valdaræningja. Hann hefur einnig gert mikið úr netkönnun, þar sem hann á að hafa feiknalegan stuðning. Eins og allir vita hefur slík könnun nákvæmlega ekkert gildi og getur eingöngu verið til gamans en ekki til grundvallar málefnalegri umfjöllun. Þetta veit Magnús Þór fullvel og Hafrún Kristjánsdóttir benti á.
Hitt sem hefur verið mjög þessum aðgerðar Magnúsar Þórs undanfarið er hvernig hann hefur stýrt athugasemdum á blogginu sínu. Eingöngu athugasemdir sem eru Magnúsi að skapi er hleypt í gegn. Ágætlega hefur gengið að samþykkja athugasemdir sem hafa verið honum hliðhollar, en hinar þar sem menn hafa bent á ágalla á máli Magnúsar “týndust”. Nú hefur komið í ljós hverjir eru sökudólgarnir, en það er tæknimenn Eyjunnar:
Hef ekki neitað að samþykkja komment frá Hlyn. Ég fór inn í kerfið áðan og skoðaði þetta. Þá kemur fram að af einhverjum ástæðum er kerfið hætt að senda mér tölvupósta um að athugasemdir bíði samþykktar. Hef farið yfir þær athugasemdir sem biðu og sent þær út. Fæ þá tölvumenn hjá Eyjunni kíkja á þetta á morgun.
Reyndar er athugasemdakerfi Magnúsar, alls ekki í höndum Eyjunnar, heldur er það blogger.com sem sér um athugasemdakerfið. Auðvitað getur vel verið að það sé bilað, en það er þá væntanlega bilað hjá fleirum t.d. Hlyn sem notar sama kerfið og hundruð þúsunda annara notenda á blogger.com. Þetta er að sjálfsögðu mögulegt, en þá er tímasetningin hentug og hefur greinilega varað í nokkra daga, því 15. maí síðastliðinn voru fyrstu athugasemdir sem ég hef séð þar sem rætt var um hvarfi á athugasemdum hjá Magnúsi.
Hin fréttin var af formanni svokallaðs félagsmálaráðs á Skaganum sem mótmælti hástöfum komu um þrjátíu erlendra flóttamanna. Um er að ræða konur, einstæðar mæður og ekkjur með börn, sem dvelja í flóttamannabúðum í Írak. Konurnar munu flestar hafa misst eiginmanninn í stríðsátökum. Formaður félagsmálaráðsins taldi að ástandið á Akranesi byði ekki upp á aðstoð við aðra en bæjarbúa. Bærinn standi til dæmis tæpt vegna mikilla framkvæmda sem séu framundan
…
Fyrrverandi formaður félagsmálaráðsins hefur gefið til kynna að hann sé í sjálfu sér reiðubúinn til að taka á móti flóttamönnum. Skilyrðið er bara að öll félagsleg vandamál í bænum hans hafi verið leyst áður. Þá geti bærinn hjálpað.
Það er auðvitað engin ástæða til að gera lítið úr því að íslenskt efnahagslíf er veikara en það var fyrir örfáum mánuðum eða úr því að vitaskuld eru næg verkefni heima fyrir. En hvaða mynd er verið draga upp af Íslandi ef ekki er hægt að aðstoða fáeinar flóttakonur með börn eða fórnarlömb náttúruhamfara?
Líkast til er það nú frekar þannig að menn hafa það kannski ekki svo slæmt eftir allt saman þegar þeir upplifa óhagstæðan leigumarkað á Akranesi og erfiðleika vegna afborgana á risatrukkum sem keimlíkt því að þola stríð eða náttúruhamfarir.
Kannski skortir menn þá eitthvað annað en efnisleg gæði.
Ég hef nokkrum sinnum skrifað og velt því fyrir mér hvort Össur sé að skrifa fullur. Það var fyrir GMB.
Nú skrifar Össur um Magnús Þór og kemur í ljós að Össur er bestur þegar hann skrifar á kvöldin, en ekki á nóttunni.
Nú veit ég ekkert hvað fer fram innan veggja heimilis Össurar. Ég ætla ekki að segja til með áfengið. Um það veit ég bara ekkert. Ég ætla ekki einu sinni að ýja að neinu.
Hins vegar virðist Össur skrifa minna rugl fyrr á kvöldin.
Magnús Þór hefur hins vegar gert garðinn frægan og talað um að sprengja menn.
Magnúsi Þór þá telur líka hann að handaböndin undanfarna daga séu stuðningur sem eigi eftir að vara. Því miður fyrir Magnús þá er þetta stuðningur sem mun ekki vara nema bara núna rétt.
Ekki frekar en stuðningur við nýjustu vonarstjörnu Frjálslyndara, Stulli Trukka bílstjóri. Stuðningur við málstaðinn minnkar á hverjum degi. Fyrir næstu kosningar munu fárir muna eftir honum. Því miður fyrir frjáslynda, sem hafa unnið í að gera hann að flokksmanni.
Fyrst ég er farinn að benda á greinar á Deiglunni birtist áhugaverður leiðari um að fá Tyrkland í Efta. Ég ryfjað það reyndar upp, þegar Evrópu konsúll var spurður að því árið 2000 hvað ætti að gera við tyrki. Hann benti þá einmitt á EES og sagði að það yrði líklega lausnin.
Magnús Þór Hafsteinsson hefur farið mikinn í fjölmiðlum í dag og látið feiknalega stór orð falla. Að sumu leiti
Magnús sagði í dag að „siðblindir og siðspilltir stjórnmálamenn geta alltaf leitað hælis í Sjálfstæðisflokknum.”Magnús ætti kannski að líta sér nær. Er kannski málið Magnús sjálfur?Enginn annar flokkur en Frjálslyndi flokkurinn hefur tapað meira af stjórnmálamönnum á undanförnum árum og Magnús virðist ávallt hafa verið þungamiðjan í því að viðkomandi hafi skipt um vettvang (og gerst “pólitískir flóttamenn”).
Ef Magnús heldur að þau læti sem hann hefur þyrlað upp í dag eigi eftir að skapa honum einhverjar vinsældir, þá er það misskilnur.Upphrópanir og úthrópanir á einstaklingum sem í gær voru traustsins verðir dæma sig sjálfar, hins vegar eru mun meiri líkur á að menn leggi við hlustir þegar hann kemur með vel rökstutt mál eins og heyrðist í gengum svívirðingarnar semboðið var upp á í dag.
Ég tók upp bækling frá lyfjasmálsölum, en nokkrir hlutir vöktu athygli mína.
Í bæklingnum kom fram að álagning smásala sé bara 35%, en hún hafi verið 60%. Ég velti því fyrir mér hvað rélættir slíka álagingu? Þetta er bara sú álagni sem smásalinn sjálfur tekur, en ekki það sem framleiðandinn og heildsalinn tekur. Nú er ég ekki sérfræðingur í kostnaðarmyndun í þessum geira, en finnst 35% vera hátt á meðan álagning er á bilinu 7 – 17% í áfengi.
Ég hef reyndar ekki hugmynd hver er meðal álagning í matvöruverslun (þá lágvöruverslunum)., en þar eru amk. rök vegna rýrnurnar t.d. er líftími mjölkurvöru og grænmetis mjög skammur.
Hitt sem var ekki síður merkilegt er að lyf skuli vera með 24,5% vsk. Það er eiginlega ótrúlegt að það skuli ekki hafa farið í flokk með þeim vörum sem eru með lægri vsk.
Mér finnst sorglet að Hekla hafi náð að gabba Así, Björgvin G Sigurðsson og fleiri til að fara í lið með sér að auglýsa um bílana sína.
Um leið og Geir hvetur menn til þess aðhalds er Björgvin að fagna því að bílaumboð “lækki” verðið og þar með til eyðslu.
Ástæðan fyrir þessari “lækkun” varð lansmönnum ljós í morgun í Mogganum, þegar kemur í ljós að bílaumboðin eiga 3000 bíla á lager en ekki 1000 eins og vanalega. Samkeppnin fer harðnandi á þessum markaði og því þurfa þeir að lækka verðið til að koma hreyfingu á þá bíla sem þeir nú þegar eiga á lager.
Upphlaupið í kringum ráðningu Jakops Frímanns er nokkuð skemmtilegt. Ekki að mér finnist þetta vera sérstaklega gott fordæmi, en hins vegar eru margir þeirra sem hafa verið að gagnrýna þetta að kasta steinum úr glerhúsi.
R-listinn og aðrir meiri hlutar hafa dansað á sömu línu gráu línu og borgarstjóri nú, eins ráðning fyrrverandi miðborgarstjóra sýnir. Sömu kjör miðað við launvísitöluna og samskonar ráðning. Svo er alltaf verið að skapa eitthvað umrót í kringum þetta eins og Jakop Frímann eigi að vera aðstoðarmaður Ólafs.Honum sé heimilt að ráða sér einn slíkan.Var þá Kristín Einarsdóttir, fyrverandi þingmaður Kvennalistans og vinkona Ingibjargar, aðstoðarmaður hennar?
Einna fyndnast er í þessu þegar Óskar Bergsson er nú að gagnrýna þetta mál.Fyrrverandi aðstoðarmaður borgarstjóra skrifaði grein um Óskar árið 2006 undir fyrirsögninni Brúnn Ingi:
Verkefnaráðningar komust þó í umræðuna fyrir kosningar 2002. Það er vissulega athyglisvert í ljósi nýjustu tíðinda að aðeins ein ráðning R-listans orkaði þá tvímælis. Þáverandi borgarfulltrúi framsóknar, Sigrún Magnúsdóttir, réði einn tiltekinn mann í úttekt á einsetningu grunnskólanna og síðar í eftirlitsverkefni hjá byggingardeild. Við þetta voru gerðar athugasemdir.
Og hvað hét sá maður? Óskar Bergsson.
Og áfram í sömu grein:
Framsóknarmenn í borginni eru gagnrýndir fyrir það að skipa óhóflega sitt fólk í launuð embætti á vegum borgarinnar. Svívirðilegasta tilvikið er auðvitað dæmi Óskars Bergssonar. Hann hefur verið ráðinn verkefnisstjóri Faxaflóahafna, til þess að undirbúa framkvæmdir við Mýrargötu og fær fyrir það 390 þúsund krónur á mánuði. Verkefnið felst einkum í því að gæta hagsmuna Faxaflóahafna gagnvart framkvæmdaráði og skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Óskar er formaður annars ráðsins og varaformaður hins og fær fyrir það ásamt því að vera varamaður í borgarstjórn 377 þúsund krónur á mánuði.
Í kjölfarið á þesari gagnrýni hætti Óskar sem verkefnisstjóri, en eftir situr að bæði R-listinn og þeir meirihlutar sem komu á eftir stunduðu að ráða menn í svona verkefnavinnu án þess að auglýsa þær stöður.Þessi er þó upp á borðinu en ekki óljós verktakasamningur hjá einhverju dótturfyrirtæki borgarinnar.
Vísir segir frá því að Atlantsskip ætli að hætta siglingum.
Saga Atlantsskipa er nokkuð merkileg og á sínum tíma var fyritæki mitt á meðal fyrstu fyrirtækja sem hófu viðskipti við þá eftir að þeir fóru að sigla til Evrópu. Ástæðan var einföld, ég vildi stuðla að samkeppni, ekki að mín viðskipti hefðu verið mjög stór.
Þrátt fyrir að Atlantsskip séu ekki stórir spilarar á markaðnum hafa þeir haldið hinum á tánnum. Ég minnist þess nú alltaf þegar ég reyndi fyrst að semja við Samskip. Á þeim tíma var mér varla svarað. Ég var bara ekki þess virði. Ég hitti hins vegar góða konu hjá Eimskipum, sem sá fyrst og fremst auman á þessum unga dreng sem ætlaði að flytja inn. Ég beindi því lengi vel viðskiptum mínum öllum til Eimskipa.
Þetta mun væntanlega hafa á endanum áhrif á vöruverð á Íslandi, þar sem með minni samkeppni á verðið á flutningum eftir að síga upp.
Nú heitir sameiginlegt batterý Hive og Sko, Tal. Þar með er það komið á yfirborðið að það er engin samkeppni á þessum markaði, þar sem Teymi á nú vodafone og tal. Svo er það sá síminn ásamt nokkrum minni þáttakendum á markaðnum. Undanfarið hafa fyrirtækin verið að undabúa sig undir þetta meðal annars með því að láta BTneta gera það að einu af sínum seinustu verkum að segja upp ódýrustu tengingunum og hækka verðið með þeim rökum að það væri í þágu kaupendanna að kaupa dýrari þjónustu.
Ég hef bæði verslað við Hive og SKo og bæði voru þau komin á svarta listann. Hive fyrir að hafa sent í lögfræði innheimtu beini sem ég skilaði ekki og fékk ekki að vita af, en hins vegar hafði ég greitt þeim í það langan tíma að ég átti beininn samkvæmt öllu eðlilegu og svo Btnet vegna þess að þjónustuverið hjá þeim var bara opið á milli 12 -18 á þeim tíma sem ég er í vinnuni.
Btnet var vant að skrúfa niður allt niðurhal á meðan Hive var það fyrirtæki sem þeir sem sóttu mikið af gögnum leituðu oftast til, með háan hraða, ótakmarkað niðurhal og ódýra tenginu. Það verður fróðlegt að sjá hvernig þróunin verður í framhald, það er samt alveg ljóst að eftir þessar breytingar vantar samkeppni á þennan markað.